Stefán Valgeirsson :
Virðulegi forseti. Þessi þáltill. er nú fyrst og fremst að setja fram hin ýmsu markmið sem eru eins og fram hefur komið 32 að tölu. En hvernig á að ná þessum markmiðum? Ég hef ekki fengið skýringar á því. Að vísu hef ég ekki haft tíma til að athuga þetta nægilega vel og ekki athugasemdir með till. en ég hef hlaupið yfir markmiðin.
Ástandið í þessum málum í dag er allískyggilegt. Í fyrsta lagi er mér sagt að þeir sem þurfa að komast á bæklunardeild til meðferðar og uppskurðar þurfi að bíða allt upp í 18 -- 19 mánuði. Fyrir nokkrum dögum hafði samband við mig vinur minn á Akureyri sem þarf að fara í hjartaaðgerð. Hann segir mér að hann sé að fara núna í þessum mánuði til Lundúna. Ég segi: Hvers vegna læturðu ekki gera þetta hér? Ja, mér er sagt að það séu 11 -- 12 mánuðir sem þarf að bíða. Það hlýtur að vera markmið í heilbrigðismálum að þessir sjúklingar, þeir hópar sem ég er að nefna, geti fengið sjúkravist og hjálp hér án þess að þurfa að bíða mjög lengi. Ég geri að vísu ráð fyrir því að bráðatilfelli sem ekki mega bíða sitji fyrir. En ég hef séð t.d. bæklunarsjúklinga sem hafa verið blátt áfram komnir á fjóra fætur, hafa ekki getað gengið öðruvísi en styðja sig við stafi. ( Gripið fram í: Fjóra fætur?) Ég kalla það fjóra fætur, já. Það hlýtur að vera fyrst og fremst markmiðið að koma þessu fólki til hjálpar.
Nú stendur þannig á að aðstoðarlæknar eru að segja upp í stórum stíl. Það hlýtur að vera markmið að sjúkrahúsin séu fullmönnuð eftir því sem möguleikar eru á. Markmið eru auðvitað ágæt. En markmið duga ekki ein. Það þarf að vinna að framgangi hvers markmiðs. Og nú vil ég í fullri vinsemd spyrja hæstv. heilbrrh. að því hvort ráðuneytið eða þeir sem sömdu þessa till. hafi gert sér fulla grein fyrir því hvernig þeim verður náð á þeim tíma sem talað er um. Á undanförnum árum hafa þessi mál ekki lagast, t.d. með bæklunarsjúklinga, hjartasjúklinga og jafnvel þá sem þurfa að fara í augnaaðgerðir. Og auðvitað eru það fleiri aðilar en ég ætla að láta þetta duga.