Ástand mála í Eystrasaltsríkjunum
Þriðjudaginn 22. janúar 1991


     Þorsteinn Pálsson :
    Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanrrh. þá greinargerð sem hann hefur hér flutt í tilefni af ferð til Eystrasaltsríkjanna.
    Ég tel að hér sé um að ræða mjög mikilsverða heimsókn. Í fyrsta lagi tel ég að hún hafi verulega pólitíska þýðingu til styrktar sjálfstæðisbaráttu þessara ríkja og það skipti einfaldlega máli að stjórnvöld annarra ríkja sýni Eystrasaltsríkjunum þá virðingu að sækja þau heim á slíkum örlagatímum.
    Í annan stað er það mín skoðun og líka reynsla að heimsókn af þessu tagi dýpkar ekki aðeins skilning manna á því sem þarna er að gerast og hinu sögulega baksviði, heldur blæs hún einnig auknum anda, nýjum sannfæringarkrafti í þá sem þangað koma og kynnast aðstæðum af eigin raun. Og ég þykist vita og vænti þess að allt þetta hafi komið yfir hæstv. utanrrh. í þeirri heimsókn sem hann er nú nýkominn úr.
    Heimsóknin er líka athyglisverð fyrir þá sök að það virðist vera mismunandi mat innan hæstv. ríkisstjórnar á pólitískum aðstæðum í Eystrasaltsríkjunum. Fyrir rúmri viku lýsti hæstv. forsrh. því yfir að hann gæti ekki við svo búið þegið boð um opinbera heimsókn til Litáens vegna þeirra aðstæðna sem þar eru. En hæstv. utanrrh., sem ekkert slíkt boð hafði í höndum en vissi um hið almenna ákall stjórnvalda í þessum ríkjum, mat aðstæður hins vegar með þeim hætti að unnt væri að fara og ekkert væri því til fyrirstöðu að sýna þennan stuðning í verki. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að þetta pólitíska mat skuli hafa verið fyrir hendi innan ríkisstjórnar Íslands.
    Í umræðum um þessi efni og önnur verðum við hins vegar að gæta þess að umræðurnar verða að vera dýpri en svo að þær flokkist undir almennar fréttaskýringar. Því er ekki að leyna að mér finnst sem umræður um þetta efni og reyndar ýmis önnur beri þess oft keim að um sé að ræða að stjórnmálamenn bregði sér í hlutverk blaðamanna með almennum greinargerðum sem flokkast miklu fremur undir fréttaskýringar en pólitíska stefnumörkun.
    Við höfum hér á Alþingi borið gæfu til þess að ná saman um mjög skýra pólitíska stefnumótun í afstöðunni til sjálfstæðiskröfu Eystrasaltsríkjanna og enn á ný er ástæða til þess að fagna þeirri pólitísku samstöðu.
    Við erum hins vegar nú á nokkrum tímamótum. Fyrst í stað var mjög eðlilegt að bæði okkar afstaða og afstaða annarra þjóða, sem vildu veita Eystrasaltsþjóðunum liðsinni, miðaði að því að koma fram með yfirlýsingar til stuðnings þeirra kröfum og með aðgerðir á vettvangi alþjóðastofnana sem miðuðu að því að viðurkenna stöðu þessara ríkja.
    Nú, eftir að Sovétstjórnin, undir forustu friðarverðlaunahafa Nóbels, hefur með hervaldi reynt að brjóta sjálfstæðiskröfurnar á bak aftur, hljóta aðgerðir bæði okkar og annarra að miða að því enn fremur að þrengja að Sovétríkjunum og við verðum að ræða nú bæði þær jákvæðu stuðningsyfirlýsingar og aðgerðir sem út á við og gagnvart Eystrasaltsríkjunum sjálfum

miða að því að styrkja stöðu þeirra og hins vegar að ræða aðgerðir sem við sjálfir og aðrar þjóðir geta gripið til og miða að því að þrengja kost Sovétríkjanna og sýna með virkum hætti að við þolum ekki það hernaðarlega ofbeldi sem þar hefur verið beitt með þeirri afleiðingu að það komi niður á samskiptum við Sovétríkin sem við að öðru jöfnu viljum halda uppi. Eftir þessa atburði hljóta aðgerðir af okkar hálfu að miðast að þessu tvennu.
    Eystrasaltsríkin hafa tekið ákvörðun um sjálfstæði, að endurheimta sjálfstæði sitt. Ég ætla ekki að rekja þá sögu og hinar sögulegu forsendur þeirra ákvarðana. Það hefur svo oft áður verið gert. En hér er ekki um að ræða átök um það hvort Eystrasaltsríkin eigi að njóta meiri eða minni sjálfsstjórnar innan Sovétríkjanna. Hér er einfaldlega um það að ræða að þessi ríki hafa ákveðið að brjótast undan Sovétríkjunum og endurheimta fullt og óskorað sjálfstæði sitt. Okkar afstaða hefur verið sú að standa við bakið á þeim í þessum ákvörðunum, standa við bakið á þeim sem sjálfstæðum, fullvalda ríkjum. Og afstaða okkar til Sovétríkjanna hlýtur að mótast samhliða af þessum ákvörðunum. Auðvitað eru þetta stórar ákvarðanir og vandasamar ákvarðanir. Auðvitað eru þetta ekki bara falleg orð sem við erum að segja þessum þjóðum til stuðnings. Á bak við þessi orð eru raunverulegir hlutir. Þessi orð hafa þýðingu fyrir þjóðréttarlega stöðu og samskipti okkar við þessar þrjár þjóðir annars vegar og Sovétríkin hins vegar.
    Við höfum ítrekað gert ályktanir hér á hinu háa Alþingi og að undanförnu hafa verið settar fram hugmyndir um aðgerðir af Íslands hálfu. Ég tel að nú sé komið að því að það verði að myndast samstaða um raunverulegar aðgerðir. Það verði að myndast samstaða um meira en orð, heldur aðgerðir til þess að fylgja orðunum eftir. Aðgerðir sem miða bæði að því að styrkja Eystrasaltsríkin út á við og að hinu, að þrengja að Sovétstjórninni eftir ofbeldisverkin.
    Hæstv. utanrrh. drap hér á nokkrar hugmyndir af þessu tagi sem hafa verið hér til umræðu, tillögur sem komið hafa fram frá, að ég hygg, flestum þingflokkum hér í þinginu með einum eða öðrum hætti. Nú er hins vegar komið að því að við getum ekki látið við það sitja að reifa slíkar hugmyndir. Nú þurfum við að ná samstöðu um að fylgja nægjanlega mörgum þeirra eftir í verki til þess að sýna að það er full alvara á bak við þau stóru orð sem og okkar yfirlýsingum og aðgerðum af hálfu hæstv. ríkisstjórnar innan ýmissa alþjóðastofnana.
    Ég nefni hér fyrst ákall Landsbergis um það að við beitum okkur fyrir því að mál Eystrasaltsþjóðanna verði tekið upp hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Ég skil hæstv. utanrrh. þannig að á þann veg hafi verið staðið að því af hálfu hæstv. ríkisstjórnar að þreifað hafi verið á möguleikum á samstöðu Norðurlandaþjóðanna um þetta efni, en það hafi ekki borið árangur. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að ganga lengra og leggja fram formlegar tillögur um að málið verði tekið upp á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og láta þá á það reyna með formlegum hætti hvort það

nær fram að ganga eða ekki. Með öðrum orðum að láta ekki við það eitt sitja að þreifa með óformlegum hætti hvort aðrir eru tilbúnir að standa að þessu, að við gerum þetta þá sjálfir ef aðrir vilja ekki vera með okkur í því og látum formlega á það reyna að bera slíka tillögu upp á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Þetta tel ég vera mjög mikilvægt og reyndar vera efst á blaði.
    Í annan stað vil ég víkja hér að spurningunni um stofnun stjórnmálasambands. Vera má að það hafi verið meira til umræðu hér vegna þess að sérstaklega hefur verið flutt um það þáltill. og það reyndar bæði á þessu þingi og hinu fyrra. Ég hef það svolítið á tilfinningunni að afstaða ríkisstjórnarflokkanna til þessarar tillögu mótist meira af því hverjir fluttu hana en hinu hver raunveruleg afstaða er til aðgerða af þessu tagi. Ég vona satt að segja að svo sé ekki. Af hálfu þeirra sem flutt hafa þessa tillögu liggur ekkert annað að baki en sannfæring um, eftir ítarleg viðtöl, m.a. við Landsbergis forseta, að Eystrasaltsþjóðirnar sjálfar, og þá fyrst og fremst Litáar, telji að þetta verði þeim mjög til styrktar.
    Á sl. hausti þegar ég hafði farið í heimsókn til Eystrasaltsríkjanna og átt viðræður við forseta þeirra töldu þeir að slík viðurkenning kæmi fyrst og fremst að notum í samningaviðræðum, sem þá var reynt að koma fram, með því að aðrar þjóðir hefðu viðurkennt og stofnað til stjórnmálasambands stæði meiri þungi á bak við fulltrúa Eystrasaltsríkjanna. Þeir nytu þá einhverrar alþjóðlegrar viðurkenningar sem sjálfstæðar þjóðir og það var þeirra mat að það styrkti stöðu þeirra. Fyrst og fremst út frá þessu efnislega mati þeirra sem við var rætt taldi ég nauðsynlegt að flytja þetta mál hér fram, en ekki til þess að gera það að pólitísku átakaefni eða einum flokki til framdráttar frekar öðrum hér á hinu háa Alþingi. Ef vilji er til þess nú að endurmeta afstöðuna og mynda um þetta samstöðu, þá er auðvitað eðlilegast að gera það með samstöðu og nýjum tillöguflutningi af hálfu hv. utanrmn. til þess að sem mestur þungi verði á bak við slíka ákvörðun, eins og aðrar, sem við höfum tekið í þessu efni. Fyrst og fremst er það nú samstaðan sem gildir í þessu því að annað dugar lítið í þeirri baráttu sem hér er verið að fjalla um.
    Ég hef ekki gert mikið úr því í sjálfu sér hvort árétta þurfi viðurkenningu frá 1922 eða ekki. Auðvitað er það að lögum rétt að sú viðurkenning stendur og hefur ekki verið afturkölluð. Svo er um flestar aðrar þjóðir sem viðurkenndu Eystrasaltsríkin á sínum tíma, að þær hafa ekki afturkallað þær viðurkenningar og þær standa því að lögum. Undantekningar eru þó frá þessu, þar á meðal að því er varðar Svía. En hitt vitum við að við höfum í verki viðurkennt Sovétríkin að Eystrasaltsríkjunum meðtöldum. Það kemur m.a. fram í því að þeir sem ferðast til Eystrasaltsríkjanna, það á við bæði um hæstv. utanrrh., mig og hv. 2. þm. Austurl. sem þangað höfum farið, að allir höfum við þurft að fá vegabréfsáritanir frá sovéskum yfirvöldum. Til þess að breyta því sem við höfum í verki viðurkennt í 50 ár þarf nýjar athafnir. Vitaskuld er það rétt að það er ekkert einfalt mál, ekki eins og að drekka úr vatnsglasi, að stofna til stjórnmálasambands við þessar aðstæður. En hér er fyrst og fremst um að ræða pólitíska ákvörðun til þess að styðja við bakið á þessum ríkjum vegna þess að þau, og þá kannski fyrst og fremst Litáen, telja að það sé til verulegrar styrktar.
    Það er auðvitað rétt að hin almenna skilgreining er sú að ríki sem viðurkennt er þurfi að hafa ríkisstjórn sem ráði yfir eigin landi og eigin málum. En við höfum annað dæmi þessa dagana þar sem aðstæður eru með öðrum hætti. Lögmæt stjórnvöld í Kúvæt ráða ekki yfir því landi. Þau ríki sem höfðu stjórnmálasamband og sendiráð í Kúvæt hafa ekki aðstöðu til þess að sitja þar og hafa ekki haft undanfarnar vikur. En þau hafa enn stjórnmálasamband við Kúvæt. Þau hafa ekki lagt formlegt stjórnmálasamband niður. Þvert á móti leggja þau áherslu á að viðhalda því vegna þess að það er verulegur þáttur og forsenda fyrir því að alþjóðleg samstaða sé um viðurkenningu á sjálfstæði þess ríkis og réttmæti aðgerða til þess að endurheimta sjálfstæði þess. Með nákvæmlega sama hætti getum við látið á þetta reyna. Ég tek alveg undir það með hæstv. utanrrh. að slík ákvörðun þarf mjög vandlegan undirbúning og það þarf að meta ýmsar aðstæður og m.a. tæknilegar aðstæður.
    Ég held á hinn bóginn að hér sé um mikilvægt atriði að tefla. Fyrst í stað höfðu ýmsir það á móti bæði þessari aðgerð og ýmsum öðrum að þær kynnu að ögra valdhöfum í Moskvu og það væri ástæðulaust og beinlínis hættulegt vegna þess að það gæti veikt stöðu þeirra. Þá gengu menn út frá því að valdhafarnir í Moskvu hefðu fullan vilja á því að leiða þessi mál til lykta með friðsamlegum hætti og viðurkenna á endanum sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Ég var satt að segja aldrei sérlega trúaður á að þetta væri raunin. En það var ekkert óeðlilegt að ýmsir kynnu að halda þetta og ég ætla ekki að gagnrýna þá sem lögðu þetta mat á aðstæður. En atburðir síðustu daga hafa með ótvíræðum hætti sýnt að þessi sjónarmið eiga alltént ekki við lengur. Það er miðstjórnarvaldið í Moskvu sem með hervaldi er að brjóta þessa sjálfstæðisviðleitni Eystrasaltsþjóðanna á bak aftur og ætlar ekki að viðurkenna með friðsamlegum hætti réttmætar kröfur þessara þjóða til að endurheimta sjálfstæði sitt. Þessar breyttu aðstæður, sem hæstv. utanrrh. minnti hér réttilega á, hljóta að leiða til endurmats á afstöðu manna, bæði að því er varðar þessa aðgerð og ýmsar aðrar.
    Ég legg þess vegna enn einu sinni áherslu á að Alþingi freisti þess að ná samstöðu um að taka á þessu viðfangsefni og fagna því og get ekki skilið yfirlýsingu hæstv. utanrrh. á annan veg en þann að hann sé í ljósi nýrra viðhorfa reiðubúinn að horfa á þetta atriði og hugsanlega að undirbúa ákvarðanir á því sviði. En menn geta auðvitað ekki endalaust hugsað og velt vöngum. Það er komið að því að taka ákvarðanir.
    Ég nefni hér eitt atriði í viðbót. Það eru tillögur, sem fram hafa komið frá ýmsum aðilum úr ýmsum flokkum, um það að taka ákvörðun um að fækka

starfsmönnum í sovéska sendiráðinu. Hafi einhvern tíma verið tilefni til þess að taka slíka ákvörðun eftir margra ára umræður, þá er það nú. Það er ástæðulaust að vera að velta vöngum yfir því dögum og jafnvel vikum saman. Nú á að taka ákvörðun um að fyrirskipa þessa fækkun og sýna Sovétstjórninni með ótvíræðum hætti að við meinum það sem við segjum. Það er ekki nóg að tala um þetta hér dag eftir dag og viku eftir viku sem hugsanlegan möguleika. Nú er til þess ætlast að hæstv. ríkisstjórn taki ákvarðanir.
    Ég nefni þá hugmynd sem fram hefur komið frá hæstv. ríkisstjórninni sjálfri um það að fella úr gildi menningarsamning við Sovétríkin. Nú er það svo að á því máli má taka með fleiri en einum hætti því að sérstaklega hefur verið samið um framkvæmd þessa samnings frá einum tíma til annars. Það er einfaldlega í höndum hæstv. menntmrh., sem setti þessa hugmynd fram, að taka nú þegar ákvörðun um að stöðva alla framkvæmd á grundvelli þessa samnings, án þess að honum sé sérstaklega sagt upp. Það gæti verið eðlilegt fyrsta skref. Það er ekki nóg að koma hér upp í ræðustól og setja fram hugmyndir af þessu tagi en fylgja þeim svo ekki eftir innan hæstv. ríkisstjórnar. Eða hvernig má það vera að ráðherra í ríkisstjórn flytji slíka tillögu inn á Alþingi og síðan gerist ekki neitt? Eru það einhverjir aðrir innan hæstv. ríkisstjórnar sem koma í veg fyrir að slík tillaga sé framkvæmd? Það er nauðsynlegt að fá á þessu skýringar þegar ekkert gerist nema talið. Það er leitt að hæstv. menntmrh. skuli ekki vera viðstaddur þessa umræðu en það er ástæða til þess að kalla eftir skýringum þegar tillögur eru fluttar af þessu tagi og þeim ekki fylgt eftir.
    Hæstv. utanrrh. nefndi að viðskiptasendinefndin sem verið hefur í Moskvu væri komin heim. Hún er einfaldlega komin heim vegna þess að verki hennar var lokið að sinni. En hafa verið teknar ákvarðanir um það að leita ekki eftir frekari viðskiptaviðræðum við Sovétmenn meðan þetta ástand varir? Hæstv. ráðherra greindi ekki frá neinni slíkri ákvörðun. En það hlýtur að vera ætlast til þess að hæstv. ríkisstjórn taki afstöðu til veigamikils atriðis eins og þessa.
    Hæstv. ráðherrar eru stundum að tala um að þeir gangi feti framar en aðrar þjóðir í stuðningi við Eystrasaltsríkin. Ég ætla ekki að fara í neina þrætu við þá um þá fullyrðingu en hitt veit ég að Grænlendingar voru sneggri til í þessu efni, að því er varðar viðskiptasamninga við Sovétríkin, en við. Hæstv. utanrrh. lýsti sig algerlega andvígan því að kalla sendiherra Íslands í Moskvu heim til skrafs og ráðagerða. Ég hefði talið að það væri mjög eðlileg ráðstöfun við þessar aðstæður en ætla ekki að fara í neinar stórdeilur um það efni. En aðalatriðið er það að umræður um málefni Eystrasaltsríkjanna mega ekki festast í fari fréttaskýringar, mega ekki festast í fari almennra yfirlýsinga. Svo alvarlegir atburðir hafa gerst að eðlilegt er og nauðsynlegt að fylgja þeim eftir af okkar hálfu með virkari aðgerðum en gert hefur verið til þessa. Aðstæður eru með öðrum hætti eftir að ofbeldisverkin voru framin og kalla á nýjar aðgerðir, aðgerðir annars eðlis en við vorum í upphafi að tala um meðan menn eygðu vonir um að Eystrasaltsríkin gætu náð rétti sínum í frjálsum samningum.
    Ég trúi því að það geti tekist jafngóð samstaða hér á Alþingi um virkar aðgerðir af þessu tagi, enda hafa hugmyndir um slíkar aðgerðir komið frá því sem næst öllum flokkum hér í þinginu og eiga þess vegna ekki að þurfa að vera flokkspólitískt ágreiningsefni eða metnaðarmál. Ég vænti þess að þessi umræða hér í dag geti alltént leitt til þess að við fáum að heyra af ákvörðunum sem fylgja orðunum eftir. Þá er það alltént ljóst að bæði ferð hæstv. utanrrh. til Eystrasaltslandanna, sem ég tel að hafi verið mjög mikilvæg og hann á allar þakkir skildar fyrir að hafa tekist hana á hendur, hafi borið árangur og sú umræða sem hér hefur orðið um skýrslu hans hafi skilað okkur fram á við.