Forseti (Jón Helgason) :
Eins og hv. 4. þm. Vestf. veit, þá er ekki hægt að skylda neinn nefndarmann til að skila nál. Það er hverjum nefndarmanni í sjálfsvald sett. Í síðustu viku var ákveðið að 2. umr. um þetta mál færi fram í gær og allir nefndarmenn fjh. - og viðskn. voru búnir að fallast á það. Það voru hins vegar ytri aðstæður sem gerðu það að verkum að samkomulag varð um að fresta málinu þangað til í dag. Þetta er því gert í fullu samráði við alla nefndarmenn í fjh. - og viðskn.