Launamál
Miðvikudaginn 23. janúar 1991


     Forseti (Jón Helgason) :
    Forseta var tjáð það á fimmtudag í síðustu viku að engir annmarkar væru á því af hálfu fjh. - og viðskn., sem hafði þetta mál til meðferðar, að það yrði tekið til umræðu í gær og þá ætlaði ég að gera það. En eins og ég sagði áðan varð samkomulag vegna ytri ástæðna um að geyma málið þangað til í dag og þá var það sett á dagskrá þannig að það er langt frá því að það sé verið með einhvern óeðlilegan hraða eða flýti af hálfu forseta í málinu.