Húsnæðisstofnun ríkisins
Miðvikudaginn 23. janúar 1991


     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka þær umræður sem hafa orðið um þetta mál. Hv. 17. þm. Reykv. vék sérstaklega að tveim efnisatriðum í sínu máli. Í fyrsta lagi taldi hann þetta frv. óþarft og að viðkomandi félög ættu að setja sér sjálf sínar reglur og samþykktir um þetta fyrirkomulag. Í annan stað beindi hann orðum sínum að því að hér væri líka verið að búa til form fyrir fólk sem hefði miklar tekjur.
    Varðandi fyrra atriðið er ég honum ósammála því að ekki sé rétt að skapa lagagrundvöll að því er varðar þetta búsetuform með líkum hætti og þekkist á hinum Norðurlöndunum þar sem þetta form hefur verið lengi við lýði. Búsetuhreyfingin hefur um margra ára bil barist fyrir því að slíkur lagagrundvöllur væri skapaður sem felst í þessu frv. Það má auðvitað spyrja sig að því hvers vegna búsetuhreyfingin hafi lagt svona mikla áherslu á það í gegnum árin að fá lagagrundvöll fyrir því ef hún hefði einfaldlega getað sett sér sínar eigin reglur og samþykktir í þessu efni. Hér er fyrst og fremst verið að skapa lagagrundvöll um réttindi og skyldur búsetuhreyfingarinnar, búsetufélaga og þeirra sem kjósa sér þetta búseturéttarform og raunverulega tryggja réttarstöðu þeirra. Þess vegna tel ég tvímælalaust nauðsynlegt að setja slíkan lagagrundvöll sem felst í þessu frv.
    Að því er varðar það að hér sé verið að búa til eignarform fyrir þá sem miklar tekjur hafa þá er það auðvitað rangt, og raunar kom fram í máli ræðumanns þegar hann endurtók það sem ég sagði í mínu máli að könnun sýndi að 90% félagsmanna í búsetuhreyfingunni væri lágtekjufólk sem væri innan tekjumarkanna. Það er að vísu rétt, eins og hv. þm. kom inn, á að það er opnaður möguleiki fyrir búseturéttarformið í almennum kaupleiguíbúðum. En þá er um allt önnur kjör að ræða. Þá þarf viðkomandi sem kýs sér slíkt búsetuform að leggja sjálfur fram 30% eignarhlutans og fær hann á allt öðrum vaxtakjörum en þeir sem eru undir tekjumörkunum. Og ég tel auðvitað rétt að alveg eins og menn töldu nauðsynlegt að almennar kaupleiguíbúðir væru fyrir hendi eins og félagslegar kaupleiguíbúðir, ekki síst vegna fólks úti á landsbyggðinni, þá hafi verið rétt að opna fyrir þetta form líka í almennum kaupleiguíbúðum.
    En ég tel ekki ástæðu til að lengja mál mitt og legg áherslu á að þetta mál hljóti brautargengi og verði að lögum á þessu þingi.