Atvinnuleysistryggingar
Miðvikudaginn 23. janúar 1991


     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Aðeins örstutt mál vegna orða hv. 11. þm. Reykv. Ég vil taka það fram að ég deili áhyggjum hennar fullkomlega vegna þess fólks sem ráðið er á skjön við alla taxta í launavinnu sem einhvers konar verktakar eða það sem kallað hefur verið gerviverktakar og glatað með því öllum sínum réttindum. Og ég vil raunar minna á að á sl. vetri var vísað til ríkisstjórnarinnar tillögu minni um að kanna sérstaklega og kynna réttarstöðu þessa fólks og réttindaleysi og jafnframt að fræða um réttindi og skyldur á vinnumarkaði.
    Ég tel hins vegar ekki að andstaða gegn því frv. sem hér er til umræðu muni á nokkurn hátt breyta stöðu þessa fólks vegna þess að hér er um annað og miklu víðtækara vandamál að ræða. Því sé ég ekki að hér sé hægt að blanda þessum málum saman. Og ég, eins og hún, veit mætavel að barátta stéttarfélaga hefur á tíðum verið mjög hörð og erfið og því gat ég hér fyrr í máli mínu sérstaklega um það að á meðan stéttarfélög sinna þeirri baráttu sem nú er brýnust, launabaráttu og réttindabaráttu, þá kvíði ég því ekki, svo framarlega sem fólk gerir sér grein fyrir stöðu sinni og kostum þess að vera í stéttarfélögum, að það muni forðast stéttarfélögin, heldur þvert á móti.