Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Vegna þessara orða vill forseti upplýsa að fordæmi munu vera fyrir því að telji hæstv. ráðherra að fsp. sé beint til annars hæstv. ráðherra en raunverulega á um málið að fjalla sé því vísað til annars ráðherra. Nú vill forseti taka fram að hann vill fá leyfi til að hlusta á hæstv. forsrh. áður en þessu máli verður endanlega svarað og mun bera sig saman við embættismenn þingsins þegar hæstv. forsrh. hefur lokið ræðu sinni.