Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Forseti vill benda hv. þm. á það að á dagskrá þessa fundar eru tvær fsp. og það er hæstv. forsrh. sem ætlar að svara fsp. Forseti vill því benda þingmanninum á að athugasemdir sem þessar eiga auðvitað ekki við á þessum fundi vegna þess að ekkert liggur fyrir um annað en að svar berist við þessari einu fsp.