Athugun atvinnumála vegna hruns loðnustofnsins
Fimmtudaginn 24. janúar 1991


     Kristinn Pétursson :
    Hæstv. forseti. Ég þakka 1. flm. fyrir að vinna að þessari þáltill. Það er brýn nauðsyn á því að gera úttekt á atvinnumálum þeirra byggðarlaga þar sem loðnuvinnsla hefur verið, fari svo sem verið er að tala um að ekki finnist loðna. En við skulum minnast þess að fyrir ári síðan stóðum við frammi fyrir svipuðu máli en svo kom loðnan. Það er mín persónulega skoðun að það muni fara eins núna, hún muni finnast, en fyrir því er auðvitað engin trygging. En þetta sýnir okkur kannski betur en margt annað hvað við raunverulega vitum lítið um þá fiskstofna sem þessi þjóð byggir afkomu sína að öllu leyti á. Gætum við ekki nýtt fiskstofnana væru lífskjör á Íslandi ekki merkileg.
    Ég vil enn fremur minna á það að nú veiðist loðna vel við Noreg. Samkvæmt upplýsingum sem við fengum í morgun mun vera þriggja til fjögurra daga löndunarbið í Noregi í dag og því er spurning hvort ekki sé hægt að fá loðnu frá Noregi til Íslands alveg eins og stundum er siglt með hana til útlanda þegar mikið veiðist hér. Ef löng löndunarbið er í Noregi munu menn kannski hugsa sig um og þetta er náttúrlega möguleiki. Alla vega er engin ástæða til þess að ætla að það þurfi að vera einstefna í flutningi á fiski frá Íslandi, hann gæti alveg eins komið til okkar. Við ættum alveg að vera samkeppnisfærir um að vinna sjávarafurðir, hvort sem það heitir loðna eða eitthvað, við aðrar þjóðir. Við hljótum að gera þá kröfu til þeirra sem standa að þeim rekstri og til stjórnvalda að þau stuðli að því að samkeppnisskilyrðin séu með svipuðum hætti.
    Ég vil enn fremur nota tækifærið, hæstv. forseti, og ítreka að það er staðreynd að allt of lítið eftirlit hefur verið með fæðukerfi nytjastofna hér við land og það er fyllsta ástæða til þess að taka upp umræðu um það hvort ekki sé rétt að auka fjármuni til hafrannsókna. Ég hef oft áður minnt á það án þess að koma með beina tillögu í þeim efnum en það er nú einu sinni á færi þess stjórnvalds sem fer með sjávarútvegsmál hverju sinni að sjá til þess að útvega fjármagn til hafrannsókna. Ég er sannfærður um að við verjum ekki fé í betri hluti en hafrannsóknir og það skilar sér margfalt til baka til þjóðarinnar aftur, hvaðan svo sem við mundum fá fjármagn til þeirra hluta.
    Enn fremur er rétt að minna á það að við eigum aðgang að stærsta fiskstofni í Norður - Atlantshafi sem er kolmunninn. Við höfum sömuleiðis varið allt of litlum fjármunum í það að finna leiðir til þess að nýta þann stofn, hvort sem væri til manneldis eða til bræðslu. Við höfum hins vegar farið rétt að í sambandi við rannsóknir á vatnasvæðum hálendisins og í það höfum við eytt gífurlegum fjármunum í áratugi. En að eyða ekki einni einustu krónu í það að reyna að nýta fiskstofna sem eru í milljónum tonna inni á okkar hafsvæði, að við skulum ekki veita fjármuni til þess að prófa okkur áfram við að nýta þessa stofna, það er alveg fyrir neðan allar hellur.
    En ég ítreka það, hæstv. forseti, að það er ástæða til að þessi tillaga fáist samþykkt og hún verði hér til

umræðu. Á næstu tveimur vikum mun koma í ljós hvort loðnan finnst eða ekki. Ég legg til að hvort sem hún finnst eða ekki munum við samt sem áður auka hafrannsóknir verulega. Fyrir ári síðan var spáð að nýta mætti á þessu ári allt að milljón tonn af loðnu. Enn fremur hefur Hafrannsóknastofnun upplýst að þorskstofninn éti milljón tonn af loðnu á ári. Þá erum við farnir að tala um tvær milljónir tonna. Eitthvað þarf svo loðnan að hrygna til þess að viðhalda stofninum. Nú um daginn fundust ekki nema 300 þús. tonn svo að það er von að maður spyrji sig hvað raunverulega sé að. Eru hafrannsóknir okkar ekki nægilega miklar eða eru einhverjir stórfelldir hlutir að gerast í vistkerfinu í kringum landið og hvað er þá að gerast? Þá er um svo alvarlega röskun í vistkerfinu að ræða, ef það er staðreynd að stofninn hafi hrunið við nefið á okkur, að það er fyllsta ástæða til þess að fá svar við því hvað hafi gerst í hafinu.
    Eins og ég sagði áðan hef ég trú á því að við munum finna meiri loðnu. Það er erfitt að reikna þessa fiska út. Þeir kunna hvorki á landabréf né dagatal og hegða sér bara í samræmi við það hvar þeir finna æti hverju sinni og að sjálfsögðu leita þeir á sínar hrygningarstöðvar.
    Hæstv. forseti. Ég ítreka að fari svo að ekki verði veidd meiri loðna í ár þá er fyllsta ástæða til að þessi tillaga verði samþykkt.