Athugun atvinnumála vegna hruns loðnustofnsins
Fimmtudaginn 24. janúar 1991


     Skúli Alexandersson :
    Virðulegi forseti. Hv. 5. Norðurl. e. Valgerður Sverrisdóttir nefndi nokkur atriði sem ég held að sé rétt að skoða svolítið betur. Í fyrsta lagi að loðnurannsóknir hefðu verið stundaðar við landið á þann veg sem ekki væri gagnrýnisvert og jafnvel að það hefði verið gert vel. Því miður er þetta nú ekki þannig alveg eins og hv. þm. Kristinn Pétursson gat um. Það hefur farið fram allrækileg loðnuleit, en það er alveg tvennt ólíkt og loðnurannsóknir. Líffræðilegar rannsóknir í hafinu hér norður af Íslandi hafa næstum engar farið fram þrátt fyrir að Hafrannsóknastofnun hefur vitað um það á undanförnum árum að ástand sjávar við Norðurland hefur verið mjög afbrigðilegt. Engan veginn er hægt að fullyrða, vegna þess að það er engin rannsókn þar fyrir, en að öllum líkindum er mjög lítil fæðuframleiðsla í hafinu norður af landinu. Menn hafa verið að láta sér detta í hug núna á síðustu mánuðum að kannski stafi sá loðnubrestur sem við okkur blasir af því að ekki hafi verið næg fæðuframleiðsla í hafinu til þess að standa undir þessum stóra stofni sem loðnustofninn okkar var þarna á síðasta ári þegar hann var mældur. En því miður liggja engar öruggar rannsóknir fyrir um það að svo sé. ( VS: Ég var að tala um loðnuleitina að þessu sinni.) Loðnuleitin já, virðulegi þm., loðnuleitin mun hafa verið framkvæmd --- ég vil segja allsæmilega, m.a. að tillögum hv. þm. Jóns Sæmundar Sigurjónssonar, að senda í þær fiskiskip ásamt með fiskirannsóknarskipunum okkar. En ef ég hef misskilið hv. þm. þá breytir það nú kannski ekki miklu. Ég ætla að taka það til baka að hv. þm. hafi verið að segja að loðnurannsóknir hafi verið vel framkvæmdar. Því miður er það ekki þannig. En loðnuleitin hefur verið, sérstaklega síðasti leitarleiðangurinn, mjög trúverðug og hefur sjálfsagt verið innt af hendi eins vel og kostur var.
    Í öðru lagi. Ekki vildi hv. þm. taka undir það sem ég sagði að ríkisstjórnin hefði sofið á verðinum. Ég sagði að ríkisstjórnin hefði sofið á verðinum gagnvart þessum þætti málsins, gagnvart þættinum sem tengist loðnuverksmiðjunum og þeirri þjónustu og því starfsliði öllu sem þeim tengist. Og ég sagði að þetta væri forgangsverkefni, sem ætti að taka á undan því að tala um það hvernig ætti að standa að og styðja loðnuflotann. Það væri málefni sem ekki ætti að fara að fjalla um neitt alvarlega fyrr en eftir eða um það bil sem síðasti rannsóknarleiðangurinn færi fram og við fengjum úr því skorið að um það væri ekki að ræða að þessi floti gæti farið á veiðar.
    Því miður er byrjað á öfugum enda og ég vil undirstrika það. Það er ekki verið að hugsa um vandamál íbúa á Þórshöfn og Raufarhöfn. Þeir mega bíða og sjá hvað setur. En við skulum reyna að hugsa fyrir því að hagur útgerðarmanna loðnuskipanna verði nú einhvern veginn réttur við --- en því miður með því að taka af öðrum. Það er ekki verið að leysa vandamálin á þann veg að þessir aðilar geti bjargað sér að einhverju leyti sjálfir, heldur á að taka fiskiréttinn af öðrum, úr þorskstofninum, og veikja aðrar útgerðir

hringinn í kringum landið á kostnað þeirra. Það er nú svo að bæði Þórshöfn og Raufarhöfn ( Gripið fram í: Og Akureyri?) Ég ætla nú að taka þessa tvo staði fyrir. Ég veit ekki til þess að frá þessum byggðum séu gerð út loðnuskip, ég man ekki eftir því. Ef svo er mundi ég biðja þingmenn um að leiðrétta það. Það mun ekki vera. Þess vegna er það bara óskhyggja hv. þm. úr Norðurlandskjördæmi eystra að í frv., sem búið er að sýna í þingflokkum og ég vona að aldrei verði lagt fram, verði sett binding um það að loðnuskipin sem gerð eru út frá Reykjavík og Hafnarfirði komi til með að landa á Raufarhöfn og Þórshöfn.
Það er mikil óskhyggja. Hvers vegna ætti frekar að binda loðnuskipið sem gert er út frá Reykjavík til að landa á Þórshöfn á Langanesi og hvernig ætti að velja skip úr til þess að landa þar frekar heldur en loðnuskipin sem gerð eru út á Neskaupstað, sem eðlilega ættu þá að landa þar? Því ekki Eskifirði? Akranesi?
    Staðreyndin er sú að þetta eru mál sem ekki er hægt að tengja saman. Það verður að leysa þennan þátt hvern út af fyrir sig. Það verður ekki gert með öðrum hætti. ( VS: Hver er tillaga hv. þm.?) Tillaga hv. þm. er sú, eins og ég nefndi hér áðan, að það verði kjörin nefnd eftir þessari tillögu sem við erum að fjalla um hér. Sú nefnd hefði helst átt að vera kjörin á þessum fundi að forgöngu ríkisstjórnarinnar til þess að taka á þeim vandamálum sem við blasa í verksmiðjubæjunum og þjónustubæjunum við loðnuveiðiflotann. Þar eru margir hlutir sem koma til, m.a. beinlínis gagnvart verksmiðjunum sjálfum að ganga í það að tryggja að lánastofnanir, sem maður heyrir nú að tilkynni hverri loðnuverksmiðjunni á fætur annarri að þetta lánið og hitt lánið sé fallið í gjalddaga, að þessir góðu herrar sem yfir peningunum ráða átti sig á því að þarna eru uppi vandamál og þeir skuli gera svo vel og láta þetta bíða. Það er líka hægt að athuga strax í dag hvort hægt er að fá norska flotann til þess að koma upp á Austfirði þó ekki væri nema eitt, tvö skip í hverja byggð. Það er bara ekki gert. Hæstv. sjútvrh. er erlendis og hæstv. forsrh. er eitthvað annað að gera.
    Vitaskuld eru þetta margþættir hlutir sem þarna þarf að gera. Sú nefnd sem vann hér að svipuðu málefni, 1982 mun það hafa verið, hv. þm., leysti vandamálin á ýmsan máta. Sveitarstjórnirnar, hafnirnar voru styrktar og þeim var hjálpað til að komast yfir þennan erfiða hjalla og þetta var leyst á breiðum grunni. En það var ekkert tengt þessu vandamáli sem er kvóti fyrir loðnuskipin. Ég ætla að benda hv. þm. á það þegar verið er að fjalla um þetta frv. í þingflokkum ríkisstjórnarinnar að loðnuskipin, eins og hér kom fram í ræðu hv. þm. Stefáns Valgeirssonar, meginhlutinn af þeim flota hafði þorskveiðikvóta. Hvað skyldi hann hafa gert af þessum kvóta? Hann seldi hann eða ráðstafaði honum á einhvern þann máta að út úr því kom fjármagn til þeirra. Þetta var kannski alveg eðlilegt. Þeim var skammtaður þarna góður bás á loðnunni og hvað skyldi sá bás hafa verið mörg þorskígildi? Ég tel að þorskígildi hvers loðnuskips hafi verið um 1400 tonn. Það þætti hverjum vertíðarbáti,

togara af svipaðri stærð og loðnuskipin, allsæmilegt. Þeim mundi finnast það bara alveg sæmilegt og það væru ekki nein stór vandamál að vakna upp hjá þeim þó það blasti við bann á veiði í nokkra mánuði, vonandi ekki lengur en fram í september, október næsta ár, ef þeir hefðu haft 1400 tonna aflakvóta á undanförnum árum, bátarnir sem hafa verið með 700 tonna, 600 tonna kvóta og orðið að láta rekstur standa undir sér.
    Ég undirstrika að það er mikil nauðsyn og mikil alvara bak við þá tillögu sem hér er flutt og við megum ekki blanda henni í einu eða neinu saman við það plagg sem hæstv. sjútvrh. hefur sent til þingflokka ríkisstjórnarinnar til að skoða og sem ég vona að þar verði aldrei gert meira með en að það verði skoðað.