Varamenn taka þingsæti
Mánudaginn 28. janúar 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Borist hefur svohljóðandi bréf frá hæstv. forseta Nd.:
    ,,Halldór Blöndal, varaformaður þingflokks Sjálfstfl., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem Þorsteinn Pálsson er erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans beiðni með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, Árni Johnsen blaðamaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Árni Johnsen hefur áður setið á þingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.

    Þá hefur borist annað bréf, einnig frá hæstv. forseta Nd. Það hljóðar svo:
    ,,Þórhildur Þorleifsdóttir, 12. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég sökum anna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að vegna forfalla 1. og 2. varamanns taki 3. varamaður Kvennalistans í Reykjavík, Sigrún Helgadóttir líffræðingur, sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Þá hefur borist eftirfarandi bréf:
    ,,Vegna anna get ég undirrituð ekki tekið sæti á Alþingi í fjarveru Þórhildar Þorleifsdóttur.
Sigríður Lillý Baldursdóttir,

Funafold 52, Reykjavík.``


    Þá hefur borist annað bréf:
    ,,Sökum anna sé ég mér ekki fært að taka sæti á þingi í fjarveru Þórhildar Þorleifsdóttur, þingkonu Kvennalistans.
Með virðingu,

María Jóhanna Lárusdóttir,

Klapparási 6, Reykjavík.``


    Sigrún Helgadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hana velkomna til starfa.