Persaflóadeilan
Mánudaginn 28. janúar 1991


     Stefán Valgeirsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil nú hefja mál mitt á því að það er mjög bagalegt að vita ekki af svona umræðu fyrr en í fundarbyrjun. Þetta mál er þannig vaxið að menn hefðu þurft að geta athugað sitt mál, haft tíma til umhugsunar áður en slík umræða fer fram sem þessi. ( Forseti: Vill hv. þm. leyfa forseta að svara þessu. Hér hafa orðið alvarleg mistök vegna þess að þegar í gærkvöldi var gengið frá því að allir þingflokkar og þar með hv. 6. þm. Norðurl. e. yrðu látnir vita af þessari umræðu. Ég harma það mjög ef þetta hefur eitthvað misfarist.) Ég þakka svarið, það eru mannleg mistök.
    Mér finnst sú umræða sem hér fer fram dálítið einkennileg. Menn ræða um það að Íslendingar séu komnir í stríð. Menn ræða um það að við séum skuldbundnir til þess að fara í stríð ef ráðist er á einhverja þjóð sem er í Atlantshafsbandalaginu. En það kemur ekki fram hvernig menn ætla að framkvæma slíkt. Höfum við her? Hvernig ætla hinir stríðsglöðu menn eða þeir sem þykjast skilja þennan gjörning sem hefur verið gerður á milli þjóðanna, hvernig eiga Íslendingar að geta staðið við hann? Og hæstv. utanrrh. sagði að samþykktin þyrfti að öðlast samstöðu. Hvað þýðir þetta? Hefur einhver neitunarvald um þetta eða hvað þýðir þetta á mannamáli? Það þarf samstöðu. Ef á að taka þetta bókstaflega, þá er það alls ekkert sjálfkrafa sem við mundum verða stríðsaðilar þó að svo illa fari að stríðið breiðist til Evrópu sem kannski margt bendir til. Síðan segir hæstv. utanrrh. enn fremur: ,,Við höfum skuldbundið okkur en það er að eigin mati.`` Hæstv. utanrrh. er ekki hér í salnum en ég hefði viljað fá útskýringu á því hvað þetta þýðir. Hver er aðdragandinn að þessari styrjöld? Hafa Íslendingar framleitt vopn og selt þessum þjóðum? Höfum við gert það?
    Það hefur verið fullyrt að Sameinuðu þjóðirnar væru sú merkilegasta samkunda sem hefur nokkurn tíma verið til í heiminum að mér skilst. En hvað er forvarnarstarf? Sömu þjóðirnar sem nú eru að heyja styrjöld við Íraka hafa skaffað þeim vopn til fleiri ára, jafnvel kennt þeim að beita þeim. Og það hafa ýmsir sagt: Þessi og hinn er vitfirringur. Stalín var vitfirringur. Hitler var vitfirringur. Hussein er vitfirringur. Þið hafið kannski komið til Ísraels og ferðast þar um, inn á Gazasvæðið, séð hvernig er farið með Arabana? Er það ekki líka vitfirring hvernig þar er að málum staðið?
    Og ef við lítum aftur, jafnvel aftur í aldir, þá virðist það vera saga mannkynsins að það er sama hverjir stjórna í vissum löndum, það er eins og það sé áfram í sama mynstrinu. Það breytist í raun og veru ekkert þegar frá líður annað en það að fram koma nýir menn, menn sem ætla að berjast fyrir réttlæti. Og hvað er réttlæti? Það er þeirra dómur. Það er þeirra afstaða sem ráða í hverju tilviki. Það er hið rétta. Og sá sem verður undir er alltaf sekur. Hann er dæmdur, hann er kúgaður. Og síðan rísa menn upp, fá jafnvel vopn frá þeim sem börðust við þá, og reyna svo

að hefna harma sinna. Þetta er sagan.
    En mér finnst það kannski merkilegast við þessa umræðu að þó að á yfirborðinu virðist í raun og veru vera lítill munur á afstöðu hæstv. ráðherra þá er langt frá því að þeir séu sammála ef maður fer ofan í saumana á því sem þeir segja.
    Ég vil fá útskýringu á því hvað t.d. hæstv. utanrrh. meinar þegar hann segir að það þurfi að vera samstaða meðal NATO - þjóðanna og að við séum skuldbundnir. En skuldbindingin er eftir því sem orð hans féllu, ef á að túlka þau bókstaflega, að okkar eigin mati hvort við erum skuldbundin eða ekki. Svo koma menn hér upp og segja: Við erum í stríði. Sem sagt, út og suður er hér rætt og hver er niðurstaðan? Rugl.