Persaflóadeilan
Mánudaginn 28. janúar 1991


     Guðrún Helgadóttir :
    Hæstv. forseti. Þegar ég var lítið barn ólst ég upp í nágrenni við herstöð. Fyrstu árin sem ég man eftir mér bjó ég í nágrenni við stóran hóp hermanna og lærði að lesa með því að brjótast í gegnum styrjaldarfregnir Morgunblaðsins. Þetta gekk yfir, þó ekki áfallalaust vegna þess að í því litla byggðarlagi þar sem ég átti heima var það ekki óalgengt að þrjú til fjögur börn yrðu föðurlaus einu sinni, tvisvar á vetri þessi ár. Þær skelfingar fóru auðvitað ekkert hljóðalaust yfir viðkvæma barnssál. Þetta leið hjá, sem betur fer. Síðan tók það við þegar við vorum ungar manneskjur að byrja lífið að menn fóru að berjast austur í Asíu og með þá lífsreynslu að baki sem maður fékk sem barn, þá barðist maður gegn þeirri styrjöld. Við stóðum í mótmælagöngum og barðist af alefli með því fólki sem sagði: Aldrei aftur stríð.
    Og hér stöndum við enn og getum ekki opnað svo fjölmiðil að ekki sé verið að segja frá styrjöld og það e.t.v. skelfilegri styrjöld en nokkurn tíma hefur verið háð. Maður spyr sjálfan sig: Hvað er að gerast? Hvar er dómgreind fólks? Til hvers höfum við staðið í baráttu árum og áratugum saman? Ég í stjórnmálaflokki sem barðist fyrir friði, gegn þátttöku í hernaðarbandalögum, fyrir ómengaðri náttúru, fyrir þeirri einföldu staðreynd að skila þessari veröld betri en við tókum við henni. Ég spyr hv. alþm.: Erum við á réttri leið? Svar mitt hlýtur að vera nei. Fyrir mér er heimurinn að ganga af göflunum og þar með obbinn af þeim stjórnmálamönnum sem hér eiga hlut að máli. Ég er svo hjartanlega sammála því sem bæði hv. 16. þm. Reykv. sagði hér áðan og hv. síðasti ræðumaður, 10. þm. Reykn., að það er ekki hægt að vinna styrjöld, hún hefur aldrei unnist og mun aldrei vinnast. Hún getur ekki haft neitt nema eyðileggingu og mannskemmdir í för með sér.
    Það hlýtur að vera eina ráðið til þess að gera mannkyninu líft í þessum heimi að reyna að verja sína eigin dómgreind. Það er það eina sem við höfum að verja og mér sýnist að hún sé í hættu.
    Hér hafa hæstv. ráðherrar skýrt hver staða okkar sé í þessum átökum. Sumt af því er sjálfsagt rétt og sumt beinlínis rangt. Ég horfði sjálf á, eins og áreiðanlega flestir þeir hv. þm. sem hér hlýða á mál mitt, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna segja það nóttina sem Bandaríkjamenn réðust inn í Írak: Ég var ekki látinn vita. --- Hann sagði orðrétt og ég sá ekki betur en manninum væri svo brugðið að hann var í tárum: ,,I was not informed.``
    Hann var ekki látinn vita að þetta stæði til eða þetta væri orðið gerningur. Enda hlýtur hver maður með nokkurn veginn óbilaða dómgreind að spyrja sjálfan sig hvort þessi ákvörðun var tekin þá nótt eða nokkrum nóttum fyrr. Ef ég hef nokkra hugmynd um hernað, sem ég hef sem betur fer ekki mikla, þó fer ekki hjá því að maður neyðist öðru hverju til að setja sig inn í slíka hluti, þá hélt ég að það kostaði mikla vinnu og langan tíma að skipuleggja aðgerðir sem þessar, að ég tali nú ekki um að safna því sem til

þarf. Þannig að fyrir mér er mörgum spurningum ósvarað í þessu máli. Ég veit ekki hvort það skiptir mig miklu máli að fá svör við þeim. Hver er sekur um hvað? Ég þekki ekki nóg til Arabaríkjanna þó ég hafi reynt að lesa mér nokkuð til, en það er vægast sagt einföldun á staðreyndum að tala um þetta eins og styrjöld milli tveggja manna. Auðvitað hefur hver þjóðarleiðtogi, góður eða vondur, þúsundir og milljónir manna á bak við sig. Fólk sem er af sömu rótum, af sömu menningu, sem er öldungis ólík þeirri menningu sem við höfum alist upp við og við skiljum. Eina leiðin til þess að þetta fólk skilji hvert annað er að menn reyni a.m.k. að setja sig inn í hugsanagang þess.
    Engum hefur orðið tíðrætt hér í ræðum sínum í dag um þá fjármuni sem sóað er í þessi ósköp. Auðæfi jarðarinnar eru að 80% í höndum 20% mannkyns. Vitaskuld snýst þetta stríð ekki frekar en önnur stríð um umhyggju fyrir einni eða neinni þjóð eða nokkru lifandi fólki og það dettur varla nokkrum manni í hug. Þetta stríð er auðvitað háð um hagsmuni, fjárhagslega hagsmuni, eins og allar aðrar styrjaldir. Einhver vitur maður sagði: ,,Ef þeir í Kúvæt ræktuðu gulrætur væri ekkert stríð`` --- og auðvitað er það hárrétt. Þetta stríð er háð um olíu og ég vænti þess að menn gangi út frá því til að byrja með.
    Hér sitja á hinu háa Alþingi hv. þm. sem hafa lagt á sig að vinna með hinum hungraða heimi í Eþíópíu, nægir að nefna hv. 3. þm. Norðurl. e. Það hlýtur að vera skelfilegt fyrir það fólk sem það hefur séð af eigin raun, að horfa á billjónir, billjónir króna, ýmist notaðar í að limlesta og myrða fólk og eyðileggja byggingar, jafnvel mannvirki sem menning þúsunda ára hefur skapað, eða rekast hverjir á aðra uppi í himinhvolfunum engum til gagns, en þó kannski færra fólki til ógagns. Það má kannski hugga sig við það.
    Er það ekki skortur á dómgreind að annað eins og þetta skuli geta átt sér stað? Á meðan stór hluti heimsbyggðarinnar líður skort, lítil börn deyja úr hungri. Ekki einu sinni það er látið nægja. Það þarf líka að sprengja þau í tætlur. Er ekki svolítið hlálegt að hér hafi komið fram í dag að ákveðinn stjórnmálamaður, sem mér er svo sem ekkert kær, Jósef Stalín, hafi verið brjálæðingur? Ég bara spyr: Hver er brjálæðingur og hver ekki? Ég sé ekki að hann hafi verið brjálaðri heldur en svo ótal margir aðrir þjóðarleiðtogar og mig langar ekkert að vera í hópi með þessum mönnum. Ég vil vera stolt af því að vera íslenskur þingmaður, forseti íslensks þjóðþings sem hefur stært sig af því að hafa aldrei borið vopn, aldrei stuðlað að því að þjóðin bæri vopn. Það getur vel verið að menn geti afgreitt svona ræðu með því að segja: Sentímentalt kjaftæði --- eins og ég heyrði sem athugasemd við ræðu hér í dag. Þetta er ekkert ,,sentímental kjaftæði``. Þetta er eitthvert brot af óbilaðri dómgreind. Við höfum setið hér og undirritað, staðfest, leyft staðfestingu á undirrituðum sáttmálum, sem hæstv. utanrrh. hefur lagt fyrir okkur, um mengunarmál til að bjarga náttúru jarðarinnar, um mannréttindi. Sáttmálum sem tryggja föngum sómasamlega meðferð. Kannski það sé svo komið að það sé betra að vera stríðsfangi heldur en almennur borgari. Það er ekki samhengi í þessum hlutum. Og þegar maður hættir að skilja samhengi í sínum eigin gerningi hvað heitir það? Það er að vera brjálæðingur. Þá er maður ekki heill á geðsmunum lengur. Og þegar ég horfi á bófahasarinn sem er hellt yfir þjóðina á hverju kvöldi og hverri nóttu, þá hugsa ég stundum með mér: Hvort er það ég eða einhver annar sem er ekki lengur heill á geðsmunum?
    Því halda menn að það sé einhver tilviljun að þessum stöðvum er leyft að hella heldur einhliða fréttaflutningi yfir alla heimsbyggð? Ég skal taka eitt dæmi, hv. þm.: Ég veit ekki enn þá, og ég held að enginn viti það hér inni á hinu háa Alþingi, hvernig olíumengunin við Persaflóa kom til? Annar aðilinn segir þetta, hinn segir hitt. Þegar Víetnamstyrjöldin var í gangi höfðum við ekki þessa miklu tækni í fréttaflutningi. Við höfðum þó allgóðar fréttir af því sem gerðist. Ég held að fréttir núna séu verri en þær voru þá. Af hverju skyldi það nú vera? Halda menn að þessum stöðvum séu ekki borgaðir peningar fyrir að flytja þessar ritskoðuðu fréttir sínar? Þessi styrjöld er á uppboði, hún er til sölu. Hún er okkur seld fyrir mikla fjármuni. ,,Við erum fyrstir með fréttirnar``, segja menn í fréttamannatóni og ég endurtek spurningu hv. 10. þm. Reykn.: Hvað eiga ungar mæður að segja börnunum sínum?
    Það eru haldnir fundir í skólum landsins þar sem sálfræðingar og félagsfræðingar eru að reyna að koma í veg fyrir varanlegar skemmdir á þessum börnum sem eru hrædd. Auðvitað eru þau hrædd. Þau hafa þetta fyrir augunum. Það er engin leið að hindra að þau horfi á þessi ósköp.
    Nei, ég spyr, hæstv. forseti: Er vit í þessu á nokkurn hátt? Ég fæ ekki séð það og ég get ekki tekið undir með hv. 8. þm. Reykv. að ég sé hreykin af að vera NATO-þjóð. Það mætti kannski minna hv. 8. þm. Reykv. á að NATO-þjóðir höfðu ekkert sérstakar áhyggjur af því sem ein NATO-þjóða
framdi óáreitt og ég nefni Tyrkland. Það hefur nú ekki verið allt í sómanum í þvísa landi. Það þurfti engan til að verja mannréttindi þess fólks. Af hverju skyldi það hafa verið? Það voru ekki mjög miklir fjárhagsmunir í húfi fyrir einn eða neinn. Það fólk var bara myrt og limlest í friði fyrir öllum. ( HBl: Er það gamli stalínistinn sem kominn er í stólinn?) Sumar athugasemdir hv. alþm. geta verið skemmtilegar og áhugaverðar en þessi var ekki ein af þeim. Sá þingmaður sem hér stendur hefur aldrei verið stalínisti og verður aldrei vegna þess að hann fordæmir ofbeldi í hvaða mynd sem er og hvar sem það er framið.
    Ég veit ekki hvar á að byrja að ræða um þessi mál og hvar á að enda. Eitt veit ég, að þjóðir heims eiga aðeins einn kost ef menn ætla að verja það eina sem þeir eiga, sína eigin dómgreind. Það er að taka höndum saman og stöðva þessa styrjöld, stöðva hana hér og nú. Vegna þess að eitt skal ég segja ykkur, hv. þm. og hæstv. forseti. Þessi styrjöld verður ekki unnin. Það er ekki hægt að vinna hana. Það munu hins

vegar allir bíða ómælt tjón á náttúru heimsins, með týndum mannslífum, með menningarverðmætum sem aldrei verður hægt að bæta, með því hatri sem hlýtur að verða árangur af slíkum átökum, hatri sem engin leið er að uppræta, eins og hv. 16. þm. Reykv. tók dæmi um áðan, vegna þess að það er nú einu sinni svo með manneskjuna og þeirrar spurningar hljótum við öll að hafa spurt okkur: Hvernig bregðumst við við ef börnin okkar eru myrt af erlendum árásarher? Ég er ekki svo fullkomin. Ég hygg að ég færi að hata og ég veit ekki hvort hatrið yrði upprætt úr huga mínum.
    Ég vona að við hér þurfum aldrei að standa frammi fyrir þessari spurningu. En annað fólk er ekkert öðruvísi en við jafnvel þótt það sé runnið upp úr ólíkri menningu og sé af öðrum rótum. Það á nákvæmlega sama rétt og við. Og ég bið þess vegna hæstv. ríkisstjórn og hv. alþm. að hætta að tala um hertæknileg atriði hér á hinu háa þingi eða einstakar greinar í þessum og þessum samningum sem því miður sýnast ekki hafa neitt gildi lengur. Það sem hér er um að ræða er að Íslendingar vilja frið í heiminum. Þeir vilja ekki taka þátt í því að leysa vandamál með því að myrða allt sem fyrir verður. Það er þetta sem skiptir hér máli og Íslendingar eiga ekki að vera til viðtals um neitt annað.
    Ég vil ítreka það sem hér hefur áður komið fram. Við höfum staðið saman um að verja rétt smáþjóða hér í nánd við okkur þegar stórveldi ryðst inn á þær með ofbeldi þótt ólíku sé saman að jafna við þau ósköp sem hér er verið að tala um. Ég vona að hv. Alþingi geti verið jafnsamstiga um þetta mál og leggi sitt litla lóð, sem því miður er allt of lítið og menn hafa nú kannski stundum miklað fyrir sér, en þó sitt litla lóð á þá vogarskál að mótmæla þessum skelfilegu athöfnum sem fara fram nú við Persaflóa.