Salome Þorkelsdóttir :
Hæstv. forseti. Ég hafði ekki talið ástæðu til að fara inn í þessa þingskapaumræðu um væntanlegan kjördag af þeirri einföldu ástæðu að varaformaður þingflokks Sjálfstfl. hefur talað fyrir hönd þess þingflokks hér og ég hef ekkert við það að athuga sem fram hefur komið varðandi kjördaginn í hans máli. En vegna þess að hv. 3. þm. Vestf. beindi beinlínis spurningum til hvers einstaks þingmanns Sjálfstfl. hér í þessari hv. deild þá finnst mér rétt að koma hér upp og staðfesta það sem varaformaður þingflokksins hefur sagt um kjördaginn varðandi það sem snýr að mér. Aðrir svara fyrir sig.
Ég get staðfest það að þessi mál hafa verið rædd í þingflokknum og auðvitað hljóta að vera þar mismunandi viðhorf í þessu máli eins og öðrum, eins og reyndar hefur komið hér fram hjá hv. 3. þm. Norðurl. v. sem er ekki sammála niðurstöðu ráðherra Framsfl. í þessu máli. Það hefur komið fram hjá hv. 3. þm. Vestf. að í þingflokki Alþfl. eru ekki allir sammála þar sem hann hefur lýst sig hafa aðra skoðun heldur en aðrir þingmenn þó við höfum nú reyndar ekki heyrt viðhorf fleiri alþýðuflokksþingmanna heldur en hans eins. En hann hefur marglýst því yfir að hann sé nú með frítt spil á hv. Alþingi og taki afstöðu til hinna einstöku mála eftir sinni eigin sannfæringu en fari ekki endilega eftir niðurstöðum Alþfl. eða vilja þingflokksins ef hann er ekki sammála þeim. Ef ég fer hér með rangt mál þá hef ég misskilið hans mörgu ágætu ræður í þeim efnum hér á hv. Alþingi og þá leiðréttir hann það að sjálfsögðu. En það sem hér hefur komið fram, m.a. hjá honum og sem ég held að ráði hans viðhorfum, er það að hann kemur úr því sem við köllum dreifbýlinu, utan af landsbyggðinni og telur að kjördagur 20. apríl geti orðið til þess að skapa vandamál vegna veðurfarsins. Og það sama skilst mér að ráði viðhorfum hv. 3. þm. Norðurl. v. Hann kemur líka utan af landsbyggðinni og þess vegna beindi hann sínum spurningum til hv. 4. þm. Vestf. sem hann væntir að komi nú úr þingflokki sjálfstæðismanna og staðfesti þar með að þar séu ekki allir á sama máli af því að hann veit að hann kemur utan af landsbyggðinni, sama byggðarlagi og hv. 3. þm. Vestf. Þetta er ósköp eðlilegt og þessi viðhorf finnst mér vera í sjálfu sér mjög eðlileg.
En þá skulum við ekki gleyma því að hér í eina tíð þótti það eðlilegt og sjálfsagt að sveitarstjórnarkosningar í dreifbýlishreppum færu fram síðustu helgina í júní vegna ýmissa aðstæðna, m.a. veðurfars úti á landi og vegna þess að mestu annir við vorverkin
eru á þeim tíma sem kosningar í þéttbýli fóru fram, í maí. Þetta er allt mjög eðlilegt. En það er líka annað sem við megum núna taka inn í þetta dæmi og nefna, að við getum ekkert treyst á veðurfarið lengur. Sú breyting veðurfarslega séð hefur orðið á jarðarkringlunni eins og hún leggur sig að við höfum ekki hugmynd um hvort það verður fært eða ófært í apríl, maí eða júní. Við sjáum bara hvað er að gerast. Ég gæti trúað því að það sé núna ökufært víða um land,
að menn komist landleiðina jafnvel norður á Kópasker. Ég skal nú ekki taka svona stórt upp í mig, a.m.k. hafa þann fyrirvara á að ég hef ekki heyrt fréttir um slíkt. En ég held að við getum á engan hátt dagsett veðurfarið lengur, hvorki hér á Íslandi eða annars staðar í veröldinni. Þetta vitum við að eru staðreyndir sem við megum líka taka með í reikninginn. Mér er það minnisstætt að þegar ég kom fyrst inn á Alþingi eftir kosningar sem fóru fram 3. og 4. des., þá blessaðist það. Það var gert ráð fyrir tveimur dögum vegna þess að það gæti verið ófært víða um land. Mig minnir að hv. 3. þm. Norðurl. v. hafi þá líka sest fyrst á Alþingi, jú, það mun vera rétt, hann gefur mér merki um það. Svo að við höfum bæði þær endurminningar um okkar fyrstu kosningar að þær voru í desember og það gekk upp. (Gripið fram í.) Við vorum heppin þá án þess að vita það fyrir fram. Það þótti djarft.
Ríkisstjórnin lét, eins og hér hefur komið fram, sér detta í hug að láta kjósa núna í janúar og eins og kom fram í máli hv. 2. þm. Norðurl. e. var víst ágætt veður þá helgi sem hæstv. forsrh. lét sér detta í hug að láta kjósa, 7. janúar, en ráðherrann vissi ekki fyrir fram að það mundi verða gott veður. ( KP: Hann hætti við það.) Hann ræður ekki öllu. Hann missti kjarkinn og hætti við það.
Ég vona að ég hafi nú svarað þessari spurningu sem hv. 3. þm. Vestf. beindi til mín, þ.e. hvort ég hafi verið sátt við þá niðurstöðu sem þingflokkur Sjálfstfl. komst að. Nú hef ég lýst því yfir hér úr þessum ræðustóli að ég hafi verið sátt við niðurstöðu þingflokksins. Hins vegar vil ég taka það fram að ég hef ekki hugmynd um hvernig umræðurnar hafa verið á þessum fundum þar sem menn hafa verið að ræða þessi mál og semja um þau og hve mikil harka hefur verið í þeim umræðum. Það mætti skilja það sem svo að fulltrúi Sjálfstfl. hafi sett öðrum stólinn fyrir dyrnar, sem ég stórefast um að hann hafi gert. En ég er sátt við þessa niðurstöðu.