Kjördagur
Þriðjudaginn 29. janúar 1991


     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson) :
    Virðulegur forseti. Þetta hefur nú á margan hátt verið fróðleg og gagnleg umræða um þessi mál. Ég get verið sammála hv. 2. þm. Norðurl. e. um að það er að sjálfsögðu ekki æskilegt að þingmenn missi umboð sitt. Og ég get verið sammála honum um að það er nauðsynlegt að taka á þessu atriði í stjórnarskránni þannig að hér leiki enginn vafi á. Og það ætti að sjálfsögðu að gera við breytingu á stjórnarskránni.
    En það er tvennt sem verður að hafa í huga í þessu efni. Annað er það að kjörtímabilið er fjögur ár og hitt er það að það er nauðsynlegt að velja kjördag, reglulegan, almennan kjördag, sem hentar sem best aðstæðum í landinu. Það var gert með kosningalagabreytingunni 1987 og ég minnist þess vel þegar um hana var rætt. Þá var talað um samgöngur og breytingar þær sem orðið höfðu í samfélaginu. Og það væri nauðsynlegt með tilliti til þess að færa kjördaginn fram. En það þótti of langt gengið að hafa það síðasta laugardag í apríl og það þótti of langt gengið að hafa það fyrsta laugardag í maí og niðurstaðan varð sú að það skyldi verða annar laugardagur í maí. Ég fæ ekki skilið hvers vegna í ósköpunum Sjálfstfl. vill ekki fallast á þennan reglulega kjördag. ( HBl: Það er ekki heimilt.) Það er heimilt, hv. þm. Ég hef hér stuðst við álit Ólafs Jóhannessonar, bæði í bók hans um stjórnskipun Íslands og líka í ummælum hans á Alþingi 1971 þegar þessi mál voru rædd. Þar var enginn sem dró það í efa að hér væri ekki um stjórnarskrárbrot að ræða. Það má vel vera að það beri ekki að taka mark á þessum aðilum eins og hv. þm. Halldór Blöndal heldur hér fram. Það má vel vera að það eigi ekki að taka mark á þeim álitum sem ég hef hér lesið upp. En það hlýtur að vera æskilegt og eðlilegt að það sé ákveðinn reglulegur, almennur kjördagur sem miðað er við. Og hv. þm. svaraði ekki þeirri spurningu hvenær hann telur að þær aðstæður gætu komið að inn á slíkan dag væri farið. (Gripið fram í.) Það var ekki nóg fyrir hv. þm. að hafa vilja Alþingis í þessu efni og það er mjög miður.
    Ég ítreka það að það er almennur vilji fyrir því hér á Alþingi að 11. maí verði næsti kjördagur. Það hefur verið staðfest hér og ég hef skilið það svo að það væri alveg ófrávíkjanlegt af hálfu Sjálfstfl. að ef kjördagur yrði 11. maí, þá yrði það með miklum ágreiningi við þann flokk. Hins vegar gæti það verið ágreiningslaust ef það yrði 27. apríl, þ.e. að þingmenn væru umboðslausir í tvo daga. Það væri alveg ágreiningslaust af þeirra hálfu og það fáum við ekki skilið. En til þess að þetta sé nú alveg ljóst og ríkisstjórnin sýni samstarfsvilja sinn nú sem fyrr, þá vildi ríkisstjórnin velja 20. apríl. En ég ítreka þá skoðun að ríkisstjórnin og stuðningsflokkar hennar eru almennt á því, og ég veit ekki betur en það sé nokkurn veginn undantekningarlaust og um það full samstaða í þingflokkunum og hér hafa tveir þingmenn, bæði frá Alþfl. og Framsfl., lýst þeim vilja, að kjördagurinn verði 11. maí. En við viljum ekki að um þetta sé mikill ágreiningur og höfum því fallist á að breyta þessari afstöðu.