Salome Þorkelsdóttir :
Hæstv. forseti. Þessi þingskapaumræða hefur nú staðið hér í líklega rúma tvo klukkutíma og út af fyrir sig er það ágætt að fá tækifæri til þess að ræða og skiptast á skoðunum um þetta mál, sem skiptir okkur nú ekki litlu, þó að mér finnist sumir hv. þm. hafa orðið ansi tilfinningaríkir í sinni tjáningu um afstöðu Sjálfstfl. Þá hef ég í huga hv. 3. þm. Norðurl. v. Hann flutti hér framboðsræðu áðan fyrir Framsfl. og ekki síst fyrir hæstv. sjútvrh. og notaði ansi sterk orð um þessa gífurlegu hörku Sjálfstfl. í afstöðu til kjördagsins, eins og hann orðaði það, og nafngreindi mig sem annan af þeim sem hefðu líklega þá verið að sýna þessa gífurlegu hörku í kröfunni um þennan kjördag. Ég verð nú að segja það að ég minnist þess ekki að ég hafi beitt einhverri gífurlegri hörku í mínum málflutningi hér áðan vegna þess að ég kom hér upp að áeggjan hv. 3. þm. Vestf. Hann beindi spurningum persónulega til okkar þingmanna Sjálfstfl. hér í hv. Ed. og það sem ég gerði var að staðfesta það að þetta mál hefði verið rætt í þingflokknum og þar væru að sjálfsögðu ýmis sjónarmið uppi, eins og í öðrum þingflokkum, en formaður þingflokksins hefði farið með sitt umboð með vitund þingflokksins. Ég get nú ekki alveg fundið hvaða gífurlega harka og gífurlega krafa felst í þessu svari mínu.
En það er annað sem mér finnst eiginlega vera ástæða til að vekja athygli á. Ég er ekki sammála landsbyggðarþingmönnum um að það skuli þurfa kosningar til þess að fólkið úti á landsbyggðinni eigi kröfu á því að hafa samgöngurnar í lagi og það geti komist á milli staða til sinna brýnu ferða, sem geta verið margvíslegar, og ekki endilega að það sé bara vegna þess að þingmenn þurfi að komast um kjördæmið eða fólk að komast á kjörstað til að kjósa til Alþingis, að þá þurfi að rjúka upp til handa og fóta og fara að moka vegi. Ég er ekki sammála þessu. Þingmenn landsbyggðarkjördæmanna hljóta að gera þá kröfu að samgöngur séu alltaf svo greiðar og góðar að fólk geti komist á milli staða þegar því liggur á, en ekki bara þegar þingmönnum þóknast að ferðast um kjördæmið eða að koma mönnum á kjörstað. ( StG: Við erum of fáir til þess, þingmaður góður.) Þingmenn landsbyggðarinnar eru fleiri á hv. Alþingi heldur en þingmenn suðvesturhornsins. Því getum við flett upp og talið það. Og þarna skeikar nú aldeilis hjá hv. 3. þm. Norðurl. v. ( StG: Þú ættir að fara út á land.) Ég hef oft farið út á land og ég verð að segja það alveg eins og er að ég bý nú ekki nema 23 km frá Reykjavík, en ég lendi oft í því að komast ekki ferða minna alveg eins og landsbyggðarþingmennirnir þannig að ég hef góða tilfinningu fyrir hvað greiðar og góðar samgöngur geta skipt miklu máli. Og ég vildi bara hvetja hv. 3. þm. Norðurl. v. til að heimsækja mig einhvern tíma þegar snjóar og athuga hvort ég er ekki að fara með rétt mál. En þá þarf hann að koma upp í dalinn minn þar sem ég bý. Það er ekki nóg að fara bara niður í miðbæinn í Mosfellsbæ. Ég ráðlegg honum það, enda eru almenningssamgöngur
þannig í mínu byggðarlagi, Mosfellsbæ, að það eru ekki nema fjórar áætlunarferðir á dag eins og úti á landi. ( StG: Það er ein ferð á dag.) Sums staðar. Það er misjafnt.
Það var aðeins þetta sem ég vildi vekja athygli á, að ég tel að fólkið úti á landi eigi kröfu á greiðum og góðum samgöngum þó að það séu engar kosningar. Og ef þær eru í lagi, þá skiptir ekki máli þó að það verði kosningar í apríl eða maí. Það er kannski meginmálið.
Þessi fréttatilkynning vekur athygli mína vegna þess að í upphafi er sagt, með leyfi hæstv. forseta: ,,Í samræmi við lög um kosningar til Alþingis, nr. 80 16. okt. 1987, hefur ríkisstjórnin gert ráð fyrir að kjördagur yrði annar laugardagur í maí. Sú niðurstaða var kynnt formönnum þingflokkanna í október sl. og aftur rædd á sameiginlegum fundi sl. föstudag.`` En síðan er niðurlagið: ,,Því hefur ríkisstjórnin í von um samstöðu ákveðið að kjördagur verði 20. apríl 1991.`` Það kom hins vegar hér fram í máli hæstv. ráðherra áðan, sem hlýtur líka að vera rétt, að þeir ákveða þetta ekki. Það hlýtur að vera Alþingi sem ákveður. En það er ósamræmi í upphafinu og í niðurstöðu tilkynningarinnar að mínu mati hvað þetta varðar.
Varðandi það sem sá ágæti þm., hv. 3. þm. Vestf., leiðrétti hér áðan, að ég hefði talað um frítt spil og hann hafi aldrei talað um að hann hefði frítt spil hér á Alþingi, þá skýrði ég nú fyrir honum hvað ég ætti við. Ég get endurtekið það. Ég átti nákvæmlega við það sem hann sjálfur sagði þegar ég talaði um að hann teldi sig hafa frítt spil á Alþingi.