Kjördagur
Þriðjudaginn 29. janúar 1991


     Halldór Blöndal :
    Hæstv. forseti. Það er út af þeim áminningarorðum sem hæstv. sjútvrh. lét falla í minn garð af því að ég talaði um að þingmenn bæru ekki virðingu fyrir sjálfum sér. Í fréttatilkynningu forsrh., sem hann er staðgengill fyrir, segir: ,,Þótt ekki sé að finna nein ákvæði í stjórnarskrá eða lögum sem krefjast þess að kosið sé til Alþingis innan fjögurra ára og fordæmin um að landið sé án þings séu mörg er ríkisstjórninni kappsmál að samstaða geti orðið um kjördag.``
    Hér er það sagt berum orðum að það stendur til að leggja þingið niður. Ég kannast að vísu ekki við að fordæmin fyrir því að landið sé án þings séu mörg. Og það er hreinn útúrsnúningur hjá þeim stjórnarsinnum, sem hér hafa talað, að þingmenn missi umboð sitt ef kosið er sama laugardag í mánuði á fjögurra ára fresti, þá missi þeir umboð sitt. Þetta er alger útúrsnúningur og hefur hvergi verið um það talað en hentar í einhverjum ruglingslegum málflutningi nú um stjórnarskrá og kosningalög að vera að halda slíku til streitu. Það er auðvitað alveg fyrir neðan virðingu þeirra sem um þetta mál fjalla.
    Deilan er ósköp einföld. Um hvað er deilt? Deilan stendur um hvaða þýðingu það hafi þegar stendur í stjórnarskrá að alþingismenn séu kjörnir til fjögurra ára. Allir sem hér hafa tekið til máls eru sammála um að alþingismenn geta ekki framlengt umboð sitt með almennum lögum. Um það eru allir sammála, hver einasti maður sem til máls hefur tekið. Þá eru sumir þingmenn sem halda því fram að Alþingi geti með almennum lögum gefið ríkisstjórn umboð til þess að leggja Alþingi niður svo og svo lengi. Hvar stendur að það sé heimilt?
    Maímánuður frá upphafi til enda hefur liðið fjórum sinnum frá síðustu alþingiskosningum. Ef við hefðum tekið mark á lögum um kosningar til Alþingis hefðu alþingiskosningar verið annan laugardaginn í maí 1990. Þetta er alveg augljóst. Það var fjórði laugardagurinn frá síðustu alþingiskosningum. Ég man ekki eftir að einn einasti þingmaður hafi haft neina löngun til þess að fara í kosningar þá og ég held að það hafi verið alveg fullkomin samstaða um það hér á þinginu að láta þennan almenna kjördag líða. Og enginn var að hugsa um það þá að veðrið yrði kannski vont í apríl á næsta ári. Þá leið fjórði maímánuður. Hæstv. sjútvrh. hefur ekki viljað ræða þetta mál efnislega á þeim grundvelli. Hann var nú í svo góðu skapi, menntmrh., að það var ekki von að hann myndi eftir því í flýtinum, en hæstv. sjútvrh. hefur ekki komið að þessu efnislega.
    Ég hef talað og vakið athygli á þeirri hliðstæðu sem er um kjörtímabil forseta Íslands. Ég vil líka rifja upp að þegar verið var að undirbúa þau kosningalög sem nú eru í gildi, stjórnarskrárákvæðin, fyrir alþingiskosningarnar 1963, var efnt til mikils fundar í Þórshamri og þar kom fram að einstakir lögfræðingar voru ekki allir sammála um hvernig bæri að skilja ákvæði stjórnarskrárinnar og hvaða samhengi væri á milli þeirra ákvæða og almennra laga um kosningar til Alþingis. Sumir virtir prófessorar í lögfræði voru sömu skoðunar og ég er nú. Ég man ekki hvort fyrir liggur skriflegt álit frá þeim mönnum hér í hirslum þingsins. Ég mun athuga það. En það er auðvitað misskilningur hjá hæstv. menntmrh. ef hann heldur að ég sé búinn að gleyma þeim fundum sem við áttum þá saman í Þórshamri um þessi mál og honum er auðvitað jafnkunnugt um það og mér að allir lögfræðingar á Íslandi taka ekki undir það álit að þingið geti framlengt líf ríkisstjórnar með einfaldri breytingu á kosningalögum. Málið hangir ekki þannig saman.
    Ég held að það sé alveg ljóst að um þetta er efniságreiningur. Tveir ráðherrar og einhverjir þingmenn hafa risið hér upp og lýst því yfir að þeir telji ekkert athugavert við það að vera sendir heim, hinir óbreyttu þingmenn, og ég segi að það sé lítil virðing fyrir þinginu og starfi sínu hér að geta fallist á það að Alþingi sé lagt niður einn einasta dag. Og ég endurtek það, hæstv. sjútvrh., að ég tel að sá þingmaður beri ekki mikla virðingu fyrir sjálfum sér og þeirri stofnun sem hann var kjörinn til ef hann getur fallist á að Alþingi sé lagt niður einn einasta dag. Það er ekki til í minni pólitísku orðabók að landið geti verið án þings. Það er ekki til í minni orðabók og þýðir ekkert um það að ræða. Ef að því er fundið verður bara að hafa það. Ég er allt of mikill þingræðissinni til þess að ég geti fallist á slíkt.
    Hinu svaraði ekki hæstv. ráðherra ef þingið yrði lagt niður. Í hvaða umboði ætlaði hann að starfa þá? Umboði sjálfs sín, ekki í umboði þingsins og ekki í umboði þjóðarinnar því að þjóðin gaf honum umboð til að vera ráðherra fyrir hönd þjóðarinnar. Hann getur því ekki skírskotað til neinna annarra en sjálfs sín í þeim efnum. Og slíkir ráðherrar sem telja sig hafa mátt og afl til þess eru sannarlega ekki í mínu uppáhaldi þegar ég tala um þingræðið almennt, lýðræðið í landinu, sögu þingræðis á Íslandi, þegar ég minnist manns eins og Jóns Sigurðssonar og þegar ég tala um þá baráttu sem við háðum á sinni tíð við erlent vald og við framkvæmdarvaldið hér á landi einnig. Við erum umboðsaðilar fyrir þjóðina, þjóðkjörnir fulltrúar, og við föllumst ekki á það að einhverjir menn, hvort sem við erum 5, 7, 11, 12 eða 13 geti bara sagt við okkur: Farið þið heim. Við ætlum að hafa kosningar þegar okkur sýnist. Það föllumst við ekki á. Og um það verður ágreiningur.
    Það má vel vera að orð mín hér í deildinni valdi því að kosningar verði ekki 20. apríl. Hæstv. sjútvrh. gerir því skóna. Það getur vel verið að orð mín verði til þess að þing verði ekki rofið þar sem ekki náist fram að samþykkja frv. til nýrra laga um stjórnarskrá. Það er auðvitað forsrh. sem rýfur þingið, það þarf enga samþykkt þingsins ef forsh. rýfur þingið. Það er mikill misskilningur. Það má vel vera að orð hans hafi boðað það að vel mætti vera að frv. til laga um stjórnarskrá verði ekki lagt fram, einhver kengur sé kominn í það mál, það veit ég ekki um, eða að Framsfl. ætli sér að reyna að hindra að slíkt frv. nái fram að ganga. Það er talað þannig hér. En ég mun nú samt leyfa mér að eiga von á því að menn reyni

að standa við það samkomulag sem gert var um að samþykkja frv. um breytingar á stjórnarskránni. Og þá er það stjórnarskrárákvæði að forsrh. ber að rjúfa þingið þegar í stað og lög um kosningar til Alþingis skipta undir þeim kringumstæðum ekki máli.
    Hitt álitaefnið, ef svo fer að alþingismenn geta auðvitað ekki með því að vera sjálfum sér sundurþykkir framlengt sitt umboð. Það er mikið íhugunarefni hvernig bregðast skuli við ef framkvæmdarvaldið lætur undir höfuð leggjast að efna til kosninga þegar því ber að gera það samkvæmt stjórnarskránni. Það er álitamál.
    Að síðustu vil ég aðeins segja að allir eru sammála um að það sé ólýðræðislegt, ég álít að það sé óheimilt samkvæmt stjórnarskrá, aðrir segja að það sé ólýðræðislegt að leggja þingið niður. Og þá held ég að sé best að vera ekki að gera það, það sé niðurstaðan.
    Að síðustu þetta: Eins og ég sagði í mínum fyrri ræðum, það er auðvitað lágmark að þetta þing komi sér saman um það, um leið og stjórnarskránni er breytt, hvernig standa skuli að kosningum, hversu langt kjörtímabil sé og geri þá drauma einstakra ráðherra að engu að þeir geti sent þingið heim og stjórnað í valdi og umboði sjálfs sín.