Lánskjör og ávöxtun sparifjár
Þriðjudaginn 29. janúar 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Forseti vill láta þess getið að leitað hafði verið eftir því að hæstv. viðskrh. gæti verið viðstaddur þessa umræðu en þar sem hann er á förum úr landi getur ekki orðið af því að hann verði hér í hv. deild í dag. Hins vegar mun forseti að ósk hv. 1. flm. gera ráðstafanir til þess að hæstv. forsrh., nema hann sé einnig á förum úr landi sem er mjög líklegt því að báðir munu ætla að verða viðstaddir útför Ólafs Noregskonungs. ( Utanrrh.: Báðir farnir.) Báðir farnir, segir hæstv. utanrrh. Ég vil því spyrja hv. 3. þm. Suðurl. hvort hann kjósi að mæla fyrir máli sínu við þær aðstæður, sem ég hef nú gert grein fyrir, að hvorki hæstv. forsrh. né hæstv. viðskrh. geta verið viðstaddir þessa umræðu hér í dag.