Matthías Bjarnason :
Herra forseti. Ég greiddi ekki atkvæði áðan við handauppréttingu, ekki vegna þess að ég sé ekki sammála því að vísa málinu til 2. umr. og nefndar heldur vildi ég gjarnan að það væri knúið fram hér nafnakall sem sýndi það að þegar er ætlun ríkisstjórnarinnar að ljúka þingi innan tiltölulega skamms tíma, þá mætir stjórnarliðið ekki betur en svo að það getur ekki einu sinni komið sínum eigin afkvæmum til 2. umr. og nefndar. Þetta sýnir algjört viljaleysi þessara stjórnarsinna sem hafa ráðið hér ríkjum þetta kjörtímabil og sýnir mjög glöggt að það sé kominn tími til að hvíla þetta lið. Ég segi já við að vísa þessu frv. til 2. umr.