Lánskjör og ávöxtun sparifjár
Þriðjudaginn 29. janúar 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Vegna orða hv. 1. þm. Vestf. verður forseti að vísa því algjörlega á bug að hann hafi mismunað hér við atkvæðagreiðslur frumvörpum ríkisstjórnarinnar og þingmanna. Þetta er fjarstæða. (Gripið fram í.) Á dagskrá þessa fundar í dag var gengið frá og afgreitt með atkvæðagreiðslu til nefnda tvö þingmannafrumvörp og eitt stjórnarfrumvarp. Forseti vill benda á þetta. Auk þess hafa þingmannafrumvörp gengið hér í gegn á færibandi eins og önnur frumvörp og forseti hefur ekki greint þar á milli hvort það hafa verið stjórnarfrumvörp eða þingmannafrumvörp. Það geta hv. þingdeildarmenn borið vitni um og ég vona að þeir geri það ef þessi umræða verður lengri.