Lánskjör og ávöxtun sparifjár
Þriðjudaginn 29. janúar 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Forseti ætlar nú að fullnægja réttlætiskennd sinni og fresta þessari umræðu og sjá til þess að hún verði eigi tekin upp á ný fyrr en hæstv. ráðherrar geta verið viðstaddir umræðuna. Forseti telur þetta það mikilvæga umræðu að henni verði ekki haldið áfram nema að viðstöddum hæstv. ráðherrum sem hér þurfa að svara ýmsum spurningum sem til þeirra hefur verið beint.