Kristín Einarsdóttir :
Virðulegur forseti. Hæstv. menntmrh. talaði hér áðan eins og hann hefði ekki komið nálægt þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að skerða tekjustofna Ríkisútvarpsins við afgreiðslu fjárlaga. ( Menntmrh.: Það er nú rangt, hv. þm. Ég sagði: Við höfum hér á Alþingi. Þingmaðurinn hefur greinilega ekki viljað heyra.) Hæstv. menntmrh. sagði: ,,Við höfum hér á Alþingi tekið þátt í að`` ... Mér finnst það hljóma eins og hann hafi ekki komið nálægt þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja fram fjárlagafrv., að það hafi verið nánast eins og Alþingi hafi þröngvað ríkisstjórninni til að taka þá ákvörðun að skerða tekjustofna Ríkisútvarpsins. Ég vil taka það fram að Kvennalistinn hefur aldrei stutt það. Ég er ekki að segja að þessi ríkisstjórn hafi ein staðið að því að skerða tekjustofna Ríkisútvarpsins. Það hafa margir ríkisstjórnir gert undanfarið. En ég þori að fullyrða að við nánast hver fjárlög og lánsfjárlög á Alþingi síðan Kvennalistinn kom á þing höfum við flutt brtt. við lánsfjárlög til þess að Ríkisútvarpið gæti notið þeirra tekjustofna sem því eru ætlaðir skv. lögum. Mér finnst það verða að koma fram og það eigi ekki að tala þannig hér eins og þetta sé nýtt vandamál. Við erum nýbúin að samþykkja fjárlög hér á Alþingi. Það er alveg rétt að það var ekki með öllum greiddum atkvæðum heldur var það meiri hluti sem studdi ríkisstjórnina sem samþykkti þau. Það verður líka að koma fram en ekki tala eins og þetta sé eitthvað sem menntmrh. hafi verið þröngvað sérstaklega til að gera af hálfu Alþingis.