Málefni fatlaðra
Fimmtudaginn 31. janúar 1991


     Fyrirspyrjandi (Danfríður Skarphéðinsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Lög um málefni fatlaðra sem öðluðust gildi 1983 voru viðamikil og mjög mikilvæg fyrir fatlaða, en í 1. gr. þeirra segir, með leyfi forseta, að markmiðið sé ,,að tryggja fötluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör við aðra þjóðfélagsþegna og skapa þeim skilyrði til að lifa eðlilegu lífi og hasla sér völl í samfélaginu þar sem þeim vegnar best``.
    Lögin eru ekki ýkja gömul, en þó hefur orðið mikil þróun í málefnum fatlaðra og hugmyndir fólks um hvernig þeir geta sem best orðið raunverulegir þátttakendur í þjóðfélaginu hafa breyst, svo og skoðanir á mikilvægum þáttum eins og t.d. stofnunum og öðrum sérúrræðum fyrir fatlaða. Þrátt fyrir lögin er enn langt í land með að fatlaðir njóti jafnréttis eða hafi í raun getað aðlagast þjóðfélaginu. Öll þekkjum við atvinnuvanda fatlaðra, lág laun þeirra, skort á húsnæði og enn skortir mikið á að aðgengi sé með þeim hætti að viðunandi sé. En þrátt fyrir þetta hefur merkum áföngum verið náð til þess að skapa fötluðum betri skilyrði í samfélaginu. Þar má nefna t.d. sambýli, verndaða vinnustaði og dagvist. Í grannlöndunum er verið að vinna að ýmsum mikilvægum málum með það að markmiði að gera fötluðum enn betur kleift að taka þátt í samfélaginu og t.d. er nú stefnt að því í Noregi að leggja niður allar stofnanir fyrir fatlaða. Verður fróðlegt fyrir okkur Íslendinga að fylgjast með hvernig sú þróun gengur fyrir sig.
    Eins og ég minntist á hefur orðið töluverð breyting á skoðunum fólks og hugmyndum um málefni fatlaðra á þessum tíma sem lögin hafa verið í gildi og haustið 1989 var skipuð nefnd stjórnarflokkanna, fulltrúa sveitarfélaga og hagsmunaaðila til þess að endurskoða lögin og þar sem ég tel brýnt að sem fyrst verði lokið þeirri endurskoðun hef ég leyft mér á þskj. 517 að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. félmrh. hvað líði störfum nefndarinnar og hvenær megi vænta þess að frumvarp líti dagsins ljós.