Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Í desember 1989 skipaði ég nefnd til að endurskoða lög um málefni fatlaðra. Verkefni nefndarinnar var að leggja mat á framkvæmd laga um málefni fatlaðra og var óskað greinargerðar um þá úttekt eigi síðar en í maí 1990. Jafnframt var nefndinni falið að leggja fram tillögur um úrbætur og lagabreytingar.
Í þessari nefnd eiga sæti m.a. fulltrúar stjórnarflokkanna, fulltrúar samtaka fatlaðra og Sambands ísl. sveitarfélaga. Nefndin skilaði áfangaskýrslu sl. vor eins og ráð hafði verið fyrir gert.
Í skýrslunni kom fram að einhugur var um að tímabært væri að gera á lögunum breytingar. Raunar átti það sjónarmið fylgi að fagna innan nefndarinnar að æskilegt væri að sérlög um málefni fatlaðra væru óþörf og kveðið væri á um málefni fatlaðra í heildarlöggjöf í félagsmálum sem tæki til almennrar félagsþjónustu landsmanna. Nefndarmenn voru þó sammála um að forsendur væru ekki enn þá fyrir hendi til að svo megi verða nú. Frumvarp um félagsþjónustu sveitarfélaga er að mati nefndarinnar fyrsta skrefið í átt til heildstæðrar félagsmálalöggjafar. Verði það að lögum væri lagður grunnur að almennri félagsþjónustu sem næði til allra landsmanna. Ljóst er þó að nokkur tími mun líða þar til því markmiði er náð. Það er mat nefndarinnar að þangað til sé óhjákvæmilegt að sérlög gildi sem tryggi hag fatlaðra.
Nefndin hófst handa um endurskoðun laganna í kjölfar úttektarinnar á framkvæmd laganna og er sú vinna nú á lokastigi. Það er von mín að unnt verði að leggja fyrir þetta þing frumvarp að nýjum lögum um málefni fatlaðra. Ekki er þó ljóst á þessari stundu hvort unnt verði að leggja frumvarpið nógu tímanlega fram á Alþingi svo að hægt verði að afgreiða það fyrir þingslit.
Það hefur skapað nokkra óvissu um endurskoðun laganna hver afdrif frumvarps um félagsþjónustu sveitarfélaga verði. Mikill áhugi er á því innan nefndarinnar að auka verulega hlutverk og ábyrgð sveitarfélaganna í þjónustu við fatlaða. Þetta sjónarmið á nú verulegu fylgi að fagna hjá hagsmunasamtökum og félögum fatlaðra og hafa heildarsamtök þeirra, svo og einstök félög fatlaðra ályktað í þeim málum að undanförnu. Verði frumvarp um félagsþjónustu sveitarfélaga að lögum er trúlega unnt að ganga lengra fram í því að flytja verkefni á sviði málefna fatlaðra til sveitarfélaganna en ella væri. Það er þó skoðun nefndarinnar að ekki sé tímabært að sveitarfélögin taki yfir alla þjónustu við fatlaða, m.a vegna þess hve veikburða hin almenna félagsþjónusta í landinu er að mörgu leyti. Aftur á móti kynni að koma til álita að heimila í lögum að stærri sveitarfélög og byggðasamlög önnuðust þjónustu við fatlaða í sínu umdæmi að hluta til eða að öllu leyti. Talið er æskilegt að stefna að því að sveitarfélög yfirtaki sem mest af þjónustu við fatlaða af svæðisstjórnum og að kveða á um slíkt markmið við endurskoðun laganna. Í því tilviki væri kveðið á um aðlögunartíma og tilflutning verkefna til sveitarfélaga í áföngum eftir því sem almennri félagsþjónustu þeirra vex ásmegin. Fyrst í stað yrði um að ræða verkefni á sviði stoðþjónustu, t.d. atvinnuleit, stuðningsfjölskyldur, fjárhagsaðstoð, sem yrði viðameiri þegar á aðlögunartímann liði.
Ég sé ekki ástæðu til þess að rekja hér einstök atriði í þessu frumvarpi, enda ekki um það spurt, en ég vil þó segja að það er mjög góð samstaða í þessari nefnd um þær tillögur sem þar eru á borðum varðandi endurskoðun laganna og því vænti ég að ég geti nú fljótlega lagt fyrir þetta þing frumvarp til laga sem nefndin hefur nú unnið að um nokkurn tíma og vonandi verður hægt að leggja það nægilega tímanlega fram þannig að það geti orðið að lögum á þessu þingi.