Sala á veiðiheimildum
Fimmtudaginn 31. janúar 1991


     Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson) :
    Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 522 að koma fram með fsp. til hæstv. sjútvrh. um sölu á veiðiheimildum. Fsp. hljóðar þannig:
    ,,Hvers vegna kemur framkvæmdarvaldið ekki í veg fyrir sölu á veiðiheimildum þar sem þær mynda ,,ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila`` yfir þeim eins og segir í 1. gr. laga um stjórn fiskveiða?``
    Með leyfi hæstv. forseta hljóðar 1. gr. laganna þannig: ,,Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.``