Staða fangelsismála
Fimmtudaginn 31. janúar 1991


     Flm. (Danfríður Skarphéðinsdóttir) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. á þskj. 553 um heildarúttekt á stöðu fangelsismála og æskilega framtíðarskipan þeirra. Flm. ásamt mér eru hv. þingkonur Kvennalistans Anna Ólafsdóttir Björnsson, Guðrún J. Halldórsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Málmfríður Sigurðardóttir og Sigrún Helgadóttir. Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að skipa sjö manna nefnd sérfróðra aðila er hafi það verkefni að gera heildarúttekt á fangelsismálum og leggja fram tillögur um æskilega framtíðarskipan þeirra.``
    Segja má að hin síðari ár hafi fangelsismál oft verið í brennidepli og hefur umræðan einkum beinst að því sem aflaga hefur farið í aðbúnaði og húsakosti fangelsanna. Ýmsar mikilvægar umbætur hafa orðið á seinni árum. Má sem dæmi nefna þá þjónustu sem Fangelsismálastofnun ríkisins veitir og skólastarf í tengslum við fangelsið á Litla-Hrauni. Helsta nýjungin á sviði fangelsismála er stofnun Fangelsismálastofnunar en hún var stofnuð með lögum 1988. Með því að fela sérstakri stofnun yfirstjórn fangelsismála varð að mínu mati jákvæð þróun og umbætur í fangelsismálum ættu að geta orðið markvissari. Það sama gildir auðvitað um þjónustuna við fanga sem ég minntist á áðan. Einnig má segja að með stofnun Fangelsismálastofnunar hafi komist á skynsamlegri verkaskipting á sviði dómsmálanna þar sem Fangelsismálastofnun er samkvæmt lögunum falið að sjá um þau mál sem daglega koma upp og varða afplánun, refsingu
og stofnanarekstur í því sambandi, en dómsmrn. getur þá einbeitt sér að því að sinna skipulagsmálum og þróun réttarreglna á sviði fangelsismálanna. Hins vegar má segja að það skorti nokkuð á að heildarstefna sé í þessum málaflokki og stjórnvöld hafa haft tilhneigingu til þess að vanrækja hann allt of lengi.
    Það hlýtur alltaf að vera neyðarúrræði að svipta fólk frelsi sínu og dæma til fangelsisvistar. Markmiðið með fangelsisvistinni hlýtur að vera að gefa fólki tækifæri til að bæta sig. Því er mjög mikilvægt að heildarstefna sé til í fangelsismálum þjóðarinnar sem hafi það að markmiði að góður aðbúnaður sé í fangelsunum og umhverfið uppbyggilegt þannig að föngum sé gefið raunverulegt tækifæri til að bæta sig.
    20. apríl 1982 var samþykkt þáltill. hér á hinu háa Alþingi þar sem kom fram vilji Alþingis til þess að skipuð yrði sjö manna nefnd sem skyldi hafa eftirtalin verkefni:
    1. Að kanna stöðu fangelsismála.
    2. Að leggja fram tillögur um brýnar úrbætur.
    3. Að gera áætlun um æskilega framtíðarskipan fangelsismála.
    Nefndin lauk störfum sínum í upphafi árs 1987 og má segja að þau lög sem tóku gildi 1988 með stofnun Fangelsismálastofnunar séu afrakstur þessa nefndarstarfs. Eins og fram kemur í skýrslu Fangelsismálastofnunar eru verkefni hennar ærin og viðamikil og má segja að á hverjum tíma séu skjólstæðingar stofnunarinnar milli 700 og 800. Ég ætla, með leyfi forseta, að fá að lesa hér upphafsorð úr ársskýrslu Fangelsismálastofnunar fyrir árið 1989, en þar segir:
    ,,Í umræðu um fangelsismál á opinberum vettvangi hefur þeirri alhæfingu verið haldið á lofti að þau séu alfarið í ólestri. Undir það verður ekki tekið hér en hins vegar er ástand ýmissa þátta húsnæðismála fangelsanna, aðbúnaður fanga og meðferð geðsjúkra afbrotamanna með þeim hætti að óviðunandi er. Öll tök eru á að leysa vandann. Til þess þarf vilja og fjármagn. Ljúka verður verki nefndar Alþingis frá árinu 1982 um heildarúttekt á stöðu fangelsismála, tillögur um brýnar úrbætur í þeim efnum og áætlun um æskilega framtíðarskipan fangelsismála á Íslandi. Það er löngu tímabært að móta heildstæða fangelsismálastefnu þar sem markmið og leiðir eru sett fram. Það er ekki verjandi að ýta þessum málaflokki ætíð aftast í röðina.
    Eins og fram kemur í þessari skýrslu eru verkefni Fangelsismálastofnunar víðtæk og fjöldi skjólstæðinga mikill. Stofnunin þarf í raun að hafa einhver afskipti af einum af hverjum 200 Íslendingum á aldrinum 15 -- 64 ára. Starfsmenn stofnunarinnar eru því miður allt of fáir og fjárveitingar til hennar of naumt skammtaðar.
    Megintilgangur Alþingis með Fangelsismálastofnun var að samræma og efla faglega starfsemi á sviði fangelsismála. Þrátt fyrir það voru einungis heimiluð átta stöðugildi þegar stofnunin tók til starfa, en það er í raun sami fjöldi starfsmanna og áður starfaði á þessu sviði. Þess hefur margítrekað verið farið á leit að starfsmannafjöldi Fangelsismálastofnunar verði aukinn en án árangurs.`` --- Lýkur þar með tilvitnun minni í formála ársskýrslunnar sem rituð er af forstjóra hennar, Haraldi Johannessen.
    Þrátt fyrir tilvist Fangelsismálastofnunarinnar er enn mikið verk óunnið á sviði fangelsismála og undirstrika þau orð sem ég hef lesið hér rétt í þessu einmitt að nauðsynlegt er að vinna áfram það verk sem nefndinni var ætlað sem skipuð var 1982. En eins og ég gat um áðan gerði nefndin tillögur um lagabreytingar og þau lög öðluðust gildi 1988 og þar var helsta nýmælið stofnun sérstakrar fangelsismálastofnunar.
    Nú á þessu þingi hefur verið lagt fram eitt frumvarp af hæstv. dómsmrh. um fangelsi og fangavist. Fjallar það um agabrot fanga og er til meðferðar í hv. Ed. og á borðum hv. þm. liggur í dag frumvarp þar sem lagt er til að í ákveðnum tilvikum verði unnt að dæma þá sem brotið hafa af sér til þjónustu í þágu samfélagsins í stað þess að setjast í fangelsi. Bæði þessi mál eru mjög til bóta --- fyrra frumvarpið sem ég nefndi er í raun sjálfsagt og kom fram í ræðu hæstv. dómsmrh. í Ed. að í raun hefði með ákveðnum agaviðurlögum verið um brot að ræða á Mannréttindasáttmála Evrópuráðsins og það frumvarp sem liggur á borðum okkar í dag um samfélagslega þjónustu kemur auðvitað mjög til móts við ný viðhorf varðandi refsingu, en þau hegningarlög sem nú eru í gildi eru að stofni til frá 1940 og því eflaust mikil þörf á að skoða ýmislegt fleira í þeim.

    Ég vil benda á að á þessu kjörtímabili, í fyrra, bar fyrrv. þingkona Kvennalistans, Guðrún Agnarsdóttir, einmitt fram fyrirspurn um fyrirætlanir hæstv. dómsmrh. varðandi samfélagslega þjónustu. Það er mjög mikilvægt að farnar séu fleiri en ein leið til þess að endurhæfa fólk, ef svo má segja, því að ég held að það sé betra að nota orðið endurhæfing heldur en refsing þegar við tölum um fangelsun og það er auðvitað það sem ætti að vera markmiðið með því að setja fram ákveðna og heildstæða stefnu í fangelsismálum. Við verðum að gera upp við okkur hvaða markmiðum við ætlum að ná með refsingum og með því að svipta fólk frelsi sínu.
    Eins og ég gat um þegar í upphafi máls míns hefur fangelsismál oftlega borið á góma og nú síðast í einu dagblaðanna tvær helgar í röð og ætla ég að fá að vitna aðeins í viðtal við forstöðumann fangelsisins á Litla - Hrauni, Gústaf Lilliendal, undir yfirskriftinni: ,,Fangelsismálin þarf að hugsa upp á nýtt.`` Hann segir m.a. í þessu viðtali, með leyfi forseta:
    ,,Það er allt of mikið um það að hingað komi sömu mennirnir til afplánunar aftur og aftur. Ég reikna með að um sex af hverjum tíu sem sitja hér inni hafi verið hér áður. Mér þykir einsýnt af þessu að hefðbundin fangelsun bætir ekki menn eins og hún ætti að gera. Það hljóta að vera til aðrar leiðir sem eru sársaukaminni fyrir alla aðila og um leið árangursríkari, segir Gústaf Lilliendal, forstjóri fangelsisins á Litla - Hrauni. Fangelsið hefur verið fullnýtt undanfarin tvö ár. Að jafnaði sitja hér inni 55 manns. Þörfin er einfaldlega svo mikil að hér er hvert rúm skipað og við höfum orðið að setja menn í klefa sem að öllu jöfnu geta ekki talist mannabústaðir. Þeir klefar sem þannig er ástatt um eru til allrar hamingju miklu færri, en það er engu að síður rétt að það er ekki forsvaranlegt að geyma í þeim menn, segir Gústaf. Hann fer ekki í neinar grafgötur með það að aðbúnaður fanga, sem og starfsaðstaða fangavarða, er ekki upp á marga fiska á Hrauninu. Því miður eru ekki nein teikn á lofti um að úr rætist á næstu árum. Gústaf segir að til skamms tíma hafi ekki verið nein deildaskipting á Litla - Hrauni. Við erum að gera smátilraunir með deildaskiptingu í húsnæði sem upphaflega var byggt sem einangrunardeild. Fangarnir þurfa að sækja um og að komast undir ákveðna skilmála til að komast á þessa deild. Þeir sem þar eru njóta heldur meiri fríðinda og betri aðbúnaðar en aðrir fangar, segir Gústaf.``
    Þetta er brot úr þessu viðtali, sem haft var við hann og reyndar fleiri sem tengjast fangelsismálunum, í Þjóðviljanum föstudaginn 18. jan. sl. Eins og hann segir þarna réttilega þarf að hugsa fangelsismálin upp á nýtt. Það er auðvitað mjög viðkvæmt mál að svipta menn frelsi sínu og hlýtur alltaf að vera örþrifaráð og það er mikilvægt að um raunverulega endurhæfingu sé að ræða. Til þess að svo megi verða þarf auðvitað að gera áætlun um uppbyggingu og starfsvettvang fangelsanna. Það er t.d. hægt með því að skipta þeim í deildir og eins og fram hefur komið er sérstakt áhyggjuefni nú um stundir hvernig fara skal með geðsjúka afbrotamenn, en aðstaða til að veita

þeim nauðsynlega þjónustu hefur verið mjög bágborin. Hins kemur kemur fram í viðtali við forstjóra Fangelsismálastofnunar, Harald Johannessen, í Þjóðviljanum laugardaginn 26. des. að að undanförnu hefur nefnd verið að störfum til þess að kanna hvernig leysa má þau mál. En þeir þættir sem ég hef nefnt hér, þ.e. samfélagslega þjónustan og meðferð geðsjúkra fanga, er auðvitað aðeins hluti af þeirri heildarstefnu sem móta þarf. Með leyfi forseta ætla ég að fá að vitna aðeins örstutt í forstjóra Fangelsismálastofnunar hér í Þjóðviljanum, en þar segir hann:
    ,,Ég hef haldið því fram að ákveðnir þættir fangelsismála séu ekki með þeim hætti að viðunandi geti talist. Þá hef ég aðallega verið að tala um málefni geðsjúkra afbrotamanna og húsnæðismálin. Varðandi fyrra atriðið hefur ýmislegt gerst á undanförnum missirum.
    Fyrir liggur áfangaskýrsla nefndar sem sett var á laggirnar í maí sl. til að gera tillögur um með hvaða hætti geðsjúkir afbrotamenn skyldu vistaðir. Nefndin setti fram ákveðna tillögu til stjórnvalda um það hvernig ætti að leysa þennan þátt fangelsismálanna og reyndar dómsmálanna líka.
    Í framhaldi af skýrslu nefndarinnar voru samþykktar á Alþingi fjárveitingar til lausnar þessum vanda og það er hugmynd manna að koma upp réttargeðdeild hér á landi.``
    Það hefði auðvitað verið hægt að benda á miklu fleiri atriði sem rökstyðja nauðsyn þess að móta hér heildarstefnu í fangelsismálunum, en það er brýnt að að því starfi komi sérfróðir menn með starfsreynslu og þekkingu á þessu sviði og þess vegna tökum við flutningsmenn tillögunnar sérstaklega fram í greinargerð að við teljum rétt að auk forstjóra Fangelsismálastofnunar verði fulltrúi dómsmrn., afbrotafræðingur frá Fangelsismálastofnun, forstöðumaður fangelsis, fangelsislæknir, fulltrúi Dómarafélags Íslands og fulltrúi Fangavarðafélags Íslands skipaðir í þá nefnd sem þessa úttekt mundi gera.
    Ég vil svo að lokinni þessari fyrri umræðu leggja til að tillögu þessari verði vísað til hv. allshn. og síðari umræðu.