Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Ég tel óhjákvæmilegt að leiða hugann að þeim vinnubrögðum sem hér eru viðhöfð. Alþingi Íslendinga hefur kosið hina mætustu menn til að sitja í stjórnarskrárnefnd og vinna að framgangi þeirra mála. Það hefur ekki verið ágreiningur um það í þingsölum að eðlilegt væri að gera breytingar á íslensku stjórnarskránni. Hins vegar gerist það að hv. 1. þm. Norðurl. v. flytur frv. til laga um breytingar á stjórnarskránni og hefur meðflm. það sem ég mundi nú kalla ,,grúppuna úr Norðurlandaráðinu``, svona bara á einföldu máli. Það fyrsta sem hv. þm. varð náttúrlega að gera var að sjá til þess að málið yrði ekki samþykkt því hann var ekki reiðubúinn að kaupa fall ríkisstjórnarinnar því verði. En eins og allir vita þýðir samþykkt á breytingum á stjórnarskránni að ríkisstjórnin þarf að efna til kosninga. Þess vegna var þetta borið fram á sínum tíma, fyrirhyggjan slík að það þurfti tvö þing áður en talið var eðlilegt að málið yrði afgreitt. En engu að síður var lögð á það áhersla að þar sem málið væri svo mikilsvert þyrfti að hafa þá kynningu að með tveggja þinga fyrirvara skyldi málið borið fram. Nú aftur á móti er sá sami flm. númer tvö í röðinni að frv. til stjórnarskrárbreytinga og nú hafa orðið þau sinnaskipti að hann telur hæfilegan tíma til þess að klára þetta mál það sem eftir lifir af þessu þingi. Sýnist mér nú að forsjárhyggjan hafi breyst allverulega.
Hér kemur fram að skipuð hefur verið nefnd að beiðni forseta Alþingis. Ég veit ekki til þess að forsetar Alþingis hafi verið til þess kosnir að leiðbeina um þetta mál, ég veit ekki til þess. Ég veit ekki til þess að þeim sé ætlað að skipa hér nefndir til þess að vinna að lagasetningu í þinginu. Ef forsetar þingsins þurfa að koma málum fram hlýtur að vera eðlilegt að þeir beri það þá undir þingið með eðlilegum hætti. Sérhver óbreyttur þingmaður hefur mátt horfa upp á það að átökin milli framkvæmdarvaldsins og þingsins hafa löngum notið formanna þingflokkanna til stuðnings við framkvæmdarvaldið um að troða þingið niður, ætla þinginu hvorki tíma né rúm til að afgreiða mál. Þetta kannast allir við. Aðstoðarmenn í gegnum tíðina við þessi vinnubrögð hafa verið forsetar þingsins. Þess vegna liggur það ljóst fyrir að sá hópur sem tekið hefur að sér að gera breytingar á stjórnarskránni er óhæfasti hópurinn í þinginu til að vinna það verk. Grímur Thomsen orðaði það snilldarlega um Halldór Ásgrímsson í Hemingsflokki Áslákssonar: ,,Með konungshundum hvassast sem að bíta, Halldór svarar, var ég aldrei fundinn.``
Og það þjónustulið við framkvæmdarvaldið sem löngum hefur verið reiðubúið að troða á hverri einustu tillögu um eðlileg vinnubrögð í þinginu og vaða þannig áfram án þess að spyrja um gæði heldur afköst, það lið vill nú setja almennum þingmönnum leikreglurnar. Svo hart er málið keyrt að hv. 2. uppáskrifandi málsins fær ekki einu sinni að tala fyrir því við 1. umr. Og enginn hefur hugmynd um hvort hann muni vera í landinu við 2. umr. eða þá 3. Maðurinn
er bara fjarverandi, erlendis, meðan málið er tekið fyrir. Og við spyrjum okkur líka þegar svona lagað gerist: Eru menn ekki með svona tillöguflutningi að stuðla að því að nefndir, sem falið hefur verið að vinna ákveðið verk, líti á það sem eðlilegan hlut að forsetar skipi þá bara einhverja undirhópa, vini og vandamenn, hvort sem það er komið til vegna Norðurlandaráðsins, kunningsskapar á hótelherbergjum úti í Svíþjóð eða Danmörku, sem er grundvöllurinn fyrir málflutningi hér í þinginu. Ég skil ekki hvaða rök geta legið fyrir því að svona vinnubrögð eru upp tekin, ég segi það bara hreint út.
Svo vill nú til, ekki veit ég hvort það er tilviljun, en Vestfirðingar verða sérstaklega hart úti. Hv. 1. flm., 2. þm. Reykn., eyddi megninu af sinni ræðu til að sannfæra okkur um að Morgunblaðið segði ekki alltaf satt, í það minnsta ef Þorvaldur Garðar, hv. 4. þm. Vestf., skrifaði þar greinar. Það fór bróðurparturinn af framsöguræðunni í það að halda því fram að ekki væri mark á þeim takandi. En hver skyldi þá vera formaður stjórnarskrárnefndarinnar? Það er 1. þm. Vestf., hann var afskrifaður orðalaust. Ég veit ekki betur en hann ætli í framboð fyrir vestan. Mér þykja þetta þess vegna fréttir, ég segi það hreint út.
Auðvitað hefur það komið fram í fréttaskýringarþætti sjónvarpsins að það sé ekkert venjulegt lið sem standi að þessum flutningi, þetta séu súpermenn þingsins, algerar sérsveitir, hvort sem þeir eru nú með svartar húfur eða annað. Og þegar þeir flytji mál sín, þá fljúgi málin bara áfram í gegn þannig að auðvitað þýðir ekki að mótmæla svona mönnum. Ég veit ekki hvar það mundi enda ef það yrði gert. Samt gerast þeir furðulegu hlutir að hv. 6. þm. Norðurl. e., sem er flm. að málinu, eyðir mestöllum tíma sínum í að skammast yfir því hve lítið sé í frv., það sé ekki hlustað á hvað umboðsmaður Alþingis segir, það sé ekki tekið tillit til þess. Hann boðaði brtt. og nánast krefst þess að úr nefnd komi hugmyndir um brtt. Það er nefnilega öllum ljóst sem lesa þetta plagg að það þarf að ganga heildstætt í þetta verk, eins og kom fram hjá hv. 6. þm. Norðurl. e. Málin eru ekki leyst með þessu. Þetta er yfirklór. Og auðvitað er það hámark ósvífninnar ef mönnum dettur í hug að það sem eftir lifir af þessu þingi eigi að rúlla svona málum í gegn.
Ég veit að það eru mörg atriði í þessu sem eru ekki deilumál og hafa aldrei verið deilumál, ef stjórnarskrárbreyting verður framkvæmd, að þurfi að leiðrétta. Önnur hafa verið í umræðunni, fram og til baka út frá ýmsum forsendum. Það má rífast um það hér fram og til baka hvort það sé frá Dönum komið að hér eigi að vera tvær deildir eða ekki, hvor söguskýringin sé rétt, sú gamla sem vitnað var í til hins mætasta manns, sem er ekki til andsvara hvort túlkunin var rétt eða ekki, og til þess sem fyrrv. forseti Sþ., hv. 4. þm. Vestf., heldur fram. Kjarni málsins er aftur á móti sá að í flestum þjóðþingum heimsins eru tvær deildir. Það er kjarni málsins. Mér er ljóst að ef magnið sem þingið ætlar að afgreiða er aðalatriðið, þ.e. að koma lögum yfir landsmenn, þá er ein deild
miklu afkastameira apparat. Því meira sem málfrelsi er tekið af þingmönnum og þeim mun erfiðara sem þeim er gert fyrir að hafa áhrif á gang mála, þeim mun fljótar fara frv. í gegn. Spurningin er: Verða gæðin eftir því? Nú lofa þeir nánast að starfslið verði aukið til þess að koma viti fyrir þingmenn þannig að gæðin muni lagast líka. Og það getur vel verið að þeir hafi það allt í hendi sér að ganga frá þessum þætti mála.
En þegar íslenska þjóðveldið varð til, þá reis það þannig upp af þingum sem voru haldin að hætti víkinganna sem komu frá Noregi. Það urðu fjórir fjórðungar til í þessu landi sem grundvallareiningin að lýðræðisskipuninni. Og af því að hv. 2. þm. Reykn. vekur á því athygli að kjarni málsins frá sumra dyrum séð sé hvort hér eigi að vera tvær deildir eða ein, þá er rétt að minnast þess að í upphafi var kosið til deildanna misjafnt og það er hægt að hugsa sér að það verði gert í framtíðinni. En Gamli sáttmáli hafði ekki gildi fyrr en meiri hlutinn í hverjum einasta fjórðungi var búinn að skrifa undir. Þess vegna liggur það ljóst fyrir sem eðlileg lagatúlkun að frelsinu hafi ekki verið skilað aftur til þeirra sem það var tekið af með því að svíkja samninginn fyrr en því er skilað aftur til fjórðunganna. Það voru fjögur ríki sem mynduðu sambandsríki á Íslandi á þessum tíma. Og það er ekki búið að skila því þegar búið er að skila því aðeins til eins sameiginlegs. Þess vegna hlýtur sú spurning að vakna þegar menn standa frammi fyrir því, hver og einn einasti maður og horfir á það sem staðreynd: Við teljum það eðlilegar leikreglur að lýðræðið sé þannig upp byggt að menn hafi jafnan atkvæðisrétt, er sagt. Spurningin er þá í framhaldi af því: Eru það ekki jafnlýðræðislegar leikreglur að hin ýmsu svæði hafi jafnmikið að segja um sín málefni?
Við höfum í mörg ár haft þau lög og þær reglur að t.d. hið stóra samfélag Reykjavík hafði meira að segja um sín málefni, miðað við önnur svæði þessa lands, en t.d. Suðurland eða Vestfirðingafjórðungur eða Norðlendingafjórðungur. Án þriðja stjórnsýslustigsins verður aldrei hægt að koma hér á eðlilegu lýðræði. Það er ekki glóra til í því að safna upp á efsta stjórnsýslustig öllum ákvörðunum eins og verið er að gera í heilbrigðismálum og víðar. Það er ekki glóra til í því. Spurningin er því þessi: Hefði ekki verið eðlilegra að reyna að komast til botns í kjördæmaskipulagi, í stjórnarskrármálinu og því sem allir sjá fyrir, sem vilja horfa fram í tímann, að núverandi kjördæmaskipulag mun ekki halda velli og fær ekki staðist.
Ég verð að segja eins og er að mér hefði þótt það skynsamlegra að menn hefðu snúið sér að þessu verki, farið í að endurskipuleggja eitt og annað í landinu með því að færa verulegan hluta af valdi ríkisins til byggðanna, til Stór - Reykjavíkursvæðisins, til Vestfirðingafjórðungs, til Norðlendingafjórðungs, til Austfirðingafjórðungs og til Sunnlendingafjórðungs. Í ljósi þess sem þá kæmi upp væri metið hvort við þyrftum á tveimur deildum að halda eða ekki til þess að halda jafnvægi í landinu.
Ég ætla ekki að fara hér út í efnislega umræðu um einstakar greinar. Ég er búinn að gera grein fyrir því hér og nú að ég tel að svona vinnubrögð eigi engan rétt á sér. Þegar þingið kýs ákveðna menn til ákveðinna starfa, þá er það traustsyfirlýsing til þeirra manna. Ég hef ekki samþykkt neitt vantraust á þessa menn. En ég tek því ekki að þá taki forseti sig til og skipi einhverjar súpersérsveitir til þess að fara í málið.