Rannsókn kjörbréfa
Mánudaginn 04. febrúar 1991


     Frsm. kjörbréfanefndar (Ólafur G. Einarsson) :
    Hæstv. forseti. Kjörbréfanefnd hefur kannað kjörbréf Helgu Hannesdóttur sem hlaut sæti sem 2. varaþm. Alþfl. í Norðurl. v. við síðustu alþingiskosningar. Jón Sæmundur Sigurjónsson, 5. þm. Norðurl. v., getur ekki setið þing næstu tvær vikurnar og 1. varamaður Alþfl., Birgir Dýrfjörð, getur heldur ekki vegna anna tekið sæti hv. þm. Jóns Sæmundar Sigurjónssonar. Kjörbréfanefnd hefur ekkert við það að athuga að Helga Hannesdóttir taki sæti Jóns Sæmundar Sigurjónssonar á Alþingi.