Jón Kristjánsson :
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti atvmn. um till. til þál. um virðisaukaskattssvik og ,,svarta atvinnustarfsemi.``
Nefndin hefur fjallað um tillöguna. Í umsögn um hana, sem nefndinni barst frá ríkisskattstjóra, lýsir hann sig eindregið hlynntan því að könnun af því tagi, sem gert er ráð fyrir í tillögunni, verði framkvæmd. Leggur ríkisskattstjóri áherslu á að staðið verði að könnuninni með sama hætti og gert var í vinnu skattsvikanefndar 1984 -- 1986 til þess að unnt verði að mæla með sambærilegum hætti ávinninginn af skattkerfisbreytingum.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Ólafur Þ. Þórðarson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en undir nál. rita Árni Gunnarsson formaður, Jón Kristjánsson, Matthías Á. Mathiesen, Geir H. Haarde, Hreggviður Jónsson og Geir Gunnarsson.