Ástandið í fjarskiptamálum
Mánudaginn 04. febrúar 1991


     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
    Virðulegi forseti. Ég held að það sé kannski kjarni málsins, sem fram kom hér í ræðu hv. 18. þm. Reykv., að Alþingi og stjórnvöld bera hér öll mikla ábyrgð í þessu efni. Ég held að það sé í sjálfu sér engin lausn að vera að vísa málinu frá einum til annars. Ég geri ekki ráð fyrir því að menn séu með mikið hreinni skjöld en sessunautar þeirra kunna að vera hér í þinginu í þessu efni nema þá kannski þeir sem voru að taka sæti hér á Alþingi sem varaþingmenn í dag.
    Kjarni málsins er og aðalatriði að við verðum sammála um að taka núna á málinu. Ég geri ráð fyrir því að flestir eða allir hafi einhvern tíma flutt tillögur um það að grípa til endurbóta, flestir eða allir hafi einhvern tíma greitt atkvæði á móti skerðingu á þessum tekjustofni Ríkisútvarpsins, flestir eða allir hafi væntanlega einhvern tíma flutt tillögur um stuðning við Ríkisútvarpið af þessum ástæðum, en það gerir í raun og veru litla stoð í dag. Aðalatriðið er það að við drífum okkur í verkið eins og hv. 1. þm. Suðurl. vakti hér athygli á áðan og ég tók undir með honum.
    Ég tel að það sé mjög mikilsvert sem hér kom fram í ræðu hæstv. samgrh. að samgrn. og Póstur og sími séu reiðubúin til að hjálpa til við upphafsskrefin í þessu máli núna næstu daga. Ég mun leggja sundurliðaða tillögu í þeim efnum fyrir ríkisstjórnina í fyrramálið.
    Varðandi það sem hv. 1. þm. Reykv. spurði um hér áðan, þá kom það nú fram í umræðunni sem hann spurði um. Mér finnst út af fyrir sig ánægjulegt að hann skuli vilja láta mig lesa meira úr ræðum mínum en ég geri hér í ræðustólnum, en ástæðan til þess að ég nefndi ekki það mál sem hann var með var fyrst og fremst sú að það er til rekstrar en þessir tekjustofnar sem við ræðum hér í dag eru til stofnkostnaðar, endurbóta og viðhalds samkvæmt lögum og venjum. En það mál sem hann spurði um er til meðferðar á milli þriggja ráðuneyta, eins og ég skýrði frá hér áðan, þ.e. fjmrn., heilbrrn. og menntmrn.
    Niðurstaðan er sem sé sú að við munum leggja málið fyrir og ég vænti þess að við það verði góður stuðningur og fagna því að sjálfsögðu að menn hafa margir hverjir lengi hugsað hlýtt til langbylgjumastranna þó lítið hafi orðið um athafnir fyrr en það verður það bersýnilega núna með góðri samstöðu á Alþingi Íslendinga.