Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Að heimta skatta af tekjum sem ekki duga til framfærslu er fullkomlega siðlaust og því fagna ég þeirri tillögu sem hér er fram komin. Ég vil jafnframt benda á hve óréttlátt það skattkerfi er sem leggur þyngstar byrðarnar á þá sem minnst hafa auraráðin.
    Kvennalistakonur fengu fyrir um það bil tveimur árum hagfræðing hjá Fjárlaga - og hagsýslustofnun til að reikna út fyrir sig ýmsar útgáfur á því hvernig hækkun skattleysismarka og fjölgun skattþrepa kæmi út fyrir almenning og fyrir ríkiskassann. Þá kom í ljós sú alvarlega staðreynd að það er lágtekjufólk og fólk með lágar millitekjur sem ber hitann og þungann af öllum skattgreiðslum í landinu. Með öðrum orðum: Fólkið sem er með innan við 100 þús. kr. mánaðarlaun heldur samfélaginu uppi miðað við núverandi kerfi, ekki hátekjufólkið sem reyndar er á framfæri lágtekjufólks samkvæmt þessu. Þetta er auðvitað ekki nokkur hemja.
    Alvarlegra var þó að sjá hve stór hópur það er sem á svo lágum launum er og á ekki fyrir framfærslu af þeim sökum. Það er engin tilviljun að fyrir sl. jól skuli stór hópur fullvinnandi ungs fólks hafa orðið að leita á náðir mæðrastyrksnefndar og annarra hjálparhópa til að eiga fyrir jólahaldinu.
    Það er nauðsynlegt að vinna að öllum málum í senn, hækkun lægstu launa, hækkun skattleysismarka og fjölgun skattþrepa til að
fjármagna að einhverju leyti tekjutap ríkisins.
    Að þessum málum höfum við kvennalistakonur unnið einlæglega og lagt fram frv. um lögbindingu lágmarkslauna nokkrum sinnum, auk þess að leggja til hækkun skattleysismarka um tvö tekjuskattsþrep þegar samþykkt var að koma á staðgreiðslu tekjuskatts. Við vitum sitt af hverju um hvað kostar að framfleyta einstaklingi þótt lengi vel hafi mætt þeim sem vildu fá upplýsingar um slíkt fátt annað en úrtölur. Er þess skemmst að minnast hve langan tíma það tók að fá tillögu um athugun á lágmarksframfærslukostnaði samþykkta hér í þinginu. En sú till. var þó að lokum samþykkt hér í vetur í allbreyttri mynd. Á sl. ári virtist þó vera hægt að reikna út framfærslukostnað fyrir námsmenn. Kannski er einhverra hluta vegna auðveldara að átta sig á eyðslu þeirra en annarra. Ekki skal ég um það segja.
    Á miðju síðasta ári þurfti um 80 þús. kr. til framfærslu einstaklings í námi en honum voru að vísu ekki skammtaðar nema 50 þús. kr. í námslán til að skrimta af. Það er raunar í takt við þau kjör sem ýmsir aðrir þurfa að lifa við. Ótrúlega mörgum er gert að lifa á launum innan við þurftarmörk og taxtalaun fara jafnvel niður í um 40 þús. kr. Við kvennalistakonur þekkjum vel hverjir það eru sem þiggja lægstu launin í samfélaginu. Og það hefur raunar komið mjög glögglega fram í umræðum nú að undanförnu og í útreikningum kom í ljós að þjóðarsáttin hvílir á herðum kvenna. Það eru nefnilega konurnar sem eru á lægstu laununum og það á við í öllum tekjuhópum.

Ekki veit ég hvort hv. alþingismenn gera sér grein fyrir því að á miðju síðasta þjóðarsáttarári voru meðallaun afgreiðslukvenna í fullu starfi um 55 þús. kr., 55 þús. fyrir fullt starf. En fullvinnandi afgreiðslukarlar fengu 72 þús. kr. í meðallaun og voru alls ekki of sælir af sínum hlut þótt þeir hefðu 17 þús. kr. í viðbót við konurnar. Það er þetta sem þjóðarsáttin skammtar fólki og svo klípur ríkið skatt af smánarlaunum. Hækkun skattleysismarka er sanngjörn aðgerð. Ég vildi nota þetta tækifæri til að hreyfa við öðrum málum sem eru þessu náskyld og þarf að kippa í liðinn í þeirri óréttlátu tekjuskiptingu sem nú er við lýði.