Danfríður Skarphéðinsdóttir :
    Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að lýsa yfir stuðningi mínum við þá till. til þál. sem hér er til umræðu þessa stundina. Mér þykir hins vegar miður hvernig umræðan hefur þróast og finnst mér jafnvel að úr þessum ræðustóli hafi verið notuð orð sem ekki eru sæmandi hinu háa Alþingi. Veit ég ekki hvort það er gert í einhverri vörn en ég held að það sé mjög mikilvægt að þessi mál séu rædd með opnum huga og í einlægni. Ég veit ekki hvaða skýringar eru á því að hér eru svo fáir viðstaddir en ég fagna því auðvitað að sjá hér hæstv. fjmrh. sem e.t.v. kemur til með að taka þátt í þessari umræðu sem snýst um mjög mikilvæg málefni, þ.e. kjarajöfnun í landinu.
    Hv. 4. þm. Reykn. benti á að tillögunni fylgdu ekki útreikningar um hversu mikið tekjutap yrði um að ræða fyrir ríkissjóð ef skattleysismörk yrðu hækkuð eins og hér er lagt til. Þeir útreikningar hefðu eflaust sýnt okkur einhverja milljarða. En þeir útreikningar hefðu ekki sagt alla söguna því það segir sig auðvitað sjálft að um leið og fólk hefur meira fé handa á milli skilar það sér inn í ríkissjóð í hærri veltusköttum og það er virðisaukaskatturinn sem er stærsti hluti þeirra skatttekna sem koma í ríkissjóð. Þeir reikningar yrðu því aldrei alveg tæmandi fyrir stöðu ríkissjóðs fyrir og eftir þá breytingu að hækka skattleysismörkin.
    Ég vil enn og aftur minna á, vegna þeirrar umræðu sem hér hefur komið upp um það hvernig hinir lægst launuðu fara ávallt út úr kjarasamningum, og það hefur verið gert hér fyrr í umræðunni, að Kvennalistinn lagði fram frv. um lögbindingu lágmarkslauna. Við létum það ekki nægja heldur lögðum fram sérstaka tillögu um að settur yrði á laggirnar starfshópur sem hefði það verkefni að tryggja jákvæð áhrif lögbindingar lágmarkslauna. Á þeim tíma, eftir áramótin 1988, þegar sú tillaga var til umræðu hefði verið gott að fá stuðning þeirra manna hér á Alþingi sem eru hvað nátengdastir verkalýðshreyfingunni. Ég tel að einmitt það mál sem hér er til umræðu, hækkun skattleysismarka, og ef við bættist afnám matarskattarins sem hv. 10. þm. Reykn. minnti á, þessi tvö atriði eru leiðir til þess að jafna launamuninn. Það hefur komið fram og ekki að ástæðulausu hér í umræðunni að það er allt of mikið launabil, lægstu launin eru allt of lág.
    Hv. 4. þm. Reykn. benti réttilega á að þær leiðir sem hingað til hafa verið farnar í kjarabaráttu hafa alltaf farið verst með láglaunafólkið, eins og hann orðaði það. Þess vegna hefði verið nauðsynlegt að fara nýjar leiðir, gera tilraun til að fara aðra leið en hingað til hefur verið farin. Því miður verður að segjast um þá leið líka að þrátt fyrir allt, hversu mikla trú sem menn hafa á henni, þá hefur hún líka farið verst með láglaunafólkið. Síðan er auðvitað sú spurning, sem við hljótum að velta fyrir okkur, hvað gerist þegar þessu þjóðarsáttartímabili lýkur. Eins og nú hefur verið haldið á málum þá mallar og kraumar í pottunum og mun sjóða upp úr um leið og lokinu verður lyft.
    Ég vildi aðeins leggja nokkur orð í belg vegna þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram. Mér sýnist að allir séu sammála um að það þurfi að stórbæta kjör hinna lægstlaunuðu. Það hefur mikið verið rætt um þetta vandamál sem einhvern tímann var kennt við Mesópótamíulögmálið sem felst í því að hækki einn hópur komi allir hinir á eftir. Það var einmitt það sem Kvennalistinn vildi koma í veg fyrir með tillögu sinni um að jákvæð áhrif lögbindingar lágmarkslauna yrðu tryggð, þ.e. að komið yrði í veg fyrir að allir hinir kæmu á eftir. Sú till. sem við ræðum núna, um hækkun skattleysismarka, er einmitt í átt til jöfnunar og kemur í veg fyrir skriðu af því tagi sem hér hefur verið nefnd.