Karl Steinar Guðnason :
    Hæstv. forseti. Hér hefur þjóðarsáttin svokallaða komið mikið til umræðu og ólundartónn nokkur í ýmsum þingmönnum út af því að hún skuli vera til. Ég vil segja það hér að ég held að það væri skynsamlegast við næstu kjarasamninga að halda áfram því starfi sem þar var undirbúið, gera nýja þjóðarsátt undir sömu formerkjum, þar sem verkalýðshreyfingin tekur þátt í því að gera efnahagsumhverfið betra og jafnframt um leið lífskjörin stöðugri og hagstæðari. Jafnframt þarf að koma því til leiðar að þeir sem eru verst settir fái mest. Ég tel að verkalýðshreyfingin þurfi til þess að þjóna sínum meðlimum að hugsa fyrst og fremst um kaupmáttinn en ekki bara krónurnar. Og ég fullyrði það að sú leið sem við höfum nú valið hefur dugað betur en ef gamla leiðin hefði verið farin. Og ég tel líka að það hefði verið margfalt auðveldara að semja um 30, 40 eða 50% hækkanir á kaupi heldur en fara þá leið sem við ákváðum að fara.
    Vegna ókunnugleika síðasta hv. ræðumanns þá vil ég benda á að Verkamannasambandið semur fyrir sína meðlimi en semur ekki fyrir aðra. Það semur ekki fyrir lækna, það semur ekki fyrir ýmsar hálaunastéttir og það semur ekki fyrir aðra innan Alþýðusambands Íslands. Ég vil jafnframt taka fram að þrátt fyrir það að Verkamannasambandið hafi oft á tíðum náð fram hagstæðum samningum fyrir þá sem verst eru settir og jafnframt varið þá sem eru á tryggingabótum í þjóðfélaginu, þá hefur öðrum tekist vegna aðstæðna í þjóðfélaginu að skríða eftir bakinu á láglaunafólki. M.a. fyrir tilstilli þess fólks sem tekur undir allar kröfur, vill gera allt fyrir alla án þess að gera sér grein fyrir að það endar með því að þeir sem áður voru hvað verst settir verða verr settir á eftir.
    Ég firri mig engri ábyrgð og hef aldrei gert. En það verða ekki aðrir til að berjast fyrir láglaunafólkið heldur en launþegaforingjarnir sem fyrir það standa. Það verða ekki aðrir sem gera það og það eru ekki aðrir sem hafa gert það. Og ég vil líka minna á að ég hef vantrú á því að hér á hv. Alþingi verði samþykktir einhverjir taxtar sem því miður mundu reynast gervitaxtar miðað við þá þróun sem hefur gerst í þjóðfélaginu til þessa, vegna þess vandamáls sem við búum við í þjóðfélaginu, að þeir sem betur eru settir hafa ekki viljað una því að þeir sem verr voru settir fengju eitthvað meira. Þetta er vandamál sem ég vil ekki kenna neinum einstökum um heldur er þetta vandamál sem ekki aðeins Alþýðusambandið, Verkamannasambandið eða önnur launþegasamtök eiga við að stríða heldur er þetta almennt vandamál.
    Ég vil líka taka það fram, sem verður að vera ljóst, að þjóðarsáttin hefði aldrei getað tekist ef ríkisstjórnin hefði ekki verið á fullu í því að koma henni á með okkur hinum. Ríkisstjórnin var fullur aðili að þjóðarsáttinni. Og ríkisstjórnin gerði margt mjög gott til þess að koma henni á. Ég fullyrði það hér og nú að hefði ekki tekist giftusamlegt samstarf í þeim efnum þá lifðum við ekki við það efnahagslega umhverfi sem við þó lifum við í dag. En ég tel að það þurfi að

gera betur. Við höfum skapað grunn sem hægt er að standa á til þess að gera betur fyrir þá sem verst eru settir. Og ég trúi því, enda er það af mikilli reynslu sem ég mæli það, að það hafi verið farsælli leið sem verkalýðshreyfingin fór nú í kjaramálum heldur en að hlaupa inn í það að krefjast eða fá 20, 30, 40, 50, 80% kauphækkanir. Það hefði engum orðið til góðs. Hins vegar hefði það orðið til þess að þeir fátæku hefðu orðið fátækari og þeir ríku ríkari. Að því mun Verkamannasambandið ekki standa. Að því mun ég aldrei standa.