Heilsufarsbók
Mánudaginn 04. febrúar 1991


     Flm. (Danfríður Skarphéðinsdóttir) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. á þskj. 568 um heilsufarsbók. Flm. ásamt mér eru þingkonur Kvennalistans þær Anna Ólafsdóttir Björnsson, Guðrún J. Halldórsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Málmfríður Sigurðardóttir og Sigrún Helgadóttir.
    Till. hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra í samráði við landlækni að láta hanna heilsufarsbók sem fylgi hverjum einstaklingi frá vöggu til grafar.
    Í heilsufarsbókina skulu skráðar jafnóðum allar þær upplýsingar um heilsufar einstaklingsins sem máli skipta, svo sem sjúkdómar, læknismeðferð og lyfjanotkun.``
    Ég vil hér í upphafi máls míns, virðulegur forseti, geta þess að till. þessi var fyrst flutt á 111. löggjafarþingi fyrir frumkvæði fyrrv. þingkonu Kvennalistans, Guðrúnar Agnarsdóttur, og er því endurflutt núna óbreytt frá því á síðasta þingi.
    Stefna í heilbrigðismálum ætti að vera sú að auka vitund fólks um mikilvægi heilbrigðs lífs og þess að taka sjálft ábyrgð á að gæta heilsu sinnar. Þessi markmið koma reyndar fram í till. til þál. um íslenska heilbrigðisáætlun, sem við höfum nýlega haft til umfjöllunar hér í sameinuðu þingi og mun nú vera til umfjöllunar í nefnd í sameinuðu þingi.
    Eitt af því sem auðveldar mönnum að fá yfirsýn og finna fyrir þeirri ábyrgð sem þeir bera á heilsu sinni er að þeir fylgist nákvæmlega með bæði þeim lyfjum sem þeir taka, þeim aðgerðum sem á þeim eru gerðar og að þeir hafi yfir þetta gott yfirlit þar sem allar slíkar upplýsingar, sem nauðsynlegar geta talist og að gagni mega koma, eru skráðar. Skráning og varðveisla ýmissa mikilvægra upplýsinga um heilsufar einstaklinga hefur farið vaxandi á undanförnum árum og áratugum. Þessar upplýsingar er langoftast að finna hjá heimilis- eða heilsugæslulækni hvers einstaklings en einnig hjá sjúkrahúsum eða öðrum rannsókna- eða meðferðarstofnunum. Þrátt fyrir aukna tækni á tölvuöld er þó skipulag á þessum upplýsingum með ýmsum hætti og oft þarf víða að leita fanga til þess að fá heildarupplýsingar um heilsufar fólks. Þá á ég auðvitað fyrst og fremst við að oft gengur erfiðlega fyrir einstaklinginn sjálfan og hann þarf oft að hafa mikið fyrir því að fá upplýsingar því að sjaldnast er skipulagt bókhald yfir þær á einum stað. Þess má einnig geta að fólk flytur á milli landshluta, það flytur á milli landa og þá fylgja slíkar upplýsingar ekki með. Þess vegna gerist það að allt of sjaldan hefur sjúklingurinn sjálfur yfirsýn yfir eigið heilsufar, tímasetningu og niðurstöður rannsókna og læknismeðferðar sem hann hefur fengið. Sem dæmi má nefna bólusetningar, lyfjagjöf, skurðaðgerðir og þá hvað var numið brott, hvað var gert í hinum ýmsu aðgerðum o.s.frv. Þetta viðheldur vankunnáttu almennings og er ekki í samræmi við stefnu heilbrigðisyfirvalda sem hvetur til aukinna forvarna og frumkvæðis einstaklinganna til að taka ábyrgð á eigin heilsu.
    Till. þessi, eins og ég minntist á áðan, fellur vel að

þeim markmiðum sem sett eru fram í viðamikilli till. til þál. um íslenska heilbrigðisáætlun og er nú í umfjöllun hér í þinginu. Þess má svo líka geta að t.d. nöfn á lyfjum eru oft ekki þannig að auðvelt sé að muna þau. Oft hafa þau latnesk heiti og venjulegu fólki er með öllu ómögulegt að segja til um hvaða lyf það hefur tekið því að nöfnin sem slík segja ekki neitt.
    Til þess að auka vitund fólks um eigin ábyrgð á heilsufari sínu þarf aukna og skipulega heilbrigðisfræðslu, bæði í skólum og meðal almennings. Fræðslan ein nægir þó ekki til að tryggja það að einstaklingar taki ábyrgð á eigin heilsuvernd. Þeim verður jafnframt að vera það kleift efnahagslega og félagslega að velja sér lifnaðarhætti í samræmi við þá heilbrigðisfræðslu sem stunduð er. Það þarf einnig að auðvelda einstaklingnum aðgang að mikilvægum upplýsingum í þessum efnum og stjórnvöld hafa þar mikilvægu hlutverki að gegna. Þeim ber t.d. að samstilla ýmsa þætti stjórnsýslunnar þannig að þeir verði samvirkir til að ná markmiðum heilbrigðisfræðslu og heilsugæslu. Einn þáttur þess er að auka hlutdeild almennings í eigin
heilsuvernd og mikilvægur liður í því er einmitt að gefa fólki kost á því að skráð sé í eina bók allt það sem viðkemur heilsufari þess. Upplýsingarnar eru þannig í fórum einstaklingsins eða umsjáraðila hans allt frá vöggu til grafar. Þar getur einstaklingurinn fylgst með eigin heilsufari, haft eftirlit með því og tekið ábyrgð á því á virkari hátt.
    Ég vil geta þess, virðulegi forseti, að heilsufarsbækur hafa verið notaðar meðal ýmissa annarra þjóða um nokkurt skeið með góðum árangri. Það skipulag að hafa heilsufarsbók eykur ábyrgð og vitneskju einstaklingsins um eigið heilbrigði og heilsufar og skírskotar jafnframt og hvetur til þátttöku. Ég vil ítreka það að heilsufarsbók, sem hér er lagt til að verði hönnuð og fylgi hverjum einstaklingi, er einfaldur og ódýr liður í heilbrigðisþjónustunni sem ýtir undir ábyrgð einstaklingsins og er í fyllsta samræmi við yfirlýst markmið og stefnu heilbrigðisyfirvalda.
    Ég vil að lokinni þessari umræðu, virðulegi forseti, leggja til að tillögunni verði vísað til síðari umr. og hv. félmn. Sþ. Ég vil leggja á það áherslu að hún fái nú afgreiðslu. Það hafa ekki orðið miklar umræður um hana á þeim tveimur þingum þar sem hún hefur verið flutt, en mér hefur heyrst það utan funda að margir þingmenn séu henni hlynntir og þyki þetta sjálfsagt mál og til mikilla bóta til þess að auka ábyrgð fólks og fá það til þess að taka virkan þátt í því forvarnarstarfi sem á auðvitað að vera aðaláhersluatriðið í heilsugæslunni.