Friðrik Sophusson (um þingsköp) :
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir það sjónarmið sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni. Ég er reyndar næstur á mælendaskrá og vil taka það fram að mér finnst afar slæmt að slíta þurfi umræðu eins og þessa í sundur jafnmikilvæg og hún er, ekki síst vegna þess að það skuli gerast að haldinn er fundur í þingnefnd á venjulegum þingtíma.
Mér er hins vegar ljóst að fundur í hv. utanrmn. mun vera um mikilvægt málefni og tel þess vegna eðlilegt að á það sé fallist að þessari umræðu sé frestað. Ég hef í viðræðum mínum við hæstv. viðskrh. fallist á það að hann taki hér til máls örstutt til kl. 3.30 og komi fram fyrir mig á mælendaskránni. Hann þarf síðan að víkja af fundi og þess vegna finnst mér eðlilegt að umræðan haldi áfram á morgun og hæstv. ráðherrar verði viðstaddir þá umræðu því ég hygg að umræðan muni þá ekki síður snúast um evrópska efnahagssvæðið og hvernig þessar fyrirhuguðu lagabreytingar tengjast því starfi sem fer fram á þeim vettvangi. Í trausti þess að eftir þessu verði farið finnst mér eðlilegt að umræðunni verði frestað.