Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 1. þm. Reykv. tillitssemina og hv. 6. þm. Reykv. einnig. Meginkostur þessa frv. er sá að í því eru dregin saman í einn stað ákvæði um heimildir erlendra aðila til að fjárfesta í atvinnurekstri á Íslandi. Þegar þetta frv. verður að lögum verður eytt margvíslegri réttaróvissu sem ríkt hefur á þessu sviði. Ég stend hér fyrst og fremst upp til þess að lýsa stuðningi mínum við þetta frv. sem hæstv. forsrh. hefur gert ítarlega grein fyrir. Mér er hins vegar ekki launung á því að ég hefði viljað sjá ákvæði frv. ganga lengra í frjálsræðisátt en raun ber vitni. Þar á ég einkum við ákvæðin um heimildir erlendra banka til starfsemi á Íslandi, en ég tel að það væri íslensku atvinnulífi hagkvæmast að ekki væru takmarkanir á starfi erlendra banka hér á landi. Ákvæðin um heimild til reksturs útibúa eru vissulega skref í rétta átt, en ég tel ekki ástæðu til þess að takmarka rétt erlendra banka til þess að setja hér á fót dótturbanka eða til þess að kaupa hlut í íslenskum hlutafélagabönkum umfram þann fjórðung sem frv. gerir ráð fyrir. Reyndar má segja að heimildin til útibúarekstrar gangi lengra en eignarheimildirnar.
Ég tel ekki sterk rök mæla með því heldur að hafa í lögum takmarkanir á eignarhlut erlendra aðila í atvinnufyrirtækjum sem stunda flugrekstur á Íslandi, tel reyndar að það þjóni ekki atvinnuhagsmunum hérlendra manna. Hér er reyndar fleira fólk í landinu með menntun á þessu sviði en innlend atvinnutækifæri eru fyrir. Því ættum við fremur að laða erlent fjármagn til þessa atvinnurekstrar en hið gagnstæða. Ég bendi á að vöruflutningaflugfélagið Cargolux, sem Flugleiðir áttu í upphafi 1 / 3 í, hefur ávallt verið í minnihlutaeign Lúxemborgarbúa þar sem þetta fyrirtæki er staðsett og er það þó eitt af mikilvægustu atvinnufyrirtækjum í því landi.
Ég ætla þá að víkja örfáum orðum að ákvæðum 4. gr. sem eru ákaflega mikilvæg. Ákvæði 1., 2. og 3. tölul. eru sjálfsögð. Á sviði útgerðar og fiskvinnslu eru núgildandi lagaákvæði bæði úrelt og óskýr. Hér er bætt úr því. Ég tel mikilvægan þann greinarmun sem gerður er í 2. tölul. á frumvinnslu sjávarafla og frekari framleiðslu úr honum. Ég tel að 3. tölul. þurfi að útfæra nánar með breytingu á orkulögunum, ekki síst í sambandi við stofnun hins evrópska efnahagssvæðis sem nú er unnið að samningum um. Mér sýnist að ákvæði 7. tölul. í 4. gr. gætu orðið nokkuð þunglamaleg í framkvæmd og varla nauðsynleg.
Ég hef fallist á, eins og ég hef fallist á að styðja frv. í heild, að styðja ákvæði 10. gr. frv. þar sem gert er ráð fyrir sérstakri ráðgefandi nefnd um erlenda fjárfestingu. Ég tel hins vegar hættu á að slík stofnun, ef henni er ekki beitt rétt, gæti orðið til þess að fæla frá erlenda fjárfestingaraðila. Auðvitað verður reynslan að leiða í ljós hvernig þetta reynist og þá er líka ástæða til að benda á að það kann að orka tvímælis að löggjafinn blandi sér í framkvæmdarvaldsstörf með þeim hætti sem þarna er gert ráð fyrir. En til þess að koma málinu fram, til þess að koma á
þeim framförum sem í frv. felast, tel ég rétt að taka þennan hlut með líka.
Ég tel til mikilla bóta ákvæðin í 5. gr. um eftirlit Seðlabankans með erlendri fjárfestingu, en það hefur hingað til reynst dálítið erfitt að fá upplýsingar um umfangið á þessu sviði.
Virðulegi forseti. Ég tel þetta frv. eins og þegar hefur komið fram mikið framfaraskref og ég styð það með þeim ábendingum sem ég hef hér látið í ljós. Ég tel mikilvægt að það verði að lögum á þessu þingi, ekki síst vegna samninganna um hið evrópska efnahagssvæði sem fram undan eru.