Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson) :
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um mannanöfn en það mál hefur þegar fengið meðferð í hv. Ed. Um málið var þar alger samstaða sem er mjög mikilvægt því að mannanöfnin eru einn af grunnþáttum íslensks máls og íslenskrar málhefðar. Ég tel því ekki ástæðu til þess að hafa ítarlega framsögu um málið í þessari virðulegu deild og vísa til umræðna sem fram hafa farið um það í fyrri deild að öðru leyti en því að ég mun geta um nokkur meginatriði frv.
Frv. er samið af nefnd sem var skipuð 2. okt. 1989 og í áttu sæti dr. Guðrún Kvaran orðabókarritstjóri, sem var formaður nefndarinnar, dr. Ármann Snævarr fyrrv. hæstaréttardómari, Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri og Svavar Sigmundsson dósent. Áður hafði fyrrv. menntmrh. Sverrir Hermannsson falið þeim Ármanni Snævarr og Hallgrími Snorrasyni að endurskoða gildandi mannanafnalög en þeir höfðu ekki lokið því verki.
Í því skipunarbréfi sem nefndin fékk var henni falið að endurskoða frv. til laga um mannanöfn sem lagt var fram á Alþingi sem stjfrv. á 91. og 92. löggjafarþinginu árið 1971. Var málinu þá vísað til ríkisstjórnarinnar. Auk þess var í þessu skipunarbréfi sem ég undirritaði í október 1989 vísað til ályktunar kirkjuþings frá 1986 þar sem skorað var á ráðherra að beita sér fyrir endurskoðun á lögum um mannanöfn. Nefndin studdist eins og fram kom í skipunarbréfinu við hin eldri frv. svo og við þann veruleika að mannanafnalögin frá 1925 hafa verið erfið í framkvæmd eins og kunnugt er og hefur þar margt verið losaralegra en vera þyrfti.
Sú meginbreyting hefur orðið á síðustu áratugum í þessum efnum að erlend áhrif á nöfn hér á landi hafa stóraukist. Það er þrennt sem kemur þar til. Í fyrsta lagi hafa áhrif erlendra tungumála og siða farið hríðvaxandi hér á landi á undanförnum árum. Í öðru lagi hefur orðið æ algengara að erlendir menn hafa flust til landsins, sest að hér og eignast börn. Og í þriðja lagi hefur þeim Íslendingum sem dveljast í útlöndum við nám eða störf fjölgað að mun og er drjúgur hluti íslenskra barna fæddur og alinn upp í útlöndum og þeim gefin nöfn þar. Þessi þróun hefur haft ýmis áhrif gagnstætt gildandi lögum frá 1925 og hefur reynst erfitt að stemma stigu við henni.
Frv. sem hér liggur fyrir, virðulegi forseti, er að talsverðu leyti byggt eins og ég sagði á frv. frá árinu 1971, en þó er vikið frá því í veigamiklum atriðum. Það má sérstaklega nefna að í frv. er ekki gert ráð fyrir því að heimilt verði að taka upp ný ættarnöfn eins og frv. lítur nú út. Á hinn bóginn er komið talsvert til móts við óskir um heimildir til notkunar ættarnafna á íslenskum börnum erlendra ríkisborgara sem búsettir eru hér á landi.
Í I. kafla frv. er fjallað um eiginnöfn. Þar er í upphafi haldið þeirri meginstefnu, sem fram kemur í gildandi lögum og einnig var í frv. frá 1971, að barni skuli gefið eitt eiginnafn eða tvö. Gert er ráð fyrir tilteknu eftirliti í þessu efni, en það byggist fyrst og fremst á þrennu, þ.e. á skrá um heimil nöfn sem mannanafnanefnd skal semja, á eftirliti presta, forstöðumanna skráðra trúfélaga og þjóðskrár og málskoti til mannanafnanefndar í álitamálum um nafngjafir og loks á þeirri skyldu þjóðskrár að taka ekki til skráningar nafn nema það sé á mannanafnaskrá eða samþykkt af mannanafnanefnd. Í gildandi lögum eru fyrirmæli um útgáfu skrár um þau mannanöfn sem bönnuð eru. Slík skrá hefur aldrei verið gefin út og eðli málsins samkvæmt er vandséð að slík skrá verði nokkurn tíma samin svo að raunhæft sé. Í þessu frv. er þess vegna gert ráð fyrir því eins og í frv. frá 1971 að samin verði skrá um þau eiginnöfn sem heimil teljast.
Í II. kafla frv. er fjallað um kenninöfn. Á sama hátt og í frv. frá 1971 tekur hugtakið kenninafn í þessu frv. til hvers konar kenningar samkvæmt lögunum, þ.e. að menn kenna sig til eiginnafns föður eða móður í eignarfalli, að viðbættu son eða dóttir, og til ættarnafns. Sem fyrr segir er gert ráð fyrir að menn geti kennt sig jafnt til föður eða móður og að jafnt sé heimilt að láta ættarnöfn ganga í kvenlegg sem karllegg. Hins vegar er lagt til að mönnum sé aðeins heimilt að bera eitt kenninafn. Í þessu sambandi skal bent á að svo virðist sem vaxandi tilhneigingar gæti til þess að menn beri tvö kenninöfn eins og hv. þm. örugglega þekkja.
Í III. kafla frv. er fjallað um mannanafnanefnd, skipun hennar og verkefni. Hlutverk nefndarinnar samkvæmt frv. er áþekkt því sem gert hafði verið ráð fyrir á sínum tíma. Þetta er nefnd sérfræðinga og er lagt til að tveir nefndarmenn verði skipaðir eftir tilnefningu heimspekideildar Háskólans en einn eftir tilnefningu lagadeildar. Ætlast er til að mannanafnanefndin gegni í aðalatriðum þríþættu hlutverki, þ.e. að semja skrá um eiginnöfn sem heimil teljast samkvæmt lögunum, að fella úrskurði og vera til ráðuneytis um nafngjafir.
Í IV. kafla frv. eru ýmis ákvæði um skráningu og notkun nafna. M.a. er kveðið á um gildistöku nafnbreytinga, um samræmi í skráningu nafna á þjóðskrá og nafnnotkun manna. Til þess er ætlast að í skiptum við opinbera aðila í lögskiptum og við samningsgerð riti menn ævinlega nafn sitt eins og það er skráð á þjóðskrá. Flest ákvæði þessa kafla voru í frv. frá 1971 og um sum gilda hliðstæðar reglur í norrænum mannanafnalögum.
V. kafli frv. geymir ákvæði til að hindra misnotkun nafns annars manns, ákvæði um viðurlög, heimild til setningar reglugerðar um gildistöku laganna og kynningu þeirra. Gert er ráð fyrir því að lögin taki gildi hálfu ári eftir að þau hafa verið staðfest á Alþingi og að ráðuneytinu sé ætlað að kynna efni þeirra á þeim tíma. Í frv. er gert ráð fyrir því að forræði þessara mála flytjist frá menntmrn. til dóms - og kirkjumálaráðuneytisins svo sem gert var ráð fyrir í hinum eldri frumvörpum og öll rök mæla með.
Eins og ég gat um áður, virðulegi forseti, var um þetta mál víðtæk samstaða í hv. Ed., menntmn. deildarinnar og í deildinni sjálfri. Ég vænti þess að svo verði einnig hér í þessari virðulegu deild og legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.