Margrét Frímannsdóttir :
Virðulegi forseti. Ég get tekið hér undir fögnuð annarra hv. þm. varðandi það að nú eigi að fara að vinna af fullum krafti að skógrækt á Fljótsdalshéraði. Engu að síður vakna ákveðnar spurningar hjá mér við yfirlestur þessa frv. sem ekki fást svör við í því nefndaráliti sem nú liggur fyrir. Þess vegna hefði ég viljað fá svör hjá hæstv. landbrh. um þessa áætlun á Fljótsdalshéraði þar sem talað er um skógarbúskap og í fyrsta skipti skógarbúskap svo að einhverju nemi. Er reiknað með því að þessi búskapur komi að fullu í staðinn fyrir hefðbundinn búskap? Koma bætur vegna riðuniðurskurðar, sem í mörgum tilvikum eru á sömu jarðir og áætlað er að fái 97% ríkisframlag vegna kostnaðar við skógrækt, að einhverju leyti inn í þetta dæmi? Jafnframt hefði ég viljað heyra, þar sem í kringum þetta verkefni hefur verið stofnað hlutafélag og aftur og aftur hefur heyrst í fjölmiðlum að ríkið sé hluthafi í því félagi um byggingu gróðurhúss, þess stærsta og fullkomnasta hér á landi, jafnvel á Norðurlöndunum og jafnframt það dýrasta. Er ríkið hluthafi í þessu gróðurhúsi? Ef svo er, hversu hátt hlutfall er áætlað að verði framlag ríkisins við lok byggingarinnar? Það er vissulega rétt sem hæstv. landbrh. sagði hér að vel skal vanda það sem lengi á að standa því að eftir þeim upplýsingum sem maður hefur í gegnum fjölmiðla þá er þetta dýrasta gróðurhús sem byggt hefur verið á landinu og þó búum við við það að byggingarkostnaður gróðurhúsa hjá garðyrkjubónda er um það bil helmingi hærri en gerist annars staðar á Norðurlöndum. Ég hefði viljað fá aðeins meiri upplýsingar um það hvaða hlutverki þessi bygging og þetta hlutafélag gegnir í allri þessari starfsemi. Það kom líka fram að hér er um að ræða umfangsmestu áætlun sem gerð hefur verið um skógrækt í landinu. Það verður að segjast að eftir öll þau ár sem Skógrækt ríkisins hefur starfað er dálítið einkennilegt að ekki skuli hafa verið gerð svo ítarleg áætlun fyrr og er það þó vissulega fagnaðarefni að að þessari áætlun standa bændur. Því að það hlýtur að koma að því að bændur landsins taki að stærstum hluta við skógrækt og landgræðslu, verkþættinum, framkvæmdaþættinum í það minnsta. Þarna er vissulega kominn vísir að því en þó með því að ríkið leggur fram tæplega 100% af kostnaði við þessa skógrækt og hefði kannski mátt mæta því með því að beina framlögum sem eru til Skógræktar ríkisins meira inn á þessar brautir, í skógrækt á Fljótsdalshéraði og á öðrum svæðum landsins.
Ég vil líka spyrja um þær eyðijarðir sem þarna er um að ræða. Það er ákaflega lítill munur á framlögum til skógræktar á jörðum sem eru í ábúð og svo aftur á hinum sem eru í eyði. Það hljóta að vera allt, allt önnur rök fyrir þessum framlögum.