Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að bera fram þessa fyrirspurn. Ég veit að hann er mikill áhugamaður um sölu ríkisfyrirtækja gagnstætt því sem ýmsir aðrir þingmenn Sjálfstfl. virðast vera, aðaláhugamenn um það að ríkið eigi áfram fyrirtæki, helst í útgerð og helst á sem flestum sviðum. En það er gleðilegt að innan Sjálfstfl. eru enn áhugamenn um sölu ríkisfyrirtækja og eru þeir velkomnir í hóp okkar hinna sem eru nú að reyna að vinna að því verkefni við litlar undirtektir.
Svarið við þessari fyrirspurn er hins vegar skýrt. Það hafa engar ákvarðanir verið teknar um það hvernig þessi heimild verði nýtt. Það hafa ekki farið fram viðræður milli fjmrh. og iðnrh. um þetta mál. Að sjálfsögðu verður farið með málið, ef til kemur að þessi heimild verði nýtt, að lögum. Það voru sett lög um prentsmiðjuna Gutenberg fyrir ekki löngu síðan og þeim lögum verður að sjálfsögðu fylgt.
Ég get í sjálfu sér ekki sagt neitt mikið meira um málið. Málið hefur ekki komið til neinnar sérstakrar umfjöllunar milli fjmrn. og iðnrn. Það hafa engar ákvarðanir verið teknar um það hvort eða hvernig þessi heimild verður nýtt, hvort það verður í tíð núverandi þings eða hins næsta. En að sjálfsögðu verður Alþingi látið fylgjast með því máli.