Flm. (Sigrún Helgadóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. 2. þm. Austurl. fyrir orð hans og góðar undirtektir við þá till. sem hér er lögð fram. Vegna þeirra orða sem hann hafði um þá tillögu sem ég get um í grg. og lögð var fram að hans frumkvæði, þá vissi ég fullvel um hana, eins og þar kemur fram. Hins vegar hræðist ég það verðmætamat sem ríkir í þessu landi og vald embættismanna. Það er ekki saman að jafna þeim fjárráðum sem annars vegar stofnun eins og Landsvirkjun hefur og hins vegar stofnun eins og Náttúruverndarráð. Það hefur oft viljað brenna við að Alþingi leggur ákveðnar skyldur á herðar stofnunum, eins og það gerir í rauninni í umræddri þáltill. Þar er lögð ákveðin skylda á herðar Náttúruverndarráði, en það fylgir ekki sá hugur máli að fjárveitingar séu nægar og allt starf sem fer fram hjá Náttúruverndarráði mótast mjög af fjársvelti, því miður.
    Þetta eru hinar köldu staðreyndir þessa máls og tillaga Kvennalistans var kannski fyrst og fremst lögð fram til að vekja athygli á því og reyna að spyrna við fótum svo að tekin væru frá þessi tvö vatnsföll og ég heyrði að hv. 2. þm. Austurl. var mjög sammála því vali og ég hygg að það séu flestir. Þessar ár hafa margoft verið nefndar í mörg ár. Það hefur ekki tekist formlega að taka þær frá þó svo að ég telji að ef þjóðin fengi að ráða, þá gerði hún það. Ég hygg að fæstir þegnar þessa lands vildu sjá vatnsföll eins og Gullfoss og fossakeðjuna í Jökulsá á Fjöllum hverfa og landsvæði eins og þau svæði sem eru meðfram þessum ám, landsvæði eins og svæðin meðfram Jökulsá á Fjöllum, svæði eins og við upptök Jökulsár, Kverkfjöllin, Krepputungan, Hvannalindir, ýmis búsvæði hreindýra og fleiri dýrgripir sem eru meðfram Jökulsá á Fjöllum. Og meðfram Hvítá annars konar landsvæði en líka merkileg, Hvítárvatn, Hvítárnes og Gullfoss, Geysissvæði, ekki langt frá, Brúarhlöð, Pollengi og þannig mætti lengi telja. Ef þessum ám er raskað þá raskast líka öll þessi svæði og við vitum ekki alveg hvað þar henti.
    Við eigum nóg af öðrum ám og það hefur aldrei þótt góður búskapur að eyða öllu strax, heldur geyma eitthvað. Það að friðlýsa þessi svæði þýðir í rauninni fyrst og fremst það að þau eru sett aftast í röðina. Það er ekki að þeim gengið fyrr en heimsbyggðin væri komin í nauð og það gerist nú vonandi ekki. En ég vil leggja áherslu á að þessi tillaga fái hér hraða umfjöllun og þingmenn sjái sér fært að samþykkja hana þótt stutt sé eftir af þingtíma. Ég sé ekki að það sé flókið mál og tel að vilji sé allt sem þarf.