Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) :
Herra forseti. Ég vil byrja með því að þakka þá umræðu sem hér hefur orðið um þetta frv. þó að ég harmi að hún hefur verið svo sundurslitin. Hér er áreiðanlega um eitt stærsta mál þingsins að ræða og skal ég reyna að svara í nokkrum orðum því sem hér hefur komið fram.
Svo að ég komi fyrst að afturfótaræðu hv. 6. þm. Norðurl. e., þá er það rétt hjá honum að það eru rýmkanir í fylgifrv. enda tók ég það fram að á fjölmörgum sviðum eru rýmkanir. Það má kannski kalla það fyrst og fremst hreinsanir. Ef menn vilja hafa hlutina áfram eins og þeir eru, sem ég held að enginn hafi lagt til nema hv. þm., þá kemur mér það mjög á óvart og mig grunar að þá yrði þetta eins konar afturfótafæðing okkar Íslendinga inn í samfélagið í kringum okkur.
Í fylgifrv. er fyrst og fremst rýmkað þannig að horfið er frá kröfu um ríkisborgararétt og eins árs búseta látin koma í staðinn. Þetta er samræmt í gegnum þau fjölmörgu lög sem núna fjalla um heimildir erlendra aðila til að taka þátt í atvinnurekstri hér á landi. Þar er líka verið að breyta ákvæðum eins og þeim að fyrirtæki sem hafa leyfi til atvinnurekstrar hér á landi hafi ekki skýlausan rétt til að eignast þá fasteign sem þau verða að hafa vegna þessa atvinnurekstrar.
Nú er það þannig að fyrirtæki getur fengið leyfi til atvinnurekstrar hjá hæstv. iðnrh. og verður þá að leita til hæstv. dómsmrh. til að fá leyfi fyrir óhjákvæmilegri fasteign í því skyni. Ég er ekki að segja að þetta hafi stöðvað en ég held að flestir sjái að þetta er ekki eðlileg fæðing í slíkum tilfellum, ef ég má nota það orð. Þarna er hreinsað til og það held ég að sé óhjákvæmilegt hvað sem öðru líður.
Ég vil annars segja um umræðurnar almennt að ég þakka fyrir margt sem þar hefur komið fram. Ég hef skilið umræðurnar þannig að allir séu því sammála nema hv. síðasti ræðumaður að hér þurfi að hreinsa til. Hins vegar eru skiptar skoðanir um það hvort of langt sé gengið í frjálsræðisátt eða ekki. Og það undrar mig ekki neitt því að hér er, eins og kom fram ef ég man rétt hjá hv. þm. Ragnari Arnalds, um málamiðlun að ræða. Þessi mál hafa verið í meðferð allt frá árinu 1987 og öll viðleitni hefur vissulega verið í þá átt að ná sem breiðastri samstöðu og í því felst að sjálfsögðu málamiðlun. Það er hárrétt sem kom fram hjá hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni að frv. er of seint fram komið. Ég hefði helst viljað hafa það í upphafi þings. En ástæðan er hreinlega sú að það er búið að vinna mjög mikið í þessu, leita málamiðlana. Það er búið að ræða við fjölmarga aðila, senda út til umsagnar o.s.frv. og reynt hefur verið að taka tillit til hinna ýmsu sjónarmiða.
Það hefur komið fram, t.d. í ræðum hæstv. viðskrh. og ræðu hv. þm. Ragnars Arnalds, að innan stjórnarflokkanna er þetta líka málamiðlun. Það er málamiðlun innan míns flokks. En ég sagði hér í upphafi míns máls að ég tel að satt að segja hafi tekist ótrúlega vel að ná þessari málamiðlun, komast inn á
þennan meðalveg. Ég gæti sjálfur sagt að það eru einstök atriði hér sem ég hefði kosið að hafa á annan veg, en ég ætla ekki að fara að telja þau upp. Ég tel það ekki þjóna neinum tilgangi því að ég styð heils hugar þá málamiðlun sem hér hefur fengist sem er, eins og ég segi, mikil hreinsun og afar nauðsynleg vegna þeirra viðræðna sem við eigum nú í og ætla ég að koma að því dálítið síðar.
Hv. 1. þm. Reykv. hafði orð á því snemma í sinni ræðu að ég virtist orðinn því hlynntur að vestrænar leikaðferðir giltu. Ég hefði einhvern tíma sagt að þær ættu ekki við hér á Íslandi. Þetta er nú eitthvað bæði og því ég hef flutt margar ræður og sagt að a.m.k. í sambandi við lánskjaravísitöluna ættum við að taka upp sömu reglu og er í vestrænum löndum. Ég held að við hljótum að gera það núna þegar við opnum fyrir markaðinn og þar verða þessar sömu leikreglur að gilda, að fjármagnið búi við svipaða aðstöðu og það býr í þessum opna fjármagnsmarkaði. Hins vegar hef ég oft sagt að vegna smæðar landsins verði að sjálfsögðu að taka tillit til sérstöðu þess á ýmsum sviðum, t.d. í erlendri fjárfestingu. Við kunnum að þurfa að hafa þar einhver takmörk eins og eru sett í þessu frv., t.d. með hámark fjárfestinga á hverju ári verðum við að geta haft meiri bremsur en stórveldin í kringum okkur sem eru ekki í neinni slíkri hættu. Ég vona því að ekki sé alhæft þegar mér eru gerðar upp skoðanir. Þetta þarf vitanlega að skoða í hverju máli.
Hv. þm. minntist á ýmislegt sem ég tek undir með honum að er erfitt í framkvæmd eins og t.d. gagnkvæmnin. Það er vitanlega erfitt að útfæra hvernig á að fylgja eftir þessari gagnkvæmni og hvernig á að fylgja eftir atriðum eins og þeim þegar menn hafa hlotið dóm í sínu landi o.s.frv., og ýmsu því sem þeirri nefnd og hæstv. viðskrh. er ætlað að fylgjast með, eins og t.d. 25% fjárfesting í viðkomandi grein. Þetta er alveg hárrétt. Þetta eru ákvæði sem eru að mörgu leyti erfið í framkvæmd en eru miklu frekar sett inn til þess að þarna sé hægt að fóta sig ef menn vilja. Og vitanlega tengist þessu það ákvæði sem hv. þm. gerði einnig að umræðuefni, tilkynningarskylda til Seðlabankans og birtingarskylda Seðlabankans. Það má segja kannski að birtingarskyldan sé ekki beinlínis háð þessu, en hv. þm. taldi orka tvímælis að birta ætti. En ég tel nú að í opnu þjóðfélagi eins og okkar sé það mjög gott að menn geti gert sér grein fyrir hvernig þessi þróun er á þeim mótunartíma sem hlýtur að vera fram undan að þessu leyti.
Mér hefur heyrst allir þingmenn vera sammála því að hafa strangar reglur um sjávarútveginn. Að vísu kom fram, ef ég man rétt, hjá hv. þm. að kannski væri besta leiðin í þessu sala veiðileyfa. Ég er ekki þeirrar skoðunar. Ég held einmitt að ef við seljum veiðileyfi á annað borð verði krafan frá erlendum aðilum að mega hafa aðgang að slíkum kaupum meiri en eins og það er núna. Hins vegar er ekki þarna nein hætta í sambandi við evrópskt efnahagssvæði því útgerðin er ekki í samningunum. Hún er ekki í samningunum svo ég vil bara leggja það til hliðar. Það er
sjávarútvegsmál og við getum ráðið því fullkomlega sjálfir. Hitt er miklu meira mál í þessu sambandi af því að ég er nú að tala bæði um þetta mál og evrópskt efnahagssvæði, ég tala um það nokkurn veginn í einu lagi því að það tengist mjög, það er miklu meira mál sem hér hefur komið fram hvernig skilið verður á milli þess sem menn vilja kalla frumvinnslu í sjávarútvegi og lokavinnslu, t.d. í neytendapakkningar. Þar kann oft að verða mjög erfitt að greina á milli þó að gert sé ráð fyrir því í 2. tölul. 4. gr. Spurningar vakna eins og t.d. um fyrirtæki sem er í lokavinnslu og færir sig smám saman yfir í frumvinnsluna, kaupir fiskinn af bátunum, frumvinnur hann líka og vinnur hann svo áfram. Hér er um mál að ræða sem sú nefnd sem er gert ráð fyrir að verði skipuð kann að þurfa að fjalla um. Ég lít svo á að þetta fyrirtæki, ef það er komið yfir í frumvinnsluna, hafi ekki rétt til að eiga hlut í útgerðarfyrirtæki. Ef það er eingöngu í lokaframleiðslunni, þá má það samkvæmt þessu eiga hlut í lokaframleiðslunni, ef það er skráð sem íslenskt fyrirtæki að sjálfsögðu. En ef um einhverja erlenda aðild er að ræða getur það það ekki, ef það verður með í frumvinnslunni.
Það er hárrétt hjá hv. þm. að frá eignarrétti á jarðvarma, eins og kom fram hjá hæstv. viðskrh. held ég alveg örugglega, þarf að ganga betur með breytingu á lögum um þau réttindi. Og það er rétt hjá hv. þm. að innan þingflokks Framsfl. hafa verið skiptar skoðanir um þetta. En ég vil fullyrða að einmitt í sambandi við að tryggja þetta er flokkurinn reiðubúinn að endurskoða það ákvæði. Þarna er nánast spurning um það hvar eigi að draga mörkin á milli heimildar einstaklingsins til að virkja og svo hins sem yrði þá einkaréttur hins opinbera.
Það er tiltölulega auðvelt að gera, t.d. er alveg ljóst að það er enginn eða mjög lítill áhugi hjá erlendum fyrirtækjum að virkja lágvarma. Þá er spurningin: Geta menn bundið þetta við háhita og sömuleiðis hve djúpt er borað o.s.frv.? Við þurfum að skoða það og ég veit að hæstv. iðnrh. er með það mál þegar í athugun.
Ákvæðið um bankana er atriði sem skoðanir hafa verið töluvert skiptar um. Hér er farin meðalleið eða málamiðlun. Eins og kom fram í einni ræðu er sú heimild að starfrækja hér útibú í raun og veru mjög víðtæk. Stór banki erlendis sem setur hér upp útibú starfar að sjálfsögðu alveg á sömu nótum og innlendir bankar. Ástæðan fyrir því að niðurstaðan varð sú að halda, a.m.k. fyrst um sinn, örugglega meiri hluta í hlutafélagsbönkum í íslenskri eigu er ákveðinn aðlögunartími og reynslutími sem þarf að fást. Ég vil hins vegar lýsa þeirri skoðun minni að þarna tel ég mikilvægast að örugglega sé hér öflugur innlendur banki í innlendri eigu. Og ég er þeirrar skoðunar að þetta knýi á með það að hér sé a.m.k. einn öflugur ríkisbanki sem geti þá veitt ýmiss konar aðstoð sem þjóðarbúið þarf. Vitanlega yrði hann rekinn á bankalegum grundvelli en hlutverk ríkisbankanna hefur iðulega verið skilgreint svo að standa við bakið á innlendum atvinnuvegum og teygja sig eins langt og þeir treysta sér til að gera á viðskiptalegum grundvelli. En
það út af fyrir sig er afar mikilvægt að hér sé banki sem viðurkennir það sem kannski aðalskyldu sína.
Hv. 1. þm. Reykv. ræddi um rýmkun í blaða- og útvarpsrekstri. Það er rétt, það er gert ráð fyrir verulegri rýmkun frá fyrri hugmyndum. Þó ég geti ekki talað fyrir munn allra held ég að ástæðan sé fyrst og fremst sú að þetta er að verða svo alþjóðleg starfsemi. Hér fáum við yfir okkur efni frá gervihnöttum inn á hvert heimili eins og nú er og menn hafa þá spurt: Er ástæða til að halda því svo lokuðu? Menn geta jafnvel líka spurt: Er einhver áhugi, er einhver hætta á því að erlendir aðilar yfirtaki íslensk dagblöð með þennan litla markað? Það eru líklega ekki mörg íslensk dagblöð sem eru það arðbær að það verði verulegur áhugi á því og ég treysti þeim sem þar hafa tögl og hagldir til að ráða þeim dagblöðum sem þeir óska. Sú var nú beinlínis niðurstaðan að það var ekki talið svo nauðsynlegt sem e.t.v. var talið áður. Ég vil hins leggja á það ríka áherslu að ég tel afar nauðsynlegt að innlendir aðilar hafi öruggan aðgang að fjölmiðlun. Og það má vitanlega aldrei gerast að þeir glati þeim aðgangi sem nauðsynlegur er að fjölmiðlun.
Hv. þm. ræddi dálítið um bréf sem mér var ritað í því góða blaði, Tímanum. Ég er búinn að svara því. Ég veit ekki hvort það er birt í dag eða á næstunni, ég hef ekki skoðað það. (Gripið fram í.) Er það komið? Það er fínt. Þá get ég sparað mín orð þar.
Það hefur alltaf legið fyrir að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hefur haft sérstöðu í þessu máli, það hefur alltaf legið fyrir og ég geri að sjálfsögðu engar athugasemdir við það. Ég vissi að svo er og ég læt það vera.
Hv. 6. þm. Reykv. var nokkuð neikvæður gagnvart þessu frv. Ég skildi það svo og vona að það hafi verið rétt að hún teldi nauðsynlegt að draga upp varnarlínur, að þessar væru ekki nægilega styrkar. Ég skildi hana líka svo að hún teldi nauðsynlegt að hreinsa til í þeim frumskógi sem þarna er en nú væri of mikið opnað. Ég geri enga athugasemd við þetta, þetta er sjónarmið sem ég virði fullkomlega. Hv. þm. kvaðst efast um að tilganginum yrði náð með þessu frv. Mig langar til að fara nokkrum orðum um tilganginn með frv. Hann er í mínum huga tvíþættur. Annars vegar er löngu orðin nauðsyn á því að hreinsa til. Ég hef kynnst þessu á mínum árum sem ráðherra að það er satt að segja frumskógur oft að finna út hvaða reglur gilda. Ég vek athygli á þeim samanburði sem dreift var á því sem nú er og því sem er annars staðar. Hér kemur meira að segja fram í mjög mikilvægum liðum eins og lið 3.3. Fiskvinnslan, ákvæðin óljós. Þó sátu menn yfir að reyna að skilgreina hvaða ákvæði giltu í raun og veru um fiskvinnsluna. Og það er á mörgum fleiri sviðum sem ákvæðin eru óljós. Óljóst hvort ráðherra hefur í hendi sér að veita ótakmarkað leyfi eða ekki. Það er t.d. algerlega óljóst, og þó reyndar ekki, hvort erlendir aðilar geti komist bakdyramegin inn í íslenskan sjávarútveg. Erlendir aðilar hafa heimild til að stofna hér fjárfestingarfélög eða verðbréfa- og fárfestingarfélög. Þau teljast síðan íslensk og þau geta komist inn í alls konar rekstur, eignast skip og báta. Þetta er náttúrlega annar tilgangur og það var hann sem lá að baki þegar þetta verk var hafið 1986 -- 1987.
Hinn tilgangurinn sem ég hef svo lýst er að draga upp öruggari línur í viðræðum okkar við Evrópubandalagið um evrópskt efnahagssvæði. Og það var nú spurt, og reyndar hygg ég að hv. þm. Ragnar Arnalds hafi svarað því, hvort þetta hafi verið lagt fram sem okkar fyrirvari. Það er rétt hjá hv. þm. að þetta hefur ekki verið lagt fram sem okkar fyrirvari. Hins vegar hefur alltaf verið sagt í umræðunum að við þurfum að hafa fyrirvara gagnvart erlendri fjárfestingu. Við höfum bara ekki getað lagt fram í raun hvernig við viljum hafa reglurnar um erlenda fjárfestingu. Við höfum sagt, eins og ég sagði í Ósló og er vel rakið í bréfinu til mín frá hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni, ég sagði þar að við viljum hafa fullkomið vald yfir náttúruauðlindunum, þetta höfum við sagt. Og við höfum sagt að við þurfum að hafa aðlögunartíma og fleira þess háttar, en við höfum ekki getað skilgreint það nánar.
Ég fullyrði að þetta frv., ef það verður að lögum, verður lagt fram sem okkar till. um fyrirvara gagnvart erlendri fjárfestingu og það tel ég vera afar mikils virði. Þá eru þetta orðin íslensk lög sem við leggjum fram. Ég hef hins vegar sagt: Það kann vel að vera að það verði andstaða á vissum sviðum. Ég minnist þess að hv. þm. Ragnar Arnalds talaði um fyrirvara eins og 250 millj. kr. hámarksfjárfestingu á ári, 25% í einstökum atvinnugreinum, um ársdvöl hér á landi til að geta verið fullgildur aðili að stjórnum fyrirtækja og fleiru slíku. Það kann því vel að vera að um þessi atriði verði einhver átök, einhverjar deilur. En ekki, fullyrði ég, um sjávarútveginn, fiskvinnsluna, náttúruauðlindirnar. Ef við búum um þær eins og ég hef gert ráð fyrir með einkarétti ríkisins, þá fullyrði ég að á þeim sviðum verði ekki deilur. Það getur orðið gagnrýnt að útlendingar megi ekki eignast meiri hluta í hlutafjárbönkum, það kann að verða gagnrýnt. Þess vegna sagði ég í minni framsögu að það kann að vera að til að ná þeim samningum kjósi menn að gefa eitthvað eftir á slíkum sviðum. En ég vil ekkert um það fullyrða og mín tilfinning er sú að Evrópubandalaginu sé það ekkert óskaplega mikið kappsmál að hér verði bakkað til hins ýtrasta, alls ekki. En það leyfi ég mér að fullyrða að það er betra að hafa þessa varnarlínu en enga eins og þetta er í dag. Ég geri mér vonir um að þannig verði tilganginum náð og við getum lagt fram nokkuð hreinar línur.
Hv. þm. spurði um áhrif á íslenskt efnahagslíf og bankana o.s.frv. Það hefur ekki verið athugað enda held ég að það sé óskaplega erfitt, ég veit ekki hvað menn eiga að gefa sér í því sambandi. Ef hér væri stofnaður hlutafjárbanki, erlent útibú, þá eru margir okkar þeirrar skoðunar, og ég í vaxandi mæli, að það væri mjög heilbrigt. Við höfum sett okkur sem grundvallarmarkmið t.d. í vöxtum að þeir séu svipaðir og í okkar helstu viðskiptalöndum. Og ég tel að það væri
mikill áfangi í þá átt að hér kæmi banki sem byði vexti sem væru þeir sömu og í okkar helstu viðskiptalöndum.
Ég er nú svo bjartsýnn að ég tel að á mörgum sviðum okkar efnahagslífs sé nálægð við athafnalífið í kring mjög hollt og tel mig hafa af því verulega reynslu, t.d. í rannsóknum og vísindum þar sem ég tel að gott streymi á milli hafi verið mjög bætandi. Og ég er þeirrar skoðunar að einangrun sé ekki í myndinni, hún er það ekkert fyrir okkur. Þá förum við á afturfótunum, eins og hv. þm. frá Norðurl. e., Stefán Valgeirsson, talar um. Þá förum við á afturfótunum inn í einhvers konar þjóðasamsteypu. Mér leyfist nú að nota þessu þjóðlegu, innlendu lýsingu. Ég held að áhrifin geti að mörgu leyti orðið mjög góð. En undir hitt tek ég með hv. þm. að við þurfum vitanlega að gæta okkar sem smáþjóð á því að verða ekki gleypt. Það er í raun og veru málið. Svo spurningin er: Höfum við fundið þarna meðalleið? Ég heyri að hv. þm. telur ekki svo vera. Annars vegar að lokast ekki inni og hins vegar að hverfa ekki inn í svona ríkjasamsteypu.
Hv. þm. ræddi nokkuð um ferðaþjónustuna. Ég vil taka undir það að ég tel að þar sé brotalöm og ég tel ófæra þá staðreynd að mikið af erlendri ferðamennsku hér er rekið af aðilum erlendis frá með erlendum bifreiðastjórum og erlendum leiðsögumönnum. Ég tel hins vegar algerlega rangt að loka okkur af til að vernda ferðaþjónustuna. Við eigum þarna eins og annars staðar að setja almennar reglur. Við eigum að setja strangar kröfur um þekkingu leiðsögumanna á sögu og náttúru landsins, við eigum að framfylgja kröfum um próf bifreiðastjóra. Mér er sagt að margir þeirra hafi ekki meirapróf. Af hverju aka þeir um landið? Við eigum að framfylgja kröfum um innflutning matvæla sem er ekki nema að litlu leyti gert. Þá held ég að við séum í engri hættu. Ég er sannfærður um það að það stenst enginn erlendur leiðsögumaður íslenskum leiðsögumanni snúning í sögu og náttúru landsins. Og ég er sannfærður um það að íslenskar ferðaskrifstofur eru margfalt færari um að skipuleggja allt slíkt ef svona reglur eru settar og gilda þá að sjálfsögðu fyrir alla. Ég held hins vegar að ekkert sé að því þó að erlendar ferðaskrifstofur starfi hér á landi, að öllum líkindum með íslensku starfsliði, og séu í samkeppni við þær innlendu. Þarna er mjög gott dæmi um það sem ég tel blasa við okkur, að setja heilbrigðar, strangar reglur og spjara okkur svo og standa okkur í samkeppninni með þeim reglum. Ég treysti Íslendingum mæta vel til að gera það.
Hv. þm. talaði töluvert um frv. og evrópskt efnahagssvæði og ég hef þegar komið töluvert inn á það. Ég lít svo á að þetta verði það sem við leggjum fram og engin deila um það, við leggjum það fram þegar kemur að því að afgreiða sérákvæði Íslendinga ef úr samningum um evrópskt efnahagssvæði verður. Ég sé ekki að það þurfi að hafa fleiri orð um það.
Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson er ekki hér viðstaddur. Ég hef þegar nefnt að hann taldi frv. of seint fram komið. Ég get út af fyrir sig tekið undir það en
sá tími hefur ekki verið illa nýttur að mínu mati. Það má vel vera, af því að sumt hef ég ekki skrifað hjá mér, að einhverjar spurningar hafi farið fram hjá mér og nokkur tími er liðinn, en ég vona að ég komist að meginatriðunum.
Ég vil aðeins í lokin segja það að ég treysti því að sú nefnd sem fær málið til meðferðar skoði það mjög vandlega, líka út frá þeim sjónarmiðum hvað það er mikilvægt að draga línurnar. Ég vona að það geti orðið samstaða um það að það verður að draga línu í gegnum þann frumskóg sem nú er, það verður að hreinsa þar til. Og ég vona að menn geti sameinast um að afgreiða frv. á þessu þingi. Ég tel það afar mikilvægt. Ég er algerlega mótfallinn því að þetta verði látið bíða og hanga, eins og hér kom fram áðan, það tel ég alrangt og kannski í allt of mörgum tilfellum það sem við gerum. Það verður svo vitanlega að ráðast hvar meiri hlutinn ákveður að línan skuli dragast og hvort hann vill á einhvern máta styrkja eða gera ákveðnari ýmis ákvæði sem hér eru gagnvart erlendum aðilum. Ég er fyrir mitt leyti tilbúinn til að skoða það allt saman þó að ég telji að búið sé að vinna svo mikið í því að afar erfitt verði að ná þar saman um miklar breytingar, en ekki loka ég á það. Aðalatriðið er að fá skynsamlegar og ákveðnar reglur í lög settar svo að við vitum að hverju við göngum.
Hér var rætt mikið um evrópskt efnahagssvæði og reyndar fjallaði hv. 1. þm. Reykv. um mörg önnur atriði í evrópsku efnahagssvæði en erlenda fjárfestingu. Ég tek undir það sem kom fram hjá hv. þm. að við þurfum að ræða það mál mjög mikið. Það hefur því miður mjög lítið gerst í því undanfarna tvo mánuði, en er kannski að komast á skrið aftur. Og af því að ég sé að hv. þm. er með svarbréf mitt til hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar þá veit hann að ég tel að við höfum staðið á þessum meginfyrivörum okkar í því sambandi. Hins vegar er það alveg ljóst að þeir eru ekki til lykta leiddir. Við eigum eftir talsvert mikla vinnu þarna sem ég skal ekkert fullyrða um.
Ég fagna því að mér hefur heyrst að flestir séu á því að það eigi að reyna að ná samningum um evrópskt efnahagssvæði, reyna það til þrautar. Ef það bregst verðum við að leita að sérstökum samningum. Í evrópsku efnahagssvæði er fjallað um viðskipta - og efnahagsmál og afar stór liður í því er einmitt erlend fjárfesting og fjármagnsflutningar sem eru náttúrlega nátengd mál. Við erum hér eins og réttilega hefur verið sagt að fjalla um afar mikilvægan þátt þess máls, en við þurfum að hafa þar hreint fyrir okkar dyrum.
Það var eitt atriði, herra forseti, sem mér láðist að minnast á sem ég tel afar mikilvægt. Það er eignaraðild að landi sem margir hafa spurt um og fjallað um. Við höfum skoðað það mjög mikið í allri umræðu um evrópskt efnahagssvæði. Í þessu frv. er gert ráð fyrir því að erlendur aðili sem hér starfar eigi kost á því að eignast land sem nauðsynlegt er fyrir hans atvinnurekstur. Þá hafa menn sagt: Kann ekki að fara svo að hann telji nauðsynlegt fyrir sinn atvinnurekstur að eignast heila dali og fjöll? Ég held að það sé afar langsótt og vek líka athygli á því að landbúnaðurinn er ekki í umræðunni um evrópskt efnahagssvæði. Hann er ekki með. Það er eins og með sjávarútveginn. Þar er ekki um það að ræða að erlendir aðilar geti hafið hér t.d. landbúnað eða fiskeldi, sem reyndar telst undir landbúnað. Svo það er ekki um það að ræða. Ég vildi aðeins slá á þetta sem ég skil afar vel að er viss ótti við.
Að öðru leyti skal ég ekki hafa um þetta fleiri orð og lýsi bara ánægju minni með þá umræðu sem hér hefur verið.