Friðrik Sophusson :
Virðulegi forseti. Það er ekki ætlun mín að setja hér á langa tölu. Ég talaði nokkuð langt mál fyrr í þessari umræðu og er í þeirri nefnd sem fær málið til skoðunar. Ég vil þó þakka hæstv. forsrh. fyrir að taka hér aftur til máls og skýra nokkur atriði sem skýra þurfti betur. Að vísu kom hann ekki inn á öll þau mál sem æskilegt hefði verið að fjalla hér um og sem gagnrýnd voru fyrr í þessari umræðu en auðvitað gefst tækifæri til þess síðar að taka upp þráðinn.
Það er athygli verðast við það sem hefur komið fram í þessari umræðu að stjórnarflokkarnir hafa náð því að miðla málum sín á milli í þessu frv. Nú blasir við hver ágreiningurinn er, ekki síst eftir ræðu hv. þm. Ragnars Arnalds sem taldi að með því að leggja þetta frv. hér fram og fá það samþykkt værum við að setja upp varnargirðingu. Á honum var að skilja, eins og hv. síðasti ræðumaður nefndi í sinni ræðu, að þessi varnargirðing væri fyrir okkur Íslendinga vegna samskipta og vegna samninga við önnur ríki, samninga sem nú eiga sér stað á milli EFTA og Lichtenstein annars vegar og Evrópubandalagsins hins vegar.
Það er athygli vert að sjá hvaða atriði það eru sem Alþb. hefur komið að í þessu frv. Ég verð að lýsa því yfir hér að mér finnst nánast öll þau atriði vera þess eðlis að ástæða sé til þess að þau fari út úr frv. og mun beita mér fyrir því í nefnd að fallið verði frá þeim atriðum sem Alþb. hefur lagt til að kæmu inn í þetta frv. Ástæðurnar eru auðvitað margvíslegar en ekki síst þær að með þeim efnisatriðum sem Alþb. hefur fengið framgengt við samningu frv. er verið að gera frv. mun óskýrara en það ella hefði þurft að vera.
Ég ætla ekki að fjalla hér og nú um leikreglur efnahagslífsins. Ég er hér með útskrift af stefnuræðu hæstv. forsrh. þar sem hann lýsti því yfir 3. nóv. 1988, þegar hann flutti sína fyrstu stefnuræðu fyrir núv. hæstv. ríkisstjórn
að frá 1985 hefði verið fylgt hefðbundnum vestrænum leikaðferðum í efnahagsmálum. Síðan tíndi hann til öll þau atriði sem mistekist höfðu af því að þetta ætti ekki við hér á landi. Það er því eðlilegt að draga þessa ályktun af hans orðum. En ég ætla að ítreka það nú að ég var að fagna því að hæstv. forsrh. væri kominn á þá skoðun að hér ætti að nota vestrænar leikaðferðir.
Það er aðeins að lokum atriði sem mig langar að fjalla um hér. Það snertir ekki beinlínis frv. heldur fremur þær umræður sem hafa átt sér stað núna um evrópska efnahagssvæðið. Ástæðan fyrir því að ég nefni það sérstaklega og vel það út úr af því að ég veit að tíminn er naumur er að okkur er sýndur sá heiður hér í dag að hæstv. utanrrh. er viðstaddur umræðuna og vonast ég til að hann hlaupi ekki á brott áður en henni lýkur. Hér hafa nefnilega átt sér stað talsverðar umræður um evrópska efnahagssvæðið og hvað þeir samningar þýða sem þar er verið að reyna að ná.
Við höfum lesið bréfaskipti hv. 2. þm. Austurl. og
hæstv. forsrh. Í því sambandi vil ég sérstaklega benda á að á bls. 18 í frv. er þess getið að þetta frv. hafi ekki verið samið með tilliti til þeirra samninga sem þar eiga sér stað. Og það er fullljóst og er auðvitað öllum ljóst að ef og þegar við göngum til samstarfs við aðrar Evrópuþjóðir um evrópskt efnahagssvæði verður að taka þessi mál öll upp á nýtt. Það er rétt að þær umræður snúast ekki um landbúnað og sjávarútveg en það er eitt atriði sem ég vil leggja sérstaka áherslu á. Það snýr að fullveldishugtakinu og sjálfsákvörðunarrétti. Ég held því fram og lýsi því hér yfir að forsrh. fer með rangt mál þegar hann í svari til hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar segir, með leyfi forseta: ,,Hins vegar ef við gerumst fullir aðilar að Evrópubandalaginu og missum tök á t.d. sjávarútveginum, orkulindunum eða landinu værum við ekki lengur fullvalda þjóð.`` Með þessu er hæstv. forsrh. að halda því fram að þjóð í Evrópubandalaginu sé ekki fullvalda. Ég spyr hæstv. utanrrh.: Telur hann Danmörku vera fullvalda ríki? ( Utanrrh.: Já.) Bretland? ( Utanrrh.: Já.) Írland? ( Utanrrh.: Já.) Frakkland? ( Utanrrh.: Já.) Ítalíu? ( Utanrrh.: Já.) Spán? ( Utanrrh.: Já.) Hver er munurinn á því að við værum í Evrópubandalaginu og þessum ríkjum? ( Forsrh.: Þau hafa ekki misst tökin á sínum náttúruauðlindum.) Við missum ekkert frekar tökin en þeir. Með öðrum orðum, hæstv. utanrrh. hefur með sex jáum sýnt fram á . . . (Gripið fram í.) ég spurði einungis um sex ríki --- að hæstv. forsrh. fer með rangt mál. Svo einfalt er þetta.
Það er nefnilega þannig að ríkin í Evrópubandalaginu geta sagt sig úr bandalaginu og hafa þess vegna sjálfsákvörðunarrétt þó að litlar líkur séu til þess að þær segi sig frá bandalaginu. Samkvæmt lögfræðilegum skilgreiningum liggur það alveg skýrlega fyrir að þessi ríki eru öll fullvalda. En ástæðan fyrir því að hæstv. forsrh. kýs að orða sína hugsun svona er ósköp einföld. Hann þykist vera að sýna fram á að það sé eðlismunur en ekki stigsmunur á evrópska efnahagssvæðinu annars vegar og á Evrópubandalaginu hins vegar.
Að allra síðustu af þessu tilefni og vegna þess að hæstv. forsrh. hneykslaðist á dr. Gunnari G. Schram, prófessor í stjórnlagafræðum, þá held ég að ég ljúki minni ræðu með því að lesa lokaorð dr. Gunnars sem hann viðhafði í blaðagrein af tilefni sjónvarpsþáttar. Það var sjónvarpsþátturinn, virðulegi hæstv. utanrrh., þar sem hæstv. utanrrh. ákallaði æðsta dómstól landsins, tengdamóður sína, og ætlaði að biðja hana að tala um fyrir dr. Gunnari G. Schram. Það hefur nú ekki tekist betur en svo að dr. Gunnar skrifar svo í lokaorðum sínum: ,,En þá grundvallarkröfu verður að gera til þeirra sem stjórnarfarslega ábyrgð bera á þessum málum að þjóðinni verði afdráttarlaust greint frá göllum ekki síður en kostum aðildar okkar að efnahagssvæði Evrópu. Það er jafnframt hin mesta ósvinna að ætla að reyna að rugla menn í ríminu með orðhengilshætti og hártogunum um eðli og inntak hins nýja efnahagssvæðis. Til þess er málið allt of mikilvægt.``
Virðulegi forseti. Mér er ljóst að ég get ekki bundið hæstv. ráðherra hér lengur. Þeir hafa öðrum hnöppum að hneppa, mjög mikilvægum reyndar. Mér er kunnugt um það. En ég óska eftir því í lok þessarar 1. umr. að innan tíðar gefist hv. alþm. kostur á að ræða frekar en hér hefur verið tækifæri til um evrópska efnahagssvæðið, um stöðuna í því máli, hvort Íslendingar hafa haldið á þeim fyrirvörum sem hæstv. forsrh. gerði í sinni ræðu í Ósló á sínum tíma og að fyrir liggi álit okkar bestu manna um það til hvaða niðurstöðu slíkar viðræður geta leitt. Það er vissulega kominn tími til þess að Alþingi Íslendinga fái að fylgjast með þessu máli með svipuðum hætti og mér er kunnugt um að þing annarra EFTA-þjóða hafa fengið að gera. Skal ég láta nægja að nefna Noreg og Svíþjóð í því sambandi.