Friðrik Sophusson :
    Virðulegi forseti. Það er óþarfi að hafa mörg orð um þetta frv. sem hér er til umræðu. Framsöguræða hæstv. forsrh. var að vonum stutt, enda hafði hann drepið á í sinni framsöguræðu fyrir hinu fyrra máli, sem hér var á dagskrá, flest atriði sem koma fram í þessu frv. Ég sé því ekki ástæðu til að ræða þetta frv. heldur, hef tækifæri til þess að líta á það í nefnd. Ég fagna ummælum hæstv. forsrh. og skil þau á þann veg að hann muni beita sér fyrir því að hér á þingi verði ítarleg umræða um stöðu viðræðnanna, sem nú fara fram og virðast komnar á lokastig, segja sumir, aðrir ekki, en það eru umræðurnar sem eiga sér stað á milli annars vegar EFTA-þjóðanna og EB-þjóðanna um evrópska efnahagssvæðið.