Frv. um félagsþjónustu sveitarfélaga
Föstudaginn 08. febrúar 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Forseti lítur svo á að hér sé á ferðinni stjfrv. Það hlýtur að vera samkomulag innan ríkisstjórnarinnar um að flytja þetta frv. þannig að forseti er í fullum rétti að taka málið á dagskrá. Forseti telur hins vegar eðlilegt, vegna þeirra athugasemda sem fram hafa komið, að fara þann meðalveg í málinu að hæstv. félmrh. fái að mæla fyrir frv. en síðan verði umræðu frestað og henni ekki haldið áfram fyrr en hæstv. menntmrh. getur verið viðstaddur.