Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Borist hefur eftirfarandi bréf frá hæstv. forseta Nd.:
,,Guðmundur Ágústsson, formaður þingflokks Borgfl., hefur ritað mér á þessa leið:
,,Þar sem Ásgeir Hannes Eiríksson, 16. þm. Reykv., er erlendis og getur ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans beiðni að óska þess að 1. varamaður Borgfl. í Reykjavík, Guttormur Einarsson, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.``
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Guttormur Einarsson hefur áður tekið sæti á þingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.