Frsm. utanrmn. (Jóhann Einvarðsson) :
Hæstv. forseti. Samkvæmt því samkomulagi sem við gerðum á milli okkar í utanrmn. og að höfðu samráði við ýmsa fleiri mæli ég hér fyrir till. sem nefndin flytur varðandi málefni Litáens. Það samdist svo um að ég mælti fyrir nál. en héldi a.m.k. ekki á þessu stigi neina umtalsverða ræðu um málefnið. Till. frá nefndinni er svohljóðandi:
,,Alþingi ályktar að staðfesta að viðurkenning ríkisstjórnarinnar frá 1922 á sjálfstæði lýðveldisins Litáens er í fullu gildi.
Alþingi styður ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá 23. jan. 1991 að verða við ósk lýðræðislega kjörinna stjórnvalda í Litáen um viðræður um stjórnmálasamband.
Alþingi felur ríkisstjórninni að leiða málið til lykta með því að taka upp stjórnmálasamband við Litáen svo fljótt sem verða má.``
Þessu fylgir örstutt grg.: ,,Utanrmn. hefur á nokkrum undanförnum fundum sínum rætt málefni Litáens og er sammála um að flytja tillögu þessa.``
Ég tel að það fari vel á því að þessi till. sé flutt hér í dag, daginn eftir að skoðanakönnunin um sjálfstæðisyfirlýsingu þeirra Litáenbúa fór fram með svo afgerandi niðurstöðu sem atkvæðatölur þar sýna.
Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til síðari umr. Það er ekki þörf á því að vísa till. til nefndar enda er það nefndin sem flytur málið.