Málefni Litáens
Mánudaginn 11. febrúar 1991


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég er sammála ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá 23. jan. 1991. Aftur á móti, eins og ég rakti hér áðan, þá virðist mér sem Ísland hafi ekki í reynd viðurkennt sjálfstæði Litáa, m.a. eins og ljóst er að við höfum sótt um vegabréfsáritun til Sovétríkjanna til að fara inn til Litáa. Þess vegna sit ég hjá við þennan hluta af tillögunni.