Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Ég vil biðja hv. þm. að doka við vegna þess að forseti hafði áður tilkynnt að framhald utandagskrárumræðu yrði á fundi sem boðaður yrði kl. 4 á morgun. Nú hefur komið í ljós að hæstv. fjmrh. getur ekki verið í þinginu fyrr en kl. hálfsex. Því verður boðaður fundur á morgun í sameinuðu þingi kl. hálfsex og utandagskrárumræðum um Þormóð ramma haldið áfram.