Framhald utandagskrárumræðu
Mánudaginn 11. febrúar 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Áður en hæstv. fjmrh. tekur til máls vill forseti biðja menn að leyfa forsetum þingsins og aðstandendum umræðunnar, í þessu tilviki hæstv. fjmrh., að leysa úr þessu máli á fundi hér á eftir. Það er ljóst að menn ná ekki saman um fundartíma og ég hygg að það verði að ræða það við þingflokksformenn og stjórn þingsins þannig að menn fari ekki að halda uppi umræðum um þingsköp fram eftir kvöldi um vandamál eins og þetta, sem auðvitað er skylda forseta að leysa.