Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Forseti vill minna hv. þm. á að hér á hinu háa Alþingi hefur um langan aldur og eins lengi og elstu menn muna verið reynt að sýna ákveðna tillitssemi þegar menn hafa augljóslega verið bundnir störfum eins og þessum sem ógerlegt var að sjá fyrir fram að mundu falla svo illa saman við umræðu sem þessa. Vill forseti minna á að fullt tillit er tekið til landsfunda flokkanna við gerð dagskrár og annað slíkt svo að menn geti sinnt slíkum störfum.
En ekki vill forseti skera úr um þetta mál úr ræðustól, heldur óskar eftir að fá að ræða það við samforseta og þá aðila sem hér eiga hlut að máli og biður menn nú um að bíða til morguns eftir þeirri niðurstöðu sem unnt væri að ná.